Heilsuvera
Sent: Þri 09. Jan 2024 01:55
Er það bara ég eða er þetta svolítið sérstakt?
Lexxinn skrifaði:Þessi kvöld/nætur lokun er vegna fjölda langra sérkennilegra skilaboða sem oft voru kölluð rauðvínsskilaboð og höfðu í raun ekkert inntak. Einnig var merki um að fólk væri bara að láta sér leiðast og senda inn furðuleg og sérkennileg skilaboð sem höfðu oftast ekkert stoð í raunveruleikanum.
rapport skrifaði:Lexxinn skrifaði:Þessi kvöld/nætur lokun er vegna fjölda langra sérkennilegra skilaboða sem oft voru kölluð rauðvínsskilaboð og höfðu í raun ekkert inntak. Einnig var merki um að fólk væri bara að láta sér leiðast og senda inn furðuleg og sérkennileg skilaboð sem höfðu oftast ekkert stoð í raunveruleikanum.
Ég hefði akkúrat haldið að í miðlægu kerfi eins og Heilsuveru, þar yrði hægt að sameina "heilbrigðis-, félags- og velferðarþjónustu" sem veitt er af heilbrigðisstarfsfólki og ef einhver aðili fær skrítin skilaboð frá skjólstæðingi um miðja nótt og það er grunur um misnotkun á áfengi eða þunglyndi eða mikilli einseimd eða bara einhverju sem kerfið getur aðstoðað viðkomandi með... þá væri hægt að vísa erindinu áfram til einhvers sem getur aðstoðað.
Í það minnsta sýna þá lágmarkskurteisi að svara fólki með einhverskonar stöðluðu svari t.d.
"Við áttum okkur ekki fyllilega á erindinu sem þú sendir okkur og getum því ekki svarað þér en við viljum minna á símatíma alla virka daga milli 15-17"
Það var þráður hérna sem hét "Stofnanamannvonska á Íslandi" og það er akkúrat svona viðhorf sem mér finnst vera kerfislæg mannvonska...
Þarna opnaði kerfið leið fyrir samskipti þar sem fólk getur haft samband þegar því líður illa, ekki daginn eftir... og þetta er svarið sem það fær?
Þetta er virkilega verðmætt tól og í þessu er mikið tækifæri til að bæta þjónustuna og draga þá jafnvel úr álaginu að degi til.
Taka á móti þessu hjali fólks af virðingu og reyna veita þeim úrræði og þjónustu. Það er það sem mér þætti réttast að gera.
GullMoli skrifaði:rapport skrifaði:...Lexxinn skrifaði:...
Mér finnst þetta ótrúlega skiljanlegt.. það er nú þegar ALLTOF mikið að gera á heilsugæslum landsins og stefnir ekkert í að það breytist. Einn heimilislæknir sem ég hitti sagðist þurfa að velja á milli þess að svara á Heilsuveru eða sinna fólki sem kemur til hans, þeas að þetta væri orðið íþyngjandi hluti af starfinu í staðin fyrir að létta á þeim.
Daz skrifaði:Skilaboð sem send eru gegnum heilsuveru teljast viðkvæm persónuleg gögn og því ekki bara hver sem er sem getur lesið þau. Ég er ekki viss hvort hjúkrunarfræðingar mega það.
Rauðvínsskilaboðin svokölluðu voru held ég frekar moggabloggs röfl en dulin köll á hjálp. Sú leið að loka á skilaboðasendingar á þessum tímum var líklegast talin skilvirkasta leiðin til að losna við ruslskilaboð úr heilsuveru.
Þegar talað er um að við höfum ekki nema 50% af þeim heimilislæknum sem landið þarf, þá þarf að beita öllum ráðum til að nýta þeirra tíma sem best.
Tengja bara chat gpt við heilsuveru skilaboð á næturnar?
rapport skrifaði:GullMoli skrifaði:rapport skrifaði:...Lexxinn skrifaði:...
Mér finnst þetta ótrúlega skiljanlegt.. það er nú þegar ALLTOF mikið að gera á heilsugæslum landsins og stefnir ekkert í að það breytist. Einn heimilislæknir sem ég hitti sagðist þurfa að velja á milli þess að svara á Heilsuveru eða sinna fólki sem kemur til hans, þeas að þetta væri orðið íþyngjandi hluti af starfinu í staðin fyrir að létta á þeim.
Nkl. hversu klikkað er það?
Af hverju er þetta ekki skipulagt eins og IT með 1.lvl, 2.lvl og 3.lvl þjónusta?
Það er ekki læknir sem á að vera að routa skilaboðum, hann er á 3rd level. 1st level þjónusta ætti að routa vandamálum og biðja um frekari upplýsingar ef eitthvað vantar o.s.frv.
Í heilbrigðisgeiranum er til aðferðafræði sem kallast "top of license" og miðar að því að allir fái að nota þekkingu sína og réttindi í botn, s.s. að ef sjúkraliði er búinn að læra að sprauta fólk og gefa lyf... þá eigi hann að fá að gera það á vinnustaðnum sama hvaða venja var 1980 þegar sjúkraliðum var ekki kennt að gera það.
Heilu námsleiðirnar hafa lognast útaf vegna stéttapólitík í heilbrigðisgerianum sbr. öldrunarhjúkrun sem var sérnám sjúkraliða sem átti að minnka þörfina fyrir sprenglærða hjúkrunarfræðinga í öldrunarþjónustu sem er almennt einfaldari en að vera á barnadeild, smitsjúkdómadeild, skurðhjúkrun o.þ.h.
En já... þetta var rant...
