Uppfærslu vangaveltur
Sent: Fim 16. Feb 2023 12:02
Í dag væri mögulegt fyrir einhvern að uppfæra tölvuna sína, en það væri smá furðurleg uppfærsla.
Hann myndi uppfæra örgjörvan úr 7900X í 7900X, hann myndi uppfæra skjákortið sitt úr 7900 GTX í 7900 XTX og á sama tíma myndi hann fara úr 64GB af vinnsluminni í 64GB af vinnsluminni og úr 4TB drifi yfir í 4TB drif.
Þessi aðili myndi vera rosalega ánægður með uppfærsluna, sérstaklega þegar kemur að tölvuleikjum og þungri vinnslu.
Fyrir þá sem að lásu ekki milli línanana, þá fór hann úr Intel Core i9 7900X (10 kjarna Skylake) í AMD Ryzen 9 7900X (12 kjarna Ryzen 4), úr Nvidia Geforce 7900 GTX 512MB (90nm Curie G71 kort frá 2006) í AMD Radeon 7900 XTX 24GB (5nm RDNA 3 kort frá 2023), úr 64GB af DDR4-2666 í 64GB af DDR5-6400 og úr 4TB SATA HDD yfir í 4TB NVMe Gen4 x4 SSD.
Þessi aðili virðist einnig vera með eitthvað blæti fyrir því að kaupa bara skjákort og örgjörva sem heita eitthvað "7900", svo að það gæti liðið langur tími fram að næstu uppfærslu... Líklega verður það næsta Intel Arc A7900 árið 2031