Síða 1 af 1
Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Mið 27. Jan 2021 20:47
af osek27
Ég var aðeins að pæla úti hlutabréfa síður, ég er að nota Plus500 og mér finnst það glatað, það er svo lítið inna því að það er ekki fyndið, Gamestop, Nokia og fyrirtæki sem heitir Naked er að springa til tunglsins og það er ekki inna plus500. Ég vil skipta um platform, Etoro býður uppá meira og það er líklegast síðan sem eg mun prófa þótt mér líkar ekki við uppsetningu á henni
Hvað notið þið?
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Mið 27. Jan 2021 20:53
af blitz
Saxo
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Mið 27. Jan 2021 20:55
af stinkenfarten
Sure, skip this ad. Just like how you skipped out on buying Amazon stock, Google and Apple. Hef ekki heyrt mikið en Etoro sýnist vera "alveg fínt". veit ekki um fleiri platform því Plus500 og eToro eru þau einu sem eru að trufla mig á Youtube. Gott að gera smá research.
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Fim 28. Jan 2021 08:29
af Jón Ragnar
Etoro er fínt fyrir svona amateurs
Saxo er flóknara því það þarf að millifæra beint á þá úr bankanum en ekki beint af kredit korti eða paypal á Etoro
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Fim 28. Jan 2021 08:42
af blitz
Jón Ragnar skrifaði:Etoro er fínt fyrir svona amateurs
Saxo er flóknara því það þarf að millifæra beint á þá úr bankanum en ekki beint af kredit korti eða paypal á Etoro
Myndi ekki kalla það flóknara - þú millifærir bara úr heimabanka í þeirri mynt sem trading account hjá þér er í og færð hana inn á Saxo eftir 1(EUR) til 2(USD) daga.
Mæli með Saxo - allir sem ég þekki eru að nota það.
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Fim 28. Jan 2021 09:14
af Jón Ragnar
blitz skrifaði:Jón Ragnar skrifaði:Etoro er fínt fyrir svona amateurs
Saxo er flóknara því það þarf að millifæra beint á þá úr bankanum en ekki beint af kredit korti eða paypal á Etoro
Myndi ekki kalla það flóknara - þú millifærir bara úr heimabanka í þeirri mynt sem trading account hjá þér er í og færð hana inn á Saxo eftir 1(EUR) til 2(USD) daga.
Mæli með Saxo - allir sem ég þekki eru að nota það.
Flott, Ég var ekki búinn að kynna mér það nógu mikið. eToro er mjög aðgengilegt og þæginlegt
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Fös 29. Jan 2021 22:31
af osek27
Það verða örugglega einhverjir ósattir með þessa spurningu en þarf maður ekki að redda eitthverju 3rd party Visa korti til að sleppa við skattinn með hlutabréf?
Annað ég er nú voðalítið í því að reyna komast framhja svona lögdæmi og borga bara skattinn og allt sem þarf. Er ekki einhver leið til að borga þennan skatt strax þegar maður fær hagnað af þessu inná reikninginn sinn. Ég er ekki að fíla það að þurfa að bíða í heilt ár eftir skattskýrslu til að borga skattinn af þessu. Vil bara borga hann strax og þurfa ekki að stressa mig af þessu og geta eytt þessum pening sem kom úr þessu vesenlaust
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Fös 29. Jan 2021 22:39
af mjolkurdreytill
osek27 skrifaði:Það verða örugglega einhverjir ósattir með þessa spurningu en þarf maður ekki að redda eitthverju 3rd party Visa korti til að sleppa við skattinn með hlutabréf?
Annað ég er nú voðalítið í því að reyna komast framhja svona lögdæmi og borga bara skattinn og allt sem þarf. Er ekki einhver leið til að borga þennan skatt strax þegar maður fær hagnað af þessu inná reikninginn sinn. Ég er ekki að fíla það að þurfa að bíða í heilt ár eftir skattskýrslu til að borga skattinn af þessu. Vil bara borga hann strax og þurfa ekki að stressa mig af þessu og geta eytt þessum pening sem kom úr þessu vesenlaust
Mér vitandi þarftu ekki að borga skatt af "meintum" hagnaði. Þ.e. ef þú átt bréf sem hækkar í virði og þú heldur áfram að eiga bréfin, þá ættirðu ekki að þurfa að greiða skatt af þeim. Ef þú hinsvegar selur bréfin og innleysir hagnaðinn, þá þarftu að greiða skatt af innleystum hagnaði.
https://www.rsk.is/einstaklingar/fjarma ... uhagnadur/
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 09:11
af pattzi
Það er nú bara skattur ef hagnaður er yfir 300þ minnir mig...
