Síða 1 af 1

PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 20:19
af appel
Hvað ef maður myndi vilja geyma turnkassann inni í þvottaherbergi (það er gluggi fyrir loftræstingu), en leggja svo kapla um kannski 5 metra leið sem þetta er hjá mér.

Í raun er bara baðherbergi á milli þvottaherbergis og rýmisins sem ég er með tölvuna í, og gæti lagt rör undir baðkarið eða meðfram því og kaplana þar í gegn, það er bara um 180cm leið.

Maður er bara svona að spöglera um þetta, vildi allavega skoða kosti/galla. Það eru svona ýmsar ástæður fyrir þessari pælingu, aðallega skipulagsbreyting á íbúðinni þar sem þetta fyrirkomulag myndi henta betur.

Aðalkostirnir kannski sem ég er með í huga er að maður losnar við viftuhljóðið í tölvunni, losna við heita loftið sem kemur úr henni.

Þá er hugsunin að maður sé bara með display port kapal og USB kapal og svo USB höbb á borðinu (einsog ég er með bara í dag). Þetta eru einu tveir kaplarnir sem ég þyrfti.

Er hægt að fá kapla þessa leið án vandræða? Og er þetta nokkuð einhver vitleysa í mér :guy ?

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 20:26
af dadik
Það var einhver hérna sem gerði þetta fyrir nokkrum árum.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 20:33
af Diddmaster
linus er með tölvu inní skáp minnir mig og skjá og allt það hinum meginn við veggin og notar thunderbolt til að flytja skjá og allt það
nenni ekki að finna videoið

edit: er með tölvuna hinum meginn við vegginn og 5m hdmi ljós og svo 5m usb3 hef þurft að skifta út usb snúrunni og var með utanáliggjandi hljóð kort í usb og það var bölvað bras með hljóðið þangað til ég kaufti nýja usb3 og 5m tosh link snúru er með það í heimabíómagnarann núna er ég bara með lykl og mús í usb hubnum og það er gott og búið að vera það lengi

(gerði edit vara búin að gleima minni eiginn reinslu af þessu hahaha)

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 20:37
af Njall_L
Þetta ætti nú ekki að vera neitt mál svo lengi sem þú finnur kapla sem raunverulega styðja þá vegalengd sem þú þarft. Displayport staðallinn gefur ekki upp neina beina lengdartakmörkun (https://en.wikipedia.org/wiki/DisplayPort#Cable_length) en þú ættir án efa að geta fundið kapal sem hentar innan þessara vegalengda sem þú nefnir. USB ætti ekki heldur að vera neitt mál á þessum vegalengdum.

Ég var í svipuðum pælingum og þú lýsir í fyrra og endaði á að gera eftirfarandi hjá mér, allt öðruvísi lausn en þú nefnir samt sem áður:
Er með PC tölvu inni í fataskáp sem er einungis tengd við rafmagn og LAN. Á henni keyrir Parsec (https://parsec.app/) sem er low latency HD remote desktop pæling. Parsec notar screen capture á skjáinn sem tengdur er við tölvuna en þar sem ég er ekki með skjá nota ég HDMI dummy plug til að búa til fake skjá. Síðan tengist ég þessari vél úr fartölvu hvar sem er í íbúðinni og spila leiki eða vinn 3D teikningar án þess að fartölvan hendi viftunni í gang, mjög næs. Þessi lausn er mjög mobile og hentar minni vinnu ágætlega en vissulega mun ég ekki spila neina FPS leiki svona.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 20:41
af TheAdder
Linus er búinn að kynna Thunderbolt kapla frá Corning sem eru með 100m stuðning minnir mig, dýrir en virka.
https://www.corning.com/optical-cables- ... de/en.html
Góð thunderbolt dokka með powerbrick og málið er leyst snyrtilega og að mér skilst áreiðanlega.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 20:43
af Klemmi
Fer eftir því hvað þú ert að nota tölvuna í, hvaða leið maður myndi mæla með.

Ég myndi t.d. skoða hvort það dugi þér að stream-a desktoppinu í gegnum LAN-ið, og nota sem dæmi Raspberry Pi á endanum sem tengdur er við skjáinn, lyklaborðið og músina (og heyrnatól eða hátalara?).
Nota bene, þá er Raspberry Pi með HDMI, ekki DisplayPort.

Gefur auðvitað ekki alla sömu hluti og beintenging við kassann myndi gera, en á móti kemur að þú ert ekki bundinn við staðsetningu á hvorki tölvunni né skrifborðinu.

Ekki að segja að þetta sé rétt eða betri leið fyrir þig, heldur bara benda á þennan möguleika ef þú hafðir ekki spáð í honum.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 20:47
af Viktor
Myndi bara prófa að kaupa 5m DP kapal og 5m USB tengdan hub í núverandi setuppi og athuga hvort þú finnir fyrir einhverju loss/latency.

