Síða 1 af 1

Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 09:58
af skari10
Sælir ég var að sækja um vinnu hja Heimakstri https://www.facebook.com/heimakstur
Er einhver sem þekkir þetta fyrirtæki eða þekkir einhvern sem vinnur þarna eða vann þarna. Hef aldrei heyrt um þetta og finn ekkert um þetta.
Vil vita hvort þetta sé traust til að vinna í því þeir eru að byðja um að vera sendill á þínum eigin bíl.
Á ég að vera eitthvað stressaður yfir þessu ef ég fæ vinnu þarna???

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 10:05
af GullMoli
Mér finnst gífurlega spes að ætlast til þess að starfsfólk noti sinn eigin bíl, nema þú sért ráðinn sem verktaki.

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 10:08
af skari10
jáá fannst það líka spes. Líka ekki rosa proffessional auglýsing hjá þeim á alfred, 1 dag í umsagnarfrest https://www.alfred.is/starf/sendill-3

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 13:27
af skari10
enginn sem þekkir fyrirtækið?

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 13:30
af Hjaltifr123
Þekki ekki þetta fyrirtæki en ég myndi aldrei nota eigin bíl í eitthvað svona. Þyrftu þá að borga aaansiii góð laun svo að það borgi sig.

Fann þráð um þetta frá 2012 ef þú hefur áhuga viewtopic.php?f=9&t=46594

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 13:38
af DaRKSTaR
eins og þeir auglýsa ódýrara en þú heldur, semsagt greiða lægstu möguleg laun og þú átt að slíta út eigin bíl í þetta allt svo þeir græði meira.

myndi skoða þetta ef þeir eru að bjóða þér 700-800 þúsund í laun á mánuði.

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 16:42
af ArnarF
Ekki myndi ég útvega vinnuveitandanum mínum minn einkabíl þegar viðskiptamódel fyrirtækisins gegnur eingöngu út á þetta, svipað og að koma með þínar eigin matvörur að heiman til þess að elda á veitingarstað sem almennur starfsmaður.

Hinsvegar eins og nefnt var með launin, mjög há laun myndu vega á móti, þeas reiknað yrði aukalaun fyrir mögulegt viðhald á bílnum, slit á dekkjum, bensínkostnaður, kílómetraakstur vegna aksturs, tryggingar osf osf sem mér finnst mjög ólíklegt í þessu tilfelli.


Varðandi spurningu þína um þetta fyrirtæki þá er símanúmerið sem þeir gefa upp á Facebook síðunni sinni tengt bókaútgáfunni Crymogea en það er í eigu Kristjáns Bjarka Jónassonar bókaútgefanda og rithöfundar, meira veit ég ekki.

https://1819.is/bokautgafan-crymogea

https://www.rsk.is/fyrirtaekjaskra/leit ... 6405071950

https://www.mbl.is/matur/frettir/2020/0 ... sendingar/

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 16:49
af vikingbay
úff, ég þekki þetta ekki en ég myndi fara mjög varlega í þetta ef þú þarft að nota þinn eigin bíl..
Frekar margt sem þarf að huga að og hafa á hreinu

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 16:54
af oliuntitled
Ef þú ákveður að go for it að fáðu þér þá akstursbók og skráðu hvern einasta km sem þú keyrir fyrir þá. (ekki gleyma að merkