Síða 1 af 1
hvernig virkar thetta ?
Sent: Fim 07. Júl 2022 18:49
af Semboy
Eg bjo til mitt eigid forrit sem sendir mer upplysingar i siman ef einhver ibud eftir staerd fer undir akvedid verd.
Eg hef steingleymt ad filtera svona lagad ut.
En samt uppa forvitni. Hvernig virkar thetta, thannig thu kaupir lodina fyrir thessa upphaed og i tvi er innifalid
teikningar/ leyfi til ad byggja thetta/ og grunnurinn er klar ?
edit>
Re: hvernig virkar thetta ?
Sent: Fim 07. Júl 2022 21:33
af dadik
Já, þarft bara að byggja húsið.
Re: hvernig virkar thetta ?
Sent: Fim 07. Júl 2022 21:45
af talkabout
"bara"
Re: hvernig virkar thetta ?
Sent: Fös 08. Júl 2022 07:36
af Hlynzi
Þetta er semsagt hvað 20% tilbúið "hús" , þá er búið að grafa grunninn, búið að setja púða, þá á eftir að steypa plötuna (og restina af húsinu).
Svo þú ert eiginlega að kaupa holu + teikningar...á 50 milljónir. Það kostar alveg pottþétt aðrar 50 milljónir að byggja þetta hús, sennilega nær 100 milljónum.
Re: hvernig virkar thetta ?
Sent: Fös 08. Júl 2022 07:49
af Klemmi
Hlynzi skrifaði:Svo þú ert eiginlega að kaupa holu + teikningar...á 50 milljónir. Það kostar alveg pottþétt aðrar 50 milljónir að byggja þetta hús, sennilega nær 100 milljónum.
Líklega yfir 100 milljónum að byggja húsið, það er allt fljótt að telja í svona 350fm fjöri, allt efni hefur hækkað undanfarið, sem og að vinnuafl er af skornum skammti
Re: hvernig virkar thetta ?
Sent: Fös 08. Júl 2022 13:00
af Jón Ragnar
Örugglega ansi nálægt 200m bara að byggja kofann
Re: hvernig virkar thetta ?
Sent: Fös 08. Júl 2022 13:06
af dadik
Þarft 200m til að klára þetta.
Það er orðið verulega dýrt að byggja svona hús. Segjum að þú eigir 60m og þurfir að taka 140m að láni. 140m óverðtryggt lán er á ca. 950k á mánuði.
Plús að þú þarft að fjármagna alla húsbygginguna á yfirdrætti (12.5% vöxtum) þangað til húsið kemst á byggingarstig 4. (fokhelt)