Síða 1 af 1
afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Lau 31. Júl 2021 19:44
af emil40
Sælir félagar.
Ég var að afþjappa pgn skrám c.a. 560 þús. Er einhver leið til þess að auðvelda það að hún nái að vinna hraðar. Eins og þið sjáið í undirskrift þá er ég með ágætis vélbúnað. Endilega ef þið eruð með gott ráð eða forrit þá væri flott að fá að vita
Þetta tók 3,5 klst
Re: afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Lau 31. Júl 2021 20:06
af gutti
560 þús humm varstu meina gb gamli
Re: afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Lau 31. Júl 2021 20:19
af emil40
gutti skrifaði:560 þús humm varstu meina gb gamli
nei það eru 560 þús pgn skrár sem ég var að afþjappa
Re: afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Lau 31. Júl 2021 21:40
af upg8
Það gengur eitthvað voðalega illa að gera almenn afpökkunarforrit sem nýta fjölkjarna örgjörva. Voru þetta. zip skrár?
Re: afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Lau 31. Júl 2021 22:12
af emil40
upg8 skrifaði:Það gengur eitthvað voðalega illa að gera almenn afpökkunarforrit sem nýta fjölkjarna örgjörva. Voru þetta. zip skrár?
þetta voru rar skrár
Re: afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Lau 31. Júl 2021 23:21
af TheAdder
Mér skilst að 7-zip eigi að að vera flott í multithreading, en að HDD/SDD verði líklegast flöskuhálsinn í svona magni.
Re: afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Sun 01. Ágú 2021 06:26
af emil40
Ég er með Samsung 970 EVO Plus 1 TB sem eiga að vera með
Sequential Read Speed allt að 3500MB/s
Sequential Write Speed allt að 3300MB/s
Re: afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Sun 01. Ágú 2021 08:02
af Hjaltiatla
Getur prufað að nota 7zip og afþjappa skrár á annan SSD þá þarf diskurinn ekki að lesa gögn og skrifa gögn til skiptis á sama disk.
Re: afþjappa litlum skrá ( pgn )
Sent: Mið 04. Ágú 2021 02:10
af Sinnumtveir
Það sem hér er að tefja er í fyrsta lagi "Windows Defender" og lítillega Windoze sjálft sem er frá náttúrunnar hendi með skráarkerfi snigils.
Sjá hér:
https://github.com/microsoft/Windows-Dev-Performance/issues/27