Síða 1 af 1

Big Sur uppfærslu vesen á Macbook Air

Sent: Þri 29. Des 2020 16:53
af ColdIce
Daginn

Systir mín ætlaði að uppfæra tölvuna og fékk þá bara villu. Ég sá að hún er vegna þess að það er ekki nægt pláss á disknum. En nú fer hún alltaf beint í update assistant og vill reyna aftur og aftur og kemst ekki á desktop. Það er haugur af skólagögnum í henni svo besta leiðin væri ef hægt er að stöðva uppfærsluna og reverta en auðvitað tekur hún aldrei backup..

Kannast einhver við þetta vandamál og getur leiðbeint mér?

Fyrirfram þakkir.

Re: Big Sur uppfærslu vesen á Macbook Air

Sent: Þri 29. Des 2020 17:02
af SolidFeather
Nærðu að starta vélinni og halda inni CMD + R til að komast inní macOS recovery tool? Þar ætti að vera hægt að velja startup disk í Apple Menu sem mögulega leysir þetta.

Re: Big Sur uppfærslu vesen á Macbook Air

Sent: Þri 29. Des 2020 17:07
af ColdIce
SolidFeather skrifaði:Nærðu að starta vélinni og halda inni CMD + R til að komast inní macOS recovery tool? Þar ætti að vera hægt að velja startup disk í Apple Menu sem mögulega leysir þetta.

Er einmitt þar en ekkert gerist. Snýst bara loading iconið
0FF5EE53-CE22-4083-B088-001F3182CA87.jpeg
0FF5EE53-CE22-4083-B088-001F3182CA87.jpeg (3 MiB) Skoðað 478 sinnum