Síða 1 af 1
tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 08:26
af emil40
Ég er nú bara nokkuð sáttur við tölvuna eftir að ég uppfærði í samsung 980 pro diskinn. Var að pæla í hvað ég gæti gert næst til þess að bæta hana og datt svo sem ekkert í hug svona í fljótu bragði eruð þið með einhverjar hugmyndir ? Ég hef haft það fyrir reglu að staðgreiða alla hluti þannig að það er búið að taka slatta af tíma að byggja þessa vél upp.
Gamemax Titan Silent | Ryzen9 5900X @ 4.75 ghz | Corsair Hydro Series H100i RGB Platinum | ASRock X570 Steel Legend | G.Skill 32GB Trident Neo 3600MHz DDR4 | PowerColor Radeon RX 6800 Red Dragon 16GB | Corsair HX1200i | TCL 55" | Samsung 980 Pro NVMe PCIe M.2 1TB | Razer Mamba þráðlaus leikjamús | Jbl quantum duo | 53 tb pláss
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 09:38
af Hausinn
Hún er þegar fáranlega öflug. Sparaðu peninginn í eitthvað annað.
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 09:48
af Haraldur25
Fá alvöru leikjaskjá
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 09:52
af dabbihall
myndi fá mér annan skjá og svo bara njóta
, virkilega flott vél
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 10:44
af gutti
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 11:25
af emil40
þetta er full mikið fyrir öryrkja...
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 11:28
af emil40
dabbihall skrifaði:myndi fá mér annan skjá og svo bara njóta
, virkilega flott vél
Ég er með 55" tcl 4k sjónvarp tengt við tölvuna og nota það sem skjá. Gæti ekki hugsað mér að fara i minni skjá, en veit að góður leikjaskjár væri geðveikur. Ætla að njóta þetta er mjög öflug vél enda búið að taka langann tíma að safna fyrir öllum hlutunum
Þar sem ég staðgreiði bara.
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 11:37
af njordur9000
Ef þetta er leikjavél er skjákortið klárlega veikasti hlekkurinn. Ekkert annað þarna myndi bæta afköst í leikjum neitt að ráði, sérstaklega ekki í 4K. Verst er hvað skjákort eru viðurstyggilega dýr í dag.
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 11:39
af Hausinn
Man eftir því að sjá þennan skjá þegar ég var að skoða í tölvulistanum. Gat ekki nema hlegið að verðinu.
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 11:42
af njordur9000
Hausinn skrifaði:Man eftir því að sjá þennan skjá þegar ég var að skoða í tölvulistanum. Gat ekki nema hlegið að verðinu.
Þegar 65" LG GX OLED með 120 hz, freesync og allan pakkann er á 350þ (
https://rafland.is/product/65-oled-sjon ... -oled65gx6 ) er þetta verð einfaldlega galið. Þeir vilja tvöalt meira fyrir mun síðri skjá. Maður spyr sig hver markhópurinn fyrir þetta rugl sé eiginlega.
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 15:55
af SolidFeather
Nú græjarðu sér server fyrir þessi 53 terabæt!!!
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 18:43
af ÓmarSmith
Hvað er fólk eiginlega að geyma þegar það liggur á ekki 15, heldur 50 TB
?
Re: tölvan hjá mér
Sent: Þri 05. Okt 2021 20:17
af Moldvarpan
Gefa þeim sem að sjá um þig fallega gjöf.
Re: tölvan hjá mér
Sent: Mið 06. Okt 2021 14:52
af emil40
Moldvarpan skrifaði:Gefa þeim sem að sjá um þig fallega gjöf.
Fjárhaldskonan mín fékk fallega gjöf frá mér um daginn. Með hennar hjálp og því að vera edrú hefur þetta tekist
Ég er að detta í 6 ár edrú 19 október. Mér finnst þetta innlegg það besta sem hefur komið inn á þennan þráð. Takk kærlega fyrir það. Ég er þeim sem aðstoða mig mjög þakklátur.