Síða 1 af 1
Að skipta um púða í QC 35
Sent: Sun 24. Jan 2021 10:46
af littli-Jake
Púðarnir í heyrnatólunum mínum eru orðnir vel slappir. Þau eru líka farin að detta mun meira af mér.
Er eitthvað vit í því að kaupa sett og skipta um? Er það mikið mál?
Re: Að skipta um púða í QC 35
Sent: Sun 24. Jan 2021 10:50
af Squinchy
Mjög einfalt, til hjá origo á eitthvern 5000.kr, vel þess virði vs það að spara sér þúsara með aftermarket drasli
Re: Að skipta um púða í QC 35
Sent: Sun 24. Jan 2021 11:00
af vesley
Ég keypti hjá Origo nýja púða, ekkert mál að skipta um og alveg þess virði.
Re: Að skipta um púða í QC 35
Sent: Sun 24. Jan 2021 12:07
af MarsVolta
Hef skipt um púða í QC35 þó nokkuð oft(mismunandi heyrnatól). Þetta tekur nokkrar mínútur og er algjörlega þess virði.
Re: Að skipta um púða í QC 35
Sent: Sun 24. Jan 2021 12:17
af Snorrlax
https://verslun.origo.is/QuickSearch?ca ... BA%C3%B0arLinkur hjá origo á púða. Er mjög einfalt og getur meira að segja beðið þau í móttökuni á Köllunarklettsvegi 8 um að hjálpa þér ef þú vilt. Þau hafa gert þetta slatta eða einhver af verkstæðinu lítur niður. Hef skipt um hundruðir púða á nákvæmlega þessum tólum. Youtube hefur líka góð myndbönd um að skipta um púðana ef þú ert eitthvað efins
Re: Að skipta um púða í QC 35
Sent: Sun 24. Jan 2021 17:30
af littli-Jake
Menn eru greinilega sammála í þessu máli. Skelli mér origo