Viktor skrifaði:litwur skrifaði:Viktor skrifaði:litwur skrifaði:Það er gott að hafa ágæta geymsu af fjármunum. En hvernig eru matabirgðirnar okkar sem þjóð?
Sjórinn hefur haldið í okkur lífi í þúsund ár.
Svo olíubirgðir er okkar helsti akkilesarhæll.
Held að stjórnmálamenn séu sofandi á verðinum varðandi þetta eins og margt annað.
Eru tankarnir í Hvalf. tómir?
Hvað ætli sé er mikið af Olíu í tönkum á landinu?
Hvað ætli geymslugetan sé mikil á landinu?
Hvað tekur flotinn okkar mikið að jafnaði á ári?
20-50 dagar til á hverjum tíma
https://kjarninn.is/frettir/eigum-adein ... 0-50-daga/
Dugar ekki, við erum dáldið fucked.
Þetta er eitthvað til að eyða hluta af gjaldeyrisforðanum í, birgðir!
En hvernig væri rétt að ganga í það?
Þyrfti kannski að byggja nýjar byrgðastöðvr til að halda utanum þesr birgðir?
Hvaða framkvæmdarvald ætti að sjá um þessi innkaup og rekstur á þessum birgðum, ætti þetta vald að bjóða út reksturinn eða einfaldlega að kaupa þetta inn í eigin nafni?
Ef við ætlum að nota gjaldeyrinn í þetta að hluta, þá þarf að tengja valdið yfir þeim fjármunum við valdið yfir að geima verðmæti í öðru en fjármunum. Er það seðlabankinn sem heldur utanum gjaldeyrinn? ef það er svo, ætti þá seðlabankinn að kaupa olíu fyrir varabirgðirnar? Hvaða reglugerð þarf að breyta til að það sé hægt, þyrfti kannski að setja nýja lagaheimild til að þetta gangi eftir? Krónan yrði mun stöðugri ef hún væri bökkuð upp af góðum vörubirgðum með t.d. Olíu.