Síða 1 af 1
Leiga miðað við vísitölu neysluverðs
Sent: Sun 03. Okt 2021 22:08
af hendrixx
Hefur einhver reynslu af því að leigja miðað við vísitölu neysluverðs?
Er það þá reiknað hver einustu mánaðarmót, hvernig vísitalan hefur breyst, og greitt leigu í samræmi við það þá?
Re: Leiga miðað við vísitölu neysluverðs
Sent: Sun 03. Okt 2021 23:31
af dadik
Ef þú nennir því þá er það svosem hægt. Líka hægt að reikna upp á 3 eða 6 mánaða festi.
Re: Leiga miðað við vísitölu neysluverðs
Sent: Mán 04. Okt 2021 12:20
af urban
þetta var einu sinni hjá mér, þá var það reiknað á 3 mánaða fresti
Re: Leiga miðað við vísitölu neysluverðs
Sent: Mán 04. Okt 2021 20:30
af RassiPrump
Leigði hjá Leigufélaginu Kletti áður en það varð að Almenna Leigufélaginu (sem núna heitir Alma? eða eitthvað), leigan var vísitölubundin og þá var hún reiknuð um hver mánaðarmót. Venjulega hækkaði leigan um svona 200-600kr á mánuði, einn mánuðinn hækkaði hún um 1300kall, leigði hjá þeim í sirka 3 ár, man eftir einu skipti þar sem að leigan lækkaði um 150 kall, en svo næstu mánaðarmót fór hún bara aftur að hækka.
Þannig að leigan hækkar alltaf um einhverja hundrað kalla þegar vísitalan hækkar.