Síða 1 af 1

Anandtech Preview: Intel dual-core Yonah!

Sent: Mið 30. Nóv 2005 12:28
af kristjanm
Já Anandtech eru komnir með Yonah í hendurnar.

Ef þið vitið ekki hvað Yonah er þá er það ný kynslóð af fartölvuörgjörvum frá Intel.

Þeir munu keyra á alveg upp í 2.16GHz þegar þeim verður sleppt snemma á næsta ári, verða með 2MB L2 Cache sem báðir kjarnarnir deila, og eru með margvíslegar hönnunarumbætur fram yfir núverandi Dothan örgjörvann. Þeir eru byggðir á 65nm framleiðslutækni. Meiri upplýsingar í linknum að neðan.

Ath. að þetta er ekki formleg útgáfa, bæði móðurborðið og örgjörvinn eru "pre-release samples" og munu hugsanlega verða hraðvirkari þegar þeir koma út.

Annars er þetta ekkert sem menn eiga að hlaupa út í búð og kaupa því að Conroe kemur á næsta ári, 65nm desktop útgáfa sem verður eitthvað skyld Yonah. Reyndar á Yonah að sjást eitthvað á desktoppinu en hann er samt aðallega hannaður sem fartölvuörgjörvi, enda eyðir hann mjög svipuðu og Dothan þrátt fyrir að vera með tvo kjarna.

Kæmi mér samt ekkert á óvart að sjá hann í einhverjum "high-end" desktop vélum frá Intel þar sem að hann er miklu öflugri en Pentium 4.

http://www.anandtech.com/cpuchipsets/sh ... spx?i=2627

Jæja, segið mér svo hvað ykkur finnst um framtíðina hjá Intel :)

Sent: Mið 30. Nóv 2005 13:42
af wICE_man
Þetta er glæsilegt, að vísu eru þeir hjá Intel enþá að eltast við afkastagetu AMD örgjörvana en Yonah er með talsvert lægri orkuþörf en X2 gjörvvarnir hjá AMD og ætti að geta smollið í hvaða fartölvu sem er sem er mikill kostur. Leiðinlegt hvað þeir eru samt alltaf að drulla yfir samhæfni við eldri kerfi, fjöldi pinna er óbreyttur og kubbasettið það sama en þeir þurftu endilega að skipta um sökkul :x

Sent: Mið 30. Nóv 2005 14:27
af kristjanm
Jamm þeir eru ennþá að elta AMD, en mér finnst enn merkilegra hvað þeir eru að RÚSTA Pentium D :)

Já það er nýr sökkull á þessu, því miður, en ég held samt að Conroe eigi eftir að nota sökkul 775. Það er örgjörvinn sem ég á sennilega eftir að kaupa mér, nema AMD séu með eitthvað í pokahorninu sem ég held að þeir geri ekki.

Sent: Mið 30. Nóv 2005 14:33
af gnarr
það sem að mér þykir fáránlegast við þetta er þetta:

Mynd

EINA sem var gert var að þeir færðu einn pinnann einni röð innar! Þannig koma þeir í veg fyrir að maður geti notað gamla Pentium M örgjörfa. Ekkert nema peningagræðgi og rugl hjá þeim.

Fyrir utan það að 479pinna örgjörfa virka á 478pinna móðurborðum með sérstökum adapter. Þannig að P4, P-M og Yonah ættu allir að virka á sömu móðurborðunum ef pinnaröðin væri ekki í þessu rugli.

Re: Anandtech Preview: Intel dual-core Yonah!

Sent: Fös 09. Des 2005 22:54
af Viktor
kristjanm skrifaði:Já Anandtech eru komnir með Yonah í hendurnar.'


Minnir mig á jónu :catgotmyballs

Re: Anandtech Preview: Intel dual-core Yonah!

Sent: Fös 09. Des 2005 23:29
af Veit Ekki
Viktor skrifaði:
kristjanm skrifaði:Já Anandtech eru komnir með Yonah í hendurnar.'


Minnir mig á jónu :catgotmyballs


:roll: Guð minn góður.

Sent: Sun 11. Des 2005 22:33
af Yank
Vá Intel :roll: önnur kynslóð af dual core örgjörvum frá þeim en samt ná þeir ekki AMD.

Re: Anandtech Preview: Intel dual-core Yonah!

Sent: Mán 12. Des 2005 01:55
af corflame
Viktor skrifaði:
kristjanm skrifaði:Já Anandtech eru komnir með Yonah í hendurnar.'


Minnir mig á jónu :catgotmyballs


Nú, er hún svona kubbsleg með 775 brjóst?

Af hverju ferðu nú ekki að deita "normal" konum ;)

Re: Anandtech Preview: Intel dual-core Yonah!

Sent: Þri 13. Des 2005 17:15
af DoRi-
corflame skrifaði:
Viktor skrifaði:
kristjanm skrifaði:Já Anandtech eru komnir með Yonah í hendurnar.'


Minnir mig á jónu :catgotmyballs


Nú, er hún svona kubbsleg með 775 brjóst?

Af hverju ferðu nú ekki að deita "normal" konum ;)


bara svona eitt smávægis

FACE!!!11!!oneone1eleven!!