Ég er búinn að prófa að installera RÚV flutterspilaranum á amerískan "Fire TV Stick 4K". Eftirá gerir spilarinn lítið af viti. Það er hægt að labba milli valmöguleika en enginn þeirra virkar.
Útgáfur sem ég prófaði voru 2.3.2 og 2.3.0.
Ef einhver er með RÚV virkt á "Stick" væri gaman að heyra hvaða útgáfu menn eru með, svo ég þurfi ekki að ganga afturábak yfir allar mögulegar útgáfur í leit að einhverju með einhverja virkni.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Mið 29. Des 2021 19:32
af zetor
hefur þú skoðað stöð2 fire stick appið? virkar mjög vel hjá mér
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fim 30. Des 2021 03:09
af Sinnumtveir
zetor skrifaði:hefur þú skoðað stöð2 fire stick appið? virkar mjög vel hjá mér
Kærar þakkir. Gekk eins og í sögu að setja þetta upp. Sarpurinn líka aðgengilegur amk á einhvern hátt.
Einn galli. Audiosync er "off" á RÚV. Tjekka á morgun hvort það sama gildir um Stöð-2. Engin sync vandamál á Netflix, Disney+ eða Primevideo, þannig að ég er ekki að fara breyta sync-stillingum á sjónvarpinu.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Mið 05. Jan 2022 21:49
af Sinnumtveir
Takk fyrir hjálpina spjallarar.
RÚV flutterspilari útgáfa 1.6.2 virkar á Fire TV Stick 4K. Enginn, ekki ein einasta, af nýrri útgáfum virkaði. RÚV spilarinn líkt og Stöðvar tvö appið er ætið með hljóð og mynd eilítið úr synci sem telst varla annað en lélegt.
Annað sem mér finnst arfaslakt af RÚV er að hafa ekki apk respository fyrir allar útgáfur sem þeir hafa gefið út. Í staðinn þarf maður að gramsa í allskonar misvafasömum síðum tvist og bast um heiminn að leita að þessu "góssi". Semsagt 100% ófaglegt hjá RÚV, hverjum hefði dottið það í hug?
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fim 06. Jan 2022 14:05
af JReykdal
Sinnumtveir skrifaði:Takk fyrir hjálpina spjallarar.

Hvaða fyrirtæki hafa "apk repository" fyrir útgefin forrit? Man ekki eftir neinum sem gera slíkt, nema þá kannski einhver open source verkefni sem geyma þau á github.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fös 07. Jan 2022 11:07
af zetor
Sinnumtveir skrifaði:Takk fyrir hjálpina spjallarar.
RÚV flutterspilari útgáfa 1.6.2 virkar á Fire TV Stick 4K. Enginn, ekki ein einasta, af nýrri útgáfum virkaði. RÚV spilarinn líkt og Stöðvar tvö appið er ætið með hljóð og mynd eilítið úr synci sem telst varla annað en lélegt.
Annað sem mér finnst arfaslakt af RÚV er að hafa ekki apk respository fyrir allar útgáfur sem þeir hafa gefið út. Í staðinn þarf maður að gramsa í allskonar misvafasömum síðum tvist og bast um heiminn að leita að þessu "góssi". Semsagt 100% ófaglegt hjá RÚV, hverjum hefði dottið það í hug?
Android TV útgáfan er einmitt 1.6.2 eða 1.6.7 beta minnir mig.
Play Store sér sjálft um að ná í rétt APK fyrir viðeigandi tæki og þetta er því allt eftir bókinni.
Svo er hægt að sækja appið á Android TV og séð hvaða version númer er virkt þar.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Þri 13. Feb 2024 20:57
af netkaffi
Komin meiri reynsla á Fire Stick? Sýnist þetta viðráðanlegustu verðin á svona Android TV thingie, hvað kallið þið annars svona græjur fyrir eldri kynslóðina, þetta er ekki sama og myndlykill er eitthvað íslenskt orð?
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Þri 13. Feb 2024 21:14
af netkaffi
Þeir eru að fara koma með AI í Max útgáfuna allavega. Virkar ekki að nota timestamps í hlekk :S
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Mið 14. Feb 2024 11:12
af dadik
Það er umhugsunarefni að það séu 4 fyrirtæki að þróa sambærilegt app til að streyma efni á íslenska markaðnum (rúv, s2/voda, síminn og nova). Svo virkar þetta misvel hjá þeim öllum.
Það gæti verið sniðugt ef þessi fyrirtæki myndu hittast í Öskjuhlíðinni og í framhaldinu yrði til GH repo þar sem "framtíðarappið" yrði til.
En samkeppniseftirlitið yrði væntanlega brjálað. Þeim tókst jú að skrifa 130 bls skýrslu um íslenska majónesmarkaðinn.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Mið 14. Feb 2024 15:35
af JReykdal
dadik skrifaði:Það er umhugsunarefni að það séu 4 fyrirtæki að þróa sambærilegt app til að streyma efni á íslenska markaðnum (rúv, s2/voda, síminn og nova). Svo virkar þetta misvel hjá þeim öllum.
Það gæti verið sniðugt ef þessi fyrirtæki myndu hittast í Öskjuhlíðinni og í framhaldinu yrði til GH repo þar sem "framtíðarappið" yrði til.
En samkeppniseftirlitið yrði væntanlega brjálað. Þeim tókst jú að skrifa 130 bls skýrslu um íslenska majónesmarkaðinn.
Allt aðrar þarfir hjá þessum fyrirtækjum. Yrði bilun að reyna að samræma þær.
Í staðinn fyrir 4 slæm öpp fengirðu eitt ógeðslega vont.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fim 15. Feb 2024 13:49
af dadik
Hvaða þarfir? Opna appið, velja efni og ýta á play? Öll streymisöpp eru að gera sama hlutinn, íslensku, Netflix, Disney, Prime, HBO, etc.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fim 15. Feb 2024 16:44
af JReykdal
dadik skrifaði:Hvaða þarfir? Opna appið, velja efni og ýta á play? Öll streymisöpp eru að gera sama hlutinn, íslensku, Netflix, Disney, Prime, HBO, etc.
Nei...sumir eru að selja aðgang að myndefni, sjónvarpsrásum, live events og aðrir ekki. Allir hafa mismunandi bakendakerfi til að höndla það. Sumir hafa textunarskyldu sem aðrir hafa ekki etc. etc.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fim 15. Feb 2024 23:07
af appel
dadik skrifaði:Hvaða þarfir? Opna appið, velja efni og ýta á play? .
Þetta er heljarinnar formúla hjá þér. Má ég fá hana að láni? Þetta gæti verið lykil-lausnin að öllu.
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fim 15. Feb 2024 23:24
af dadik
Hárrétt hjá þér, þetta er frábær lausn hvað sem kverúlantarnir segja
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fim 19. Sep 2024 16:37
af pddingo
zetor skrifaði:hefur þú skoðað stöð2 fire stick appið? virkar mjög vel hjá mér
Þarf ekki tengingin að vera hjá Vodafone til að stöðvar2 appið virki?
Re: RÚV spilari á Fire TV Stick 4K. Vesen.
Sent: Fös 20. Sep 2024 04:58
af zetor
pddingo skrifaði: