Síða 1 af 1
Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Fös 05. Mar 2021 22:26
af daaadi
Hvert er best að fara með reiðhjól sem þarfnast minniháttar lagfæringa?
Er með tvö hjól sem þarf að fara yfir bæði geymd í garðkofa seinustu ár smá rið, bremsur og gíra, + skipta um bremsuvír á öðru hjólinu.
Taka reiðhjólaverkstæði við týpum hjólum sem þeir eru ekki að selja og veit einhver hvað svona kostar í dag?
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Fös 05. Mar 2021 22:46
af einarhr
Alltaf hjá þessum meistara, var búin að fara með hjólið mitt annað sem dæmdu drifið ónýtt en það var bara tannhjólið sem var orðið slitið
https://www.reidhjolaverzlunin.is/
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Fös 05. Mar 2021 22:52
af Televisionary
Ef þetta eru mjög ódýr hjól er ekki víst að verkstæðisheimsókn borgi sig sérstaklega ef um stærri fyrirtæki er að ræða.
Prófaðu að heyra í Hugi Jónsson, s. 888 2896 hann er með hjólaverkstæði í Hafnarfirðinum og getur örugglega gefið þér einhverja verðhugmynd. /
https://www.facebook.com/hjolaverkstaediEinnig er örugglega gott að eiga við Berlín eins og Einar nefnir hér að ofan. Ég fékk svaka góða þjónustu þar um daginn þrátt fyrir að hafa sagt að ég væri ekki að fara að kaupa neitt.
Ég er alveg ótengdur Huga, ég gaf honum eitthvað af dóti á Facebook um daginn og hann sagðist vera að opna verkstæði.
daaadi skrifaði:Hvert er best að fara með reiðhjól sem þarfnast minniháttar lagfæringa?
Er með tvö hjól sem þarf að fara yfir bæði geymd í garðkofa seinustu ár smá rið, bremsur og gíra, + skipta um bremsuvír á öðru hjólinu.
Taka reiðhjólaverkstæði við týpum hjólum sem þeir eru ekki að selja og veit einhver hvað svona kostar í dag?
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Fös 05. Mar 2021 23:38
af jonsig
Best að gera þetta sjálfur. Þá almennilega.
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Lau 06. Mar 2021 01:53
af einarhr
jonsig skrifaði:Best að gera þetta sjálfur. Þá almennilega.
Sumir bara kunna það ekki og því er mjög gott að hafa einstaklinga til að gera það gegn gjaldi ef maður getur það. Veit að þetta er ekki lögvernduð grein a'ð laga hjól en það væri fáranlegt að ég færi að fika í rafmagni heima hjá mér þar sem það er "Best að gera þetta sjálfur . Þá almennilega."
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Lau 06. Mar 2021 02:07
af appel
Líklega best að kaupa bara nýtt reiðhjól frá kína frekar en að láta einhvern íslending smyrja gírana, þannig er kostnaðurinn.
100 þús fyrir flott nýtt reiðhjól, 20 þús fyrir að láta yfirfara gamalt reiðhjól. Þannig er raunveruleikinn.
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Lau 06. Mar 2021 10:10
af einarhr
appel skrifaði:Líklega best að kaupa bara nýtt reiðhjól frá kína frekar en að láta einhvern íslending smyrja gírana, þannig er kostnaðurinn.
100 þús fyrir flott nýtt reiðhjól, 20 þús fyrir að láta yfirfara gamalt reiðhjól. Þannig er raunveruleikinn.
Ég sé ekki eftir þessum 17 þúsund sem það kostaði að skipta um tannhjól og yfirfara það. Ég er með svolítið sérstakt hjól og alveg þess virði að gera við það, sambærilegt hjá á myndinni
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Lau 06. Mar 2021 10:24
af jonsig
Útlitið var ekki bjart þegar ég skrifaði
þennanpóst í fyrra. Ég er búinn að spara mér örugglega tugi þúsunda með að gera þetta sjálfur og panta parta og dekk að utan.
Ég og konan hjólum allt árið í öllum veðrum og ef ég gæti ekki lagað þau sjálfur væri þetta ekki auðvelt.
Ég er ekki í einhverjum flóknum viðgerðum heldur bara hreinsa keðju,smyrja, stilla gíra og laga keðjur. Að skipta um kasettu er frekar stupid líka, ég hef bara gert það til að hreinsa hana almennilega. Þessar dýru "þjónustu yfirhalningar" eru bara BS. Þetta eru bara common sens athuganir, þá aðallega litast um eftir einhverjum skemmdum í stellinu. Það ætti að vera nóg að taka hjólin af og nota augun til að sjá hvort það sé eitthvað óeðlilegt slit í gangi eða eitthvað farið að gliðna.
Ég fékk mér ódýran hjólastand sem ég festi á vegg af ebay á 7k innflutt + 8-10k tool set af ebay sem er yfirdrifið nóg.
500kr dekkja viðgerðar kit í verkfærahúsið eða djönk sölunni þarna í smáralindinni.. Nóg til að laga 10 göt á slöngu og fylgja með spennur til að ná pain in the ass dekkjum af.
Þetta er sársaukafullt í fyrsta skiptið (30min) . 3 mánuðum seinna geri ég þetta hjólandi. (gíra stilling)
https://www.youtube.com/watch?v=UkZxPIZ1ngY
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Lau 06. Mar 2021 10:32
af jonsig
PS
þetta er eins og tölvuhobbýið fyrir mér, það varð ekki alvöru skemmtilegt fyrr en maður fór að gera custom hluti eins og vatnsloopur, breyta kössunum,Ryzen dram calculator og tweeka fan curves og eitthvað annað random rugl
Mér er alveg sama þótt ég sé ekki með RTX3090 eða 6900XT hitt er svo mikið skemmtilegra að mínu mati.
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Sun 06. Jún 2021 18:59
af jonsig
Allavegana sé ég ekki eftir að hafa lært að gera þetta sjálfur, hinsvegar ætla ég er endurvinna þráðinn aðeins með að spyrja hvernig er best að snúa sér í keðju útskiptiverkfærum? Fór í örninn og ofc ekki til. Konan fékk lánað hjólið mitt og braut afturskiptirinn, og ég skipti um hann sem var auðvelt, hinsvegar 2 vikum seinna fer svo keðjan. ehh.
Hjóla alla virka daga ársins í vinnunna
Svo keðjan er komin á 3500km síðan síðasta sumar.
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Sun 06. Jún 2021 20:07
af mjolkurdreytill
Varstu að leita að þessu
https://orninn.is/product/kedjuthvinga-6-10g/eða þessu?
https://orninn.is/product/unior-kedjutong/Ef töngin er uppseld í Erninum er hún örugglega til annarsstaðar.Virkar líka að nota skóreim ef þú þarft að losa keðjulás.
Keðjuþvingan er ekki uppseld á landinu, ef þú áttir við hana.
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Sun 06. Jún 2021 20:11
af jonsig
Cul, hún er greinilega restocked
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Mán 07. Jún 2021 12:28
af gnarr
jonsig skrifaði:Að skipta um kasettu er frekar stupid líka, ég hef bara gert það til að hreinsa hana almennilega.
Algjörlega ekki. Ef keðjan er orðin of löng þá er hún búin að skemma kasettinua þína og hún mun aldrei vera áreiðanlega í skiptingum. Ef fólk mælir ekki keðjuna reglulega og passar að skipta henni út um leið og hún er komin í 0.5% (>=11 gíra) til 0.75% (<10 gíra), þá getur verið nauðsinlegt að skipta um kasettu.
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Mán 07. Jún 2021 14:44
af GuðjónR
gnarr skrifaði: Ef keðjan er orðin of löng….
Nú spyr ég eins og fávís kona, lengjast keðjur?
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Mán 07. Jún 2021 15:35
af Jón Ragnar
GuðjónR skrifaði:gnarr skrifaði: Ef keðjan er orðin of löng….
Nú spyr ég eins og fávís kona, lengjast keðjur?
Tognar á henni já með notkun
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Mán 07. Jún 2021 16:08
af gnarr
Og svo gengur þetta reyndar líka í hina áttina. Ef þú ert búinn að vera að nota handónýta keðju þannig að kasettan er orðin ónýt og þú skiptir um keðju og nótar gömlu kasettuna, þá skemmist keðjan margfalt hraðar.
Það getur hreinlega borgað sig að skipta um keðjuhring, kasettu og keðju allt á sama tíma ef þetta er búið að eyðast mikið.
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Mán 07. Jún 2021 19:26
af jonsig
gnarr skrifaði:jonsig skrifaði:Að skipta um kasettu er frekar stupid líka, ég hef bara gert það til að hreinsa hana almennilega.
Algjörlega ekki. Ef keðjan er orðin of löng þá er hún búin að skemma kasettinua þína og hún mun aldrei vera áreiðanlega í skiptingum. Ef fólk mælir ekki keðjuna reglulega og passar að skipta henni út um leið og hún er komin í 0.5% (>=11 gíra) til 0.75% (<10 gíra), þá getur verið nauðsinlegt að skipta um kasettu.
Já, sry . Meinti að það væri frekar auðvelt að skipta um kasettuna
PS, ef konan mín hefur verið á hjólinu, þá er búið að strekkjast á stellinu líka og felgurnar orðnar epsiloid
Re: Hvar er best að láta gera upp reiðhjól
Sent: Mán 07. Jún 2021 22:29
af machinefart
Jón Ragnar skrifaði:GuðjónR skrifaði:gnarr skrifaði: Ef keðjan er orðin of löng….
Nú spyr ég eins og fávís kona, lengjast keðjur?
Tognar á henni já með notkun
https://www.technicallytom.com/cycling- ... 20replaced.
Tæknilega séð ekki beint
En já slitin keðja getur svo eytt tannhjólunum hraðar (stækkar götin) sem svo slítur næstu keðju hraðar ef maður skiptir um keðju.