Þyrfti líklega að vera einhver ágætlega vandaður kapall, kannski ekki gott að fara í ódýrasta.

En þetta er mega sniðug lausn og maður hefur lengi pælt í þessu. Verst að maður býr í steinsteyptu húsi :fly

Ef þetta virkar vel með svona löngum köplum hjá þér eins og þetta er núna ætti ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að henda 20mm röri undir baðkarið og byrja að bora.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 21:49
af appel
Já, ætli maður kaupi ekki bara kaplana sem maður þyrfti í þetta og prófaði fyrst :D þarf ekkert að fara í neinar framkvæmdir fyrr en ég er búinn að sannreyna það.
En vil auðvitað ekki tapa neinum eiginleikum, vera með ólíðandi lagg. Vil geta spilað tölvuleiki einnig, hlustað á tónlist, etc.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 21:49
af appel
Sallarólegur skrifaði:En þetta er mega sniðug lausn og maður hefur lengi pælt í þessu. Verst að maður býr í steinsteyptu húsi :fly

Ef þetta virkar vel með svona löngum köplum hjá þér eins og þetta er núna ætti ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að henda 20mm röri undir baðkarið og byrja að bora.

Er með gips veggi, það er lítið mál að gera gat.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 23:41
af Hlynzi
Þar sem þetta er ansi stutt leið (allt undir 5-10 metrum) ætti að vera ansi auðvelt í þessum efnum. HDMI eða DP kapall væri auðvelt dæmi (Ekki kaupa allra ódýrasta kapal sem þú finnur) og USB dokka til að tengja í dót, ég myndi líka bæta við ON/OFF takka á þægilegan stað, þarft bara 2 víra í einhverjum kapli (ég myndi persónulega nota bara afgang af cat5 kapli eða hátalarasnúru)

Hef verið að íhuga svipaða hluti, losna við viftuhljóðið aðallega eða víbring frá kassanum inní annað herbergi.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Þri 07. Des 2021 23:45
af Viktor
appel skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:En þetta er mega sniðug lausn og maður hefur lengi pælt í þessu. Verst að maður býr í steinsteyptu húsi :fly

Ef þetta virkar vel með svona löngum köplum hjá þér eins og þetta er núna ætti ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að henda 20mm röri undir baðkarið og byrja að bora.

Er með gips veggi, það er lítið mál að gera gat.

Jæja. Þá þarftu bara að pæla í því hvert vatnið fer þegar baðið byrjar að leka \:D/

Ef þú ert með gifsveggi er (vonandi) búið að vatnsverja alla fleti sem geta mátt við því að þurfa að taka við vatni.

Þú vilt líklega ekki bora beint í gegnum vatnsvörn á gifsvegg. Ef þú þekkir smið, múrara, eða rafvirkja þá væri ekki vitlaust að heyra í þeim fyrst.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Mið 08. Des 2021 00:04
af appel
Sallarólegur skrifaði:

Góðir punktar, sem ég var að leitast eftir. Spyr sérfræðinga um þetta.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Fös 10. Des 2021 20:04
af Hlynzi
Bætum við að 20 mm rör væri ekki nóg ef þú villt draga snúrur í gegn með tengjunum á, HDMI tengi er 22 mm svo þú þyrftir 25-32 mm rör. Rennur eru líka ágætis kostur.

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Fös 10. Des 2021 21:58
af appel
Hlynzi skrifaði:Bætum við að 20 mm rör væri ekki nóg ef þú villt draga snúrur í gegn með tengjunum á, HDMI tengi er 22 mm svo þú þyrftir 25-32 mm rör. Rennur eru líka ágætis kostur.

hugsanlega gæti mini-displayport snúra sloppið.

Mynd

en svo þyrfti ég líka usb snúru, kannski er usb-c málið.

En ekkert að því að hafa bara stærra rör ef ég vil draga fleiri kapla :)

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Fös 10. Des 2021 23:38
af svensven
Sá að einhver var búinn að minnast á það sem Linus gerði, en hann var að uppfæra þetta hjá sér í nýju húsi og það kom video í gær.
https://youtu.be/TgRXE9mUHJc :happy

Re: PC tölvan annarsstaðar en skjár/lyklaborð/mús/etc?

Sent: Lau 11. Des 2021 00:10
af appel
svensven skrifaði:Sá að einhver var búinn að minnast á það sem Linus gerði, en hann var að uppfæra þetta hjá sér í nýju húsi og það kom video í gær.
https://youtu.be/TgRXE9mUHJc :happy

þetta er brill, en líklega svoldið dýrt :) veit ekki hvar ég fæ svona box, og líklega þarf ég ekki svona box. dp kapall og usb kapall gætu drifið þetta, er enn að mæla hvort 5 metrar dugi, gæti verið tæpt.

5 metrar drífa ekki, 6 er ansi tæpt, 7 metrar betra.