Dr Eric Berg tekur viðtal við Dr. Seheult um Meðferð og Fyrirbyggingu við Covid-2019
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Mán 20. Des 2021 20:55
af Mossi__
Ég á ekki 5G síma og hef ekki fengið Covid.
Segir þetta ekki allt sem segja þarf?
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Mán 20. Des 2021 21:00
af Stuffz
Mossi__ skrifaði:Ég á ekki 5G síma og hef ekki fengið Covid.
Segir þetta ekki allt sem segja þarf?
sorry en 5G hefur sko ekkert með Covid að gera. þetta er ekki stafrænn vírus.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Mán 20. Des 2021 23:44
af Mossi__
Jújú mikið rétt.
Enda er Covid bara hoax á meðan Big Brother er að setja ný batterí í fuglana, afþví Jeff Bezos.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Mán 20. Des 2021 23:55
af halipuz1
Mossi__ skrifaði:Jújú mikið rétt.
Enda er Covid bara hoax á meðan Big Brother er að setja ný batterí í fuglana, afþví Jeff Bezos.
Stuffs er bara botti á vegum NSA.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Þri 21. Des 2021 02:41
af jonfr1900
Þetta er bull og ég skil ekki afhverju YouTube lokar ekki á þetta.
FHBcGP1XsAMOx29.jpg (140.17 KiB) Skoðað 2389 sinnum
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Þri 21. Des 2021 06:59
af Moldvarpan
Þessi Eric Berg er kírópraktor. Hann er ekki læknir.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Þri 21. Des 2021 10:46
af JReykdal
Rugl fyrir fávísa.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Þri 21. Des 2021 11:20
af vatr9
Burtséð frá því hvort menn treysti bólusetningum þá hefur maður séð nokkuð trúverðuga sérfræðinga mæla með inntöku D vítamíns sem forvarnaraðgerð. Að skorta D vítamín og fá Covid er ekki til að hjálpa.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Þri 21. Des 2021 11:45
af Mossi__
vatr9 skrifaði:Burtséð frá því hvort menn treysti bólusetningum þá hefur maður séð nokkuð trúverðuga sérfræðinga mæla með inntöku D vítamíns sem forvarnaraðgerð. Að skorta D vítamín og fá Covid er ekki til að hjálpa.
Þeir sem eru með gervitennur eru líka mun líklegri til að deyja úr Covid.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Þri 21. Des 2021 11:45
af brain
Að skorta D vítamín yfirleitt er ekki gott.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Þri 21. Des 2021 11:46
af Viktor
Þurfum við ekki að fara að setja þetta umræðuefni undir sér grein í reglunum?
Nóg talað um þetta annars staðar, djöfull er leiðinlegt að þurfa að lesa um þetta á tölvuspjallinu sínu líka.
Re: Áhugavert Covid Viðtal
Sent: Þri 21. Des 2021 11:48
af GuðjónR
Ég reyndi að horfa á þetta en sónaði út á fyrstu mínútunum...