Síða 1 af 1

Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Mið 06. Apr 2022 12:15
af vatr9
Atlassian er niðri síðan í gær.
Eru mörg fyrirtæki að lenda í þessu á Íslandi?
Jira og Confluence eru tól sem margir nota hér.

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Mið 06. Apr 2022 12:48
af Jón Ragnar
Jira virkar hjá mér :)

Enda hostum við sjálf

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Mið 06. Apr 2022 13:33
af dadik
Virkar hjá okkur. Erum með 3rd party hosting.

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Mið 06. Apr 2022 14:05
af B0b4F3tt
Jira virkar í vinnunni hjá mér. Ætla ekki að segja að Jira virki fínt þar sem Jira virkar aldrei fínt :sleezyjoe

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Mið 06. Apr 2022 16:29
af ZoRzEr
Virkar hjá okkur. Erum með on prem deployment.

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Mið 06. Apr 2022 16:44
af rapport
vatr9 skrifaði:Atlassian er niðri síðan í gær.
Eru mörg fyrirtæki að lenda í þessu á Íslandi?
Jira og Confluence eru tól sem margir nota hér.


https://status.atlassian.com/

Kannast við þetta.

Þetta er skelfilega léleg frammistaða hjá þeim.

Fæ það á tilfinninguna við að lesa þessar stuttu tilkynningar að þeir séu að restora frá öryggisafritum.

Minnir að þeir séu með Atlassian Cloud í AWS, og AWS er held ég ekki um að kenna allt up and running hjá þeim.

Tveggja daga þjónusturof í kjölfara uppfærslu/viðhalds er ekki eitthvað sem kúnnar eru tilbúnir að sætta sig við.

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Fim 07. Apr 2022 08:19
af rapport
Það er galið að nú sé þriðji dagurinn að hefjast þar sem SaaS lausn sem lofar 99,99% uppitíma er offline.

https://jira-service-management.status.atlassian.com/

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Fim 07. Apr 2022 10:08
af natti
fyrir ...
Jón Ragnar skrifaði:Jira virkar hjá mér :)

Enda hostum við sjálf


Welp... "ennþá" já...

But...
https://www.atlassian.com/migration/assess/journey-to-cloud skrifaði:Support for Atlassian Server products ends on February 15, 2024 PT[...]
As of February 2, 2021 PT, we no longer sell new licenses [...]
As of February 15, 2022 PT, you will no longer be able to upgrade or downgrade tiers[...]
As of February 15, 2024 PT, your Server products will reach the end of support.


Það er ekkert val, JIRA to the cloud.



rapport skrifaði:Það er galið að nú sé þriðji dagurinn að hefjast þar sem SaaS lausn sem lofar 99,99% uppitíma er offline.


Það segir okkur samt nú bara það að hvort sem subjectið er skýjalausnir eða weight-loss-programs, að það eru engar magic lausnir og vandamál geta og hafa komið allsstaðar.

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Fim 07. Apr 2022 14:32
af rapport

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Sun 10. Apr 2022 21:27
af natti
Kæra dagbók, dagur fimm....
https://jira-software.status.atlassian.com/ skrifaði:Update - We are still working 24/7 to restore service to affected customers. We have restored partial access for some customers and will be continuing to restore access into next week.
Apr 10, 20:21 UTC


Úff...

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Mán 11. Apr 2022 08:41
af vatr9
Hér er þráður um tól sem hægt er að nota í staðinn fyrir Atlassian dótið.
https://www.reddit.com/r/sysadmin/comme ... es_thread/

Re: Atlassian (Jira & Conflunce)

Sent: Mán 11. Apr 2022 14:09
af depill
Við í vinnunni hjá mér höfum alveg sloppið. Samt í Jira Cloud og Confluence Cloud.

Veit ekki hvort það sé heppni eða vegna þess að við erum vegna data residency að við erum ekki í Global deploymentinu heldur bara í EU.

Veit einhver hvort þetta var bara kúnnar í X deploymenti ? Við erum til dæmis í LTS ( Stable release ), EU Deployment og Premium ( 99,99% SLA )