Að heyra að læknir fái skilaboð sem hann kjósi að sinna ekki = galið, algjörlega galið. Þetta er vinnan hans og það er yfirmanna að stilla álagi í hóf og til að gera það þá þarf að færa þjónustuna framar svo að læknar fái vinnurfrið.
s.s. annað dæmi um sóun í kerfinu NEMA kannski gæti læknir þjónustað fleiri í gegnum Heilsuveru og skilaboð en með heimsóknum sem taka mun lengri tíma og fyrirhöfn.
GullMoli skrifaði:rapport skrifaði:...GullMoli skrifaði:...rapport skrifaði:...Lexxinn skrifaði:...
Eins og ég skil þetta þá eru það hjúkrunarfræðingar sem skoða fyrst skilaboðin ef þetta eru generic skilaboð. Svo er þessu komið áleiðis ef þörf er á.
Ég held að vandamálið sé einmitt frekar hvað fólk sendir margar fyrirspurnir þangað inn sem eiga ekkert endilega erindi þangað, en þar sem þetta er svo auðvelt og þægilegt þá hugsi fólk kannski "Æji já ég spyr bara". Vissulega er aðal vandamálið skortur á fjármagni og starfsfólki þó
bigggan skrifaði:Verður það ekki þannig að hausar fjúka og miklu verr þjónusta ef það kemur í ljós að einhver "omentaður" einstaklingur vísaði frá skilaboð sem átti erindi inn í heilsukerfið?
rapport skrifaði:Lexxinn skrifaði:Þessi kvöld/nætur lokun er vegna ....
Ég hefði akkúrat haldið að í miðlægu kerfi eins og Heilsuveru, þar yrði hægt að sameina "heilbrigðis-, félags- og velferðarþjónustu" sem veitt er af heilbrigðisstarfsfólki og ef einhver aðili fær skrítin skilaboð frá skjólstæðingi um miðja nótt og það er grunur um misnotkun á áfengi eða þunglyndi eða mikilli einseimd eða bara einhverju sem kerfið getur aðstoðað viðkomandi með...
rapport skrifaði:Af hverju er þetta ekki skipulagt eins og IT með 1.lvl, 2.lvl og 3.lvl þjónusta?
Lexxinn skrifaði:rapport skrifaði:Lexxinn skrifaði:Þessi kvöld/nætur lokun er vegna ....
Ég hefði akkúrat haldið að í miðlægu kerfi eins og Heilsuveru, þar yrði hægt að sameina "heilbrigðis-, félags- og velferðarþjónustu" sem veitt er af heilbrigðisstarfsfólki og ef einhver aðili fær skrítin skilaboð frá skjólstæðingi um miðja nótt og það er grunur um misnotkun á áfengi eða þunglyndi eða mikilli einseimd eða bara einhverju sem kerfið getur aðstoðað viðkomandi með...
Heilsugæslan er nú þegar að sligast vegna fjölda sem leita til hennar, lyfjaendurnýjana, vottorða (einkum til lögfræðinga), og þeirra skilaboða sem er hleypt í gegn og tel ég ekki físilegt að ætla reyna "grípa" stöku sötrara í gegnum skilaboð sem myndu ólíklegast mæta svo til læknis þegar boðinn tími.rapport skrifaði:Af hverju er þetta ekki skipulagt eins og IT með 1.lvl, 2.lvl og 3.lvl þjónusta?
Mig rámar það sé læknaritari (aka heilbrigðisgagnafræðingur) sem síar skilaboðin og sendir áfram á lækni ef tilefni þykir til, svarar eftir bestu getu til að leiðbeina einstaklingnum hvert skal leita með erindið, annars eru stöðluð svör send.
Smá input að ef borin er saman staðan á heilsugæslunni í dag fyrir 20 árum þá hitta heimilislæknar almennt jafn marga ef ekki fleiri sjúklinga í fullu starfi hverja viku og jafn mörg símtöl, en ríkið hefur aukalega bætt ofan á þá rafrænum lyfjaendurnýjunum og Heilsuveru án þess að spurja eða athuga hvernig það henti, ekkert auka fjármagn fylgt þessum auka verkefnum. Þar ofan á hefur fjöldi vottorða sem þurfa enga aðkomu læknis bæst á heilsugæsluna og skv lagastafnum krafist staðfestingar læknis á því. Ég veit til að sjúklingur sem fékk heilablóðfall fyrir 10+ árum þurfi að koma á X ára fresti til að fá vottorð/endurnýjun á P-merki, hlutaörorku og umsókn um fjármagnsstyrk fyrir hjálpartæki - þó ekkert breytist í hans fari. Þar fara mikilvægir tímar í að "votta" hluti sem aldrei breytast - oftast eitthvað sem ekki jafn sérhæfður starfsmaður og læknir þyrfti að gera.
Einnig er gífurlegur fjöldi beiðna um læknisvottorð frá lögfræðingum úti í bæ, allra mest frá Tort, Fortis, Bótaréttur, Fulltingi etc, sem læknar neyðast til að vinna utan hefðbundins vinnutíma, frá sumum þessum lögfrðistofum koma ítrekanir á mánaðarfresti ef vottorð hefur ekki borist. Þau segja oft á tíðum "Borist hefur á því í vottorðum lækna að heilsufar sjúklinga fyrir heilsubrest hefur ekki verið stiklað nógu vel og því skv reglugerð XPZ ber læknum að fara yfir það og stikla á því sem gæti haft áhrif á sjúkling í tengslum við heilsubrestinn etc" og það hjá kannski 50-60ára sjúklingum, sumum sem hafa komið ítrekað á heilsustofnanir í gegnum ævina.