En ég er á sama leveli er reyndar með alltof mikið af pening í bitcoin sem ég vill ekki selja nema verði 500% hækkun á verði eins og það stendur akkurat núna.... En vill líka borga skatt strax en það er ekki hægt millifærði t.d 200þ inna skattinn um daginn það millifærðist aftur sjálfvirkt eftir nokkra daga....á mig aftur....
En þetta er tala sem ég veit ég mun skulda vegna það voru þrjú þrep árið 2020 ekki tvö eins og 2019....og er í tveim störfum og tók út séreignasparnað og reiknaði að eg mun skulda 200þ nuna þegar geri skattaskýrsluna í mars... En verður væntanlega bara dregið af laununum í júní
Annars hefur Etoro verið tregir að samþykkja mig einhverrahluta vegna......nema borgi 2000$ en sendi samt öll gögn en kemur bara pending.... Langaði einmitt að reyna kaupa þarna en heyrði svo að þessi bref sem eru að hækka mest að þu getir ekki selt þau.....var einmitt að spa i að reyna gambla aðeins profa setja háa upphæð i von um að hækki um 200-700%
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 09:22
af blitz
osek27 skrifaði:Það verða örugglega einhverjir ósattir með þessa spurningu en þarf maður ekki að redda eitthverju 3rd party Visa korti til að sleppa við skattinn með hlutabréf?
Annað ég er nú voðalítið í því að reyna komast framhja svona lögdæmi og borga bara skattinn og allt sem þarf. Er ekki einhver leið til að borga þennan skatt strax þegar maður fær hagnað af þessu inná reikninginn sinn. Ég er ekki að fíla það að þurfa að bíða í heilt ár eftir skattskýrslu til að borga skattinn af þessu. Vil bara borga hann strax og þurfa ekki að stressa mig af þessu og geta eytt þessum pening sem kom úr þessu vesenlaust
Sé ekki vandamálið - stofnaðu bara reikning (þess vegna bundinn í 30 daga - þá er minni freistni að fikta í þessum pening) og taktu 22% af söluhagnaði hlutabréfa og leggðu til hliðar.
Vek þó athygli á að þú getur hagnast um allt að 300.000 (vaxtatekjur, söluhagnaður og arður) á skattárinu 2021 án þess að þú borgir skatt af því - frítekjumarkið er 300.000 fyrir einstaklinga.
Frítekjumark er 300.000 kr. samtals á manni, 600.000 kr. fyrir hjón og á annars vegar við vaxtatekjur og hins vegar tekjur af hlutabréfaeign í formi arðs og söluhagnaðar í félögum skráðum á skipulegum verðbréfamarkaði eða markaðstorgi fjármálagerninga.
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 10:14
af osek27
jaaaaa eg var mjög heppinn með þetta og eg er komin laaaaaangt yfir 300k i hagnað svo ég fæ ekkert að sleppa við þennan skatt
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 10:37
af blitz
osek27 skrifaði:jaaaaa eg var mjög heppinn með þetta og eg er komin laaaaaangt yfir 300k i hagnað svo ég fæ ekkert að sleppa við þennan skatt
Þá tekur þú bara 22% af (söluhagnaði - 300.000) og leggur til hliðar..
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 15:53
af CendenZ
ibkr og td ameritrade
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 19:58
af AntiTrust
Saxo Bank fyrir erlendar langtímafjárfestingar, Plus500 fyrir high margin daytrades og svo kaupi ég íslensk bréf og sjóði í gegnum heimabankann minn hjá Arion.
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 20:25
af SolidFeather
Er ekki best að nota þetta til að græja proof of residence fyrir Saxo?
https://www.skra.is/umsoknir/eydublod-u ... 5056851dd2
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 20:37
af pattzi
Hef verið að nota
http://www.myntkaup.is algjör snilld fyrir bitcoin
https://www.bitstamp.net/ref/iLWisuqdJKpAjxkV/ og svo þessa síðu í nokkur ár einhvað smá ... Aldrei vesen og ef þið skráið ykkur í gegnum þennan link í dag og á morgun þá getið þið fengið bónusa minnir mig og ég fæ 50$ bónus veit ég ef þið gerið fyrsta tradið
Have your friends been asking you about crypto lately?
Bring a friend to Bitstamp and you both get a $50 trading fee bonus!
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 30. Jan 2021 21:04
af pattzi
AntiTrust skrifaði:Saxo Bank fyrir erlendar langtímafjárfestingar, Plus500 fyrir high margin daytrades og svo kaupi ég íslensk bréf og sjóði í gegnum heimabankann minn hjá Arion.
Lentiru í veseni með að staðfesta kortið hjá plus500??? þeir vilja fá mynd af því og eða kreditkortayfirlit en hafna alltaf kreditkortayfirlitnu
Búinn að prófa önnur kort í öðrum bönkum einnig en þeir samþykkja bankareikningsyfirlit af þeim reikning sem ég ætlaði að láta leggja inná ef ég sel ..
Edit : Reddaðist með því að taka screenshot af upplýsingar um kort en yflirlitið sem kom í rafræn skjöl var ekki að virka whatta hell
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Sun 31. Jan 2021 11:43
af Tesli
Ég er ekki enn nær því á hvaða platform ég ætti að prófa eftir að hafa googlað nokkrar þjónustur.
Þegar ég googla Saxo að þá verið að gagnrýna þá fyrir háa gjaldskrá, sumir segja að gjaldskráin hafi verið hækkuð nýlega.
0.75% currency conversion fee for each transaction
Comission fees: 4USD per buy/sell
Platform fees: 0.12% per year
Er þetta bara standardinn á gjöldum hjá öllum þessum þjónustum?
Er einhver til í að útskýra þetta aðeins betur
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Sun 31. Jan 2021 15:21
af Húsbíll
revolut er ekki mjög gott fyrir mikið af fjárfestingum en er mjög fínt ef þú ert bara að kaupa GME.
revolut eru með 0% commision eins og etoro og mjög lág currency conversion fees.
held að ég myndi annars frekar mæla með etoro fyrir alvuru fjárfestingar þar sem þeir hafa allt þetta og getur copyað portfolio.
þarft hinsvegar að láta inn 200$ til að getað fjárfest á etoro held ég.
revolut eru btw heldur ekki en búnir að blocka kaup á GME neitt annað en etoro þannig þeir eru nokkuð traustir þar.
p.s revolut er eiginlega bara gott í síma etoro er gott allstaðar
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Mán 01. Feb 2021 16:12
af Zethic
pattzi skrifaði:Hef verið að nota
http://www.myntkaup.is algjör snilld fyrir bitcoin
https://www.bitstamp.net/ref/rasshaus/ og svo þessa síðu í nokkur ár einhvað smá ... Aldrei vesen og ef þið skráið ykkur í gegnum þennan link í dag og á morgun þá getið þið fengið bónusa minnir mig og ég fæ bónus veit ég ef þið gerið fyrsta tradið
Have your friends been asking you about crypto lately?
Bring a friend to Bitstamp and you both get a trading fee bonus!
búúú á REF link.
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Mið 03. Feb 2021 09:06
af Hallipalli
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Fim 04. Feb 2021 11:34
af pattzi
Zethic skrifaði:pattzi skrifaði:Hef verið að nota
http://www.myntkaup.is algjör snilld fyrir bitcoin
https://www.bitstamp.net/ref/rasshaus/ og svo þessa síðu í nokkur ár einhvað smá ... Aldrei vesen og ef þið skráið ykkur í gegnum þennan link í dag og á morgun þá getið þið fengið bónusa minnir mig og ég fæ bónus veit ég ef þið gerið fyrsta tradið
Have your friends been asking you about crypto lately?
Bring a friend to Bitstamp and you both get a trading fee bonus!
búúú á REF link.
Haha okey.... Ég var nú bara að byrja þarna og þeir eru að bjóða upp á þetta á svosem bara mjög lítið af bitcoin þarna virði 60$ það var einhver á annaðhvort fire grúbbu eða etoro sem var með svona ref link ég hef ekkert vit á þessu þannig séð nema bara verið að braska með bitcoin í nokkur ár.... og allskonar drasl en maður hefur nú ekki grætt mikið þannig séð....
quote="Hallipalli"]Er þetta ekki svoltið há þóknun?
https://hjalp.myntkaup.is/article/6-gjaldskra-myntkaupa[/quote]
Lagði einmitt inn 90.000 og það var 85.000 og þarna kemur skýringin fann enga verðskrá 29 jan allavega....
Re: Hvaða trading platform nota vaktarar?
Sent: Lau 06. Feb 2021 14:09
af stebbio
Hvernig er það? Ef að eg er með pening inn á etoro og ætla að koma honum yfir á saxo. Hvetnig er best að gera það? Þarf eg að setja hann inn a islenskan reikning fra etoro og svo millifæra aftur a saxo? Er eg þa að borga slatta i gjöld? Þekkið þið þetta?