Síða 1 af 1
Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 14:16
af zaiLex
Sælir er í brasi með að tengja ljós heima hjá mér. Ef að það þarf einfaldlega að tengja brúnt og blátt þá skil ég. En það virðist vera að það þurfi að samtengja einhver ljós eða eitthvað svoleiðis. Ljósin sem ég er í vandræðum með eru 3 ljós sem tengjast í 3 dósir og eru í röð, en engin af þeim virka. Þegar ég var að setja þau upp þá virkaði það fyrsta, síðan tengdi ég nr 2 og þá hættu allar dósirnar að virka. Virðist ekki vera neinn straumur úr þessum dósum (skv mælingum tengdó).
Hér er stofuljósið:
- IMG_0402.jpg (863.52 KiB) Skoðað 2838 sinnum
Við sáum að ljósið sem var fyrir var tengt svona með brúnum og hvítum inn í brúnan. Ég er búinn að komast að því að hvíti þarf að vera tengdur til að annað ljós á sama rofa virki. Ef hvíti er bara tengdur þá virkar bara hitt ljósið. Ef bara brúni er tengdur þá virka hvorug ljósin. Síðan í þessu brasi mínu núna virðist ég hafa aftengt eitt veggljós.
Hér eru hinar dósirnar sem virka ekki.
- IMG_0411(1).JPG (1.61 MiB) Skoðað 2838 sinnum
- IMG_0410(1).JPG (1.61 MiB) Skoðað 2838 sinnum
- IMG_0409(1).JPG (1.59 MiB) Skoðað 2838 sinnum
Þarf ég ekki að samtengja eitthvað dót
Er með alls konar eitthvað dót veit samt ekki einu sinni hvað þetta gerir allt saman:
- IMG_0408.jpg (778.99 KiB) Skoðað 2838 sinnum
skil ekki hvað fjólubláu, hvítu og gráu vírarnir gera
Hvað segið þið vaktarar?
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 14:27
af Njall_L
Ég er mjög hlynntur því að fólk græju svona einföld verkefni sjálft en ef þú veist ekki hvað rafmagnstengi gera þá ættirðu ekki að vera að fikta í þessu heldur hringja í fagmann..
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 14:37
af zaiLex
ég veit, það er næst á dagskrá, bara spá hvort það sé eitthvað augljóst sem ég er að missa af. síðan er það líka að gu10 led perur eru að fara á kannski 6 mán fresti og allar halogen perurnar eru að fara á styttri tíma, held það sé eitthvað mikið rugl í gangi.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 16:08
af jonsig
Passaðu að slasa þig ekki eða annan. Þú ert ótryggður í þessu stússi.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 16:36
af TheAdder
Sem fagmaður, þá mæli ég sterklega með að þú fáir fagmann í verkið, það er lítill vandi að slasa sig alvarlega eða drepa sig á þessu ef maður kann ekki til verka.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 16:43
af codemasterbleep
Ekki rafvirki en myndi ætla að þú þyrftir að samtengja sömu liti í dósinni til þess búa til hliðtengda rás.
Fjólublátt saman, blátt saman og svo framvegis.
Ef þú ert með rafmagnsmæli gætirðu séð hvaða litir eru plús og hverjir eru mínus.
Svo er bara spurning hvort þú játar þig sigraðan, kveikir á kertum og hringir í fagmann. Tekur hann eflaust minna en klukkara að græja þetta.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 17:04
af jonsig
Getur fyllt út svona á mínum síðum á HMS.is
where to upload pictures
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 17:37
af mikkimás
TheAdder skrifaði:Sem fagmaður, þá mæli ég sterklega með að þú fáir fagmann í verkið, það er lítill vandi að slasa sig alvarlega eða drepa sig á þessu ef maður kann ekki til verka.
Er einhver hætta á ferð ef maður slær út örygginu handvirkt áður en maður vasast í þessu?
p.s. Ég er ekki fagmaður.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 18:13
af Hausinn
mikkimás skrifaði:TheAdder skrifaði:Sem fagmaður, þá mæli ég sterklega með að þú fáir fagmann í verkið, það er lítill vandi að slasa sig alvarlega eða drepa sig á þessu ef maður kann ekki til verka.
Er einhver hætta á ferð ef maður slær út örygginu handvirkt áður en maður vasast í þessu?
p.s. Ég er ekki fagmaður.
Ef maður slær út öllum lekaliðanum er alveg öruggt að fiffast í þessu. Maður verður þó að passa sig á því að hann sé örugglega úti. Getur gleymst ef maður er stanslaust að setja hann inn og út. Það er einnig mjög mikilvægt að maður viti nákvæmlega hvað er fasi og vera ekki að tengja hluti bara einhvernveginn; síðasta sem maður vill er að tengja fasa við eitthvað sem er auðvelt að koma við.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 18:27
af Tbot
Í einni dósinni ertu búinn að aftengja bláa vírinn (núllið), þannig að það dettur allt út fyrir aftan.
Ef þú ert óklár á hvað er hvað er best að fá hjálp.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 18:31
af jonsig
Hausinn skrifaði:Ef maður slær út öllum lekaliðanum er alveg öruggt að fiffast í þessu. Maður verður þó að passa sig á því að hann sé örugglega úti. Getur gleymst ef maður er stanslaust að setja hann inn og út. Það er einnig mjög mikilvægt að maður viti nákvæmlega hvað er fasi og vera ekki að tengja hluti bara einhvernveginn; síðasta sem maður vill er að tengja fasa við eitthvað sem er auðvelt að koma við.
Rangt.
Ef þú ert að tala um lekastraumsrofa þá er það ekki skilrof og því ekki 100% öruggur útsláttur.
Að leiðbeina leikmanni á þessu level að fikta í hættulegu rafmagni getur gert svo mikið meiri skaða en hugsanlega gott.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 18:42
af Tbot
jonsig skrifaði:Hausinn skrifaði:Ef maður slær út öllum lekaliðanum er alveg öruggt að fiffast í þessu. Maður verður þó að passa sig á því að hann sé örugglega úti. Getur gleymst ef maður er stanslaust að setja hann inn og út. Það er einnig mjög mikilvægt að maður viti nákvæmlega hvað er fasi og vera ekki að tengja hluti bara einhvernveginn; síðasta sem maður vill er að tengja fasa við eitthvað sem er auðvelt að koma við.
Rangt.
Ef þú ert að tala um lekastraumsrofa þá er það ekki skilrof og því ekki 100% öruggur útsláttur.
Að leiðbeina leikmanni á þessu level að fikta í hættulegu rafmagni getur gert svo mikið meiri skaða en hugsanlega gott.
Leiðrétting.
Bilunarstraumsrofi á að rjúfa allan straum, ef hann gerir það ekki þá er hann bilaður.
Hins vegar ef það vantar jörð, er ekki tryggt að hann leysi út við útleyðslu.
http://www.mvsfraedsla.is/rafmagn/stok- ... heimilinu/
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 23:16
af Hausinn
jonsig skrifaði:Hausinn skrifaði:Ef maður slær út öllum lekaliðanum er alveg öruggt að fiffast í þessu. Maður verður þó að passa sig á því að hann sé örugglega úti. Getur gleymst ef maður er stanslaust að setja hann inn og út. Það er einnig mjög mikilvægt að maður viti nákvæmlega hvað er fasi og vera ekki að tengja hluti bara einhvernveginn; síðasta sem maður vill er að tengja fasa við eitthvað sem er auðvelt að koma við.
Rangt.
Ef þú ert að tala um lekastraumsrofa þá er það ekki skilrof og því ekki 100% öruggur útsláttur.
Að leiðbeina leikmanni á þessu level að fikta í hættulegu rafmagni getur gert svo mikið meiri skaða en hugsanlega gott.
Ég er að meina það að fara í töflu og slá honum út með rofa. Það á að rjúfa bæði fasa og núll frá öllu sem tengist eftir á. Eða er ég að misskilja þig eithvað?
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Lau 05. Nóv 2022 23:27
af zaiLex
Tbot skrifaði:Í einni dósinni ertu búinn að aftengja bláa vírinn (núllið), þannig að það dettur allt út fyrir aftan.
Ef þú ert óklár á hvað er hvað er best að fá hjálp.
Á hvaða mynd? Hvernig tengi ég það aftur?
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Sun 06. Nóv 2022 09:34
af Hizzman
Allir ljósbláir (núll) vírar eiga að tengjast saman. Allar perur eiga einnig að tengjast í ljósbláan öðru megin, hin hliðin á perunum fer í 'sama' vírinn sem fer í rofan.
Reyndu að átta þig á hvernig rörin liggja milli dósa og hvaða vírar fara í rofann, einn er fasi (alltaf rafmagn) annar er millilína sem slekkur og kveikir á perum. Millilínan er vírinn sem fer í perurnar.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Sun 06. Nóv 2022 09:47
af axyne
Fyrir það fyrsta, ALLIR vírar af sama lit verða að vera tengdir saman í hverri dós. ALDREI tengja saman liti sem eru ekki sami liturinn.
Síðan fyrir hvert ljós þá tekurðu blátt skott í ljósið, (gulgrænt skott ef ljósið bíður uppá það) og fasa skott, annahvort fjólubláan, brúnan eða gráan (fer eftir því hvaða rofa þú vilt nota til að stýra ljósinu).
Ég hefði búist við að hvítu eru hlauparar fyrir samrofa en ég sé bara 3x í staðinn fyrir 4x í dósinni, svo ég er ekki viss.
Ef þeir eru 4 þá þarftu að tengja þá í sitthvoru lagi, 2 og 2.
En eins og flestir eru búnir að segja fáðu þér fagmann í verkið ef þú ert ekki viss.
Varðandi halogen perurnar, ef það eru perur sem eru undir skáphurðum þá er það hristingurinn sem er að drepa þær.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Sun 06. Nóv 2022 11:12
af Hlynzi
Það er alveg örugglega margfallt fljótlegra að fá rafvirkja á staðinn og redda þessu. Allir bláir (Núll - N) eiga að vera tengdir saman, ásamt öllum jarðvírum (gul-grænum)
Síðan þarf að átta sig á hvaða vír er fasinn (mér sýnist það vera svartur í þessu tilfelli - almennt í dag er hann brúnn) en hér áður fyrr notuðu menn stundum svartann, stundum rauðann.
Restin af litunum eru svo millilínur (frá rofa) og ljósið fer inná einhverja þeirra. Ef það eru 2 í sama lit í sama röri eru þeir oftast hlauparar fyrir samrofa (sitthvorum megin á gangi t.d.) og ljósið tengist ekki í þá.
Á síðustu myndinni eru bara mismunandi útgáfur af tengjum, þetta glæra appelsínugula (Waco) - smellutengi er nýjast og ótrúlega þægilegt, ég nota varla önnur tengi. Hvíta tengið er svo almennt notað fyrir tengingar á ljósum, þá standa 2 vírar út úr dósinni svo maður geti klemmt það saman og tengt ljósið án mikilla vandræða.
Málið er bara með margar kveikingar og oft furðulegt litaval er fljótlegra að fá rafvirkja á staðinn, þetta getur verið ansi ruglandi og stundum er fljótlegra að draga nýtt í eitthvað af þessu, við eigum það til að hafa alltof margar kveikingar á ljósum.
Re: Vandamál við að tengja ljós
Sent: Mán 07. Nóv 2022 14:54
af zaiLex
Reddað takk fyrir.