Síða 1 af 1

Nýtt eldgosatímabil að hefjast í Brennisteinsfjöllum

Sent: Lau 25. Mar 2023 00:48
af jonfr1900
Ég ákvað að það væri best að skrifa einnig um þetta hérna. Það virðist sem að Brennisteinsfjöll (einnig þekkt sem Bláfjöll) séu að fara að hefja nýtt eldgosatímabil. Fyrstu greinilegu merkin um þetta komu fram í þessari viku, þegar jarðskjálftahrina hófst syðst í Brennisteinsfjöllum nærri Hlíðarvatni. Þetta er ekki komið mjög langt eins núna og gæti stöðvast í lengri tíma. Þangað til að eldgos hefst. Þetta er staðan í dag. Það getur gosið í mörgum eldstöðvum á sama tíma á Reykjanesskaga.

230325_0040.png
230325_0040.png (23.75 KiB) Skoðað 2798 sinnum


jarðskjálftar-brennisteinsfjöll-24.03.2023.png
jarðskjálftar-brennisteinsfjöll-24.03.2023.png (800.41 KiB) Skoðað 2798 sinnum


jarðskjálftar-brennisteinsfjöll-24.03.2023-map-of-area.jpg
jarðskjálftar-brennisteinsfjöll-24.03.2023-map-of-area.jpg (566 KiB) Skoðað 2798 sinnum

Re: Nýtt eldgosatímabil að hefjast í Brennisteinsfjöllum

Sent: Lau 25. Mar 2023 19:35
af Henjo
Þannig maður getur farið á skíði og skoðað eldfjall 2 fyrir 1? Mega nice :D

Re: Nýtt eldgosatímabil að hefjast í Brennisteinsfjöllum

Sent: Lau 25. Mar 2023 23:49
af jonfr1900
Eldgos þarna er ekki stórt vandamál. Hraun fer þá bara út í þetta vatn sem er þarna og það er kannski ein kirkja í hættu, ásamt vegnum sem er þarna. Get ekki sagt til um það hvenær fer að gjósa en þetta virðist vera að þróast frekar hratt en eins og er. Þessa stundina er kvikan á 4 km til 7 km dýpi.

Gæti orðið vandamál ef það færi að gjósa í norðari hluta Brennisteinsfjalla, þá næst Hafnarfirði en ég hef ekki séð nein merki um slíkt ennþá.

Re: Nýtt eldgosatímabil að hefjast í Brennisteinsfjöllum

Sent: Fim 13. Apr 2023 20:07
af jonfr1900
Jarðskjálftavirkni er byrjuð á ný á þessu svæði. Þetta er mjög svipað og gerðist áður en það fór að gjósa í Bárðarbungu árið 2014. Þá kom fram nokkrum vikum áður lítil jarðskjálftahrina sem hreinlega fór ekki og var með svipuðum hætti og ég sé núna í Brennisteinsfjöllum. Hversu langan tíma þetta tekur veit ég ekki en í tilfelli Bárðarbungu, þá var það um þrír mánuðir minnir mig (gæti verið tveir mánuðir, en ég man þetta ekki svo vel lengur).

230413_1700.png
230413_1700.png (23.6 KiB) Skoðað 1663 sinnum

Re: Nýtt eldgosatímabil að hefjast í Brennisteinsfjöllum

Sent: Lau 15. Apr 2023 01:32
af jonfr1900
Í gær varð jarðskjálfti með stærðina Mw2,7 á þessu svæði. Dýpið var 2 km.

Re: Nýtt eldgosatímabil að hefjast í Brennisteinsfjöllum

Sent: Lau 15. Apr 2023 02:51
af Borð
Ert þú að vinna sem blaðamaður hjá dv? Hvurslags fyrirsögn er þetta

Re: Nýtt eldgosatímabil að hefjast í Brennisteinsfjöllum

Sent: Lau 15. Apr 2023 03:02
af appel
Borð skrifaði:Ert þú að vinna sem blaðamaður hjá dv? Hvurslags fyrirsögn er þetta

Hann er einhver sem við tökum mark á hérna á vaktinni, ólíkt DV.

Re: Nýtt eldgosatímabil að hefjast í Brennisteinsfjöllum

Sent: Lau 15. Apr 2023 13:03
af Borð
appel skrifaði:
Borð skrifaði:Ert þú að vinna sem blaðamaður hjá dv? Hvurslags fyrirsögn er þetta

Hann er einhver sem við tökum mark á hérna á vaktinni, ólíkt DV.


Af hverju tekur DV ekki mark á jonfr? Vitum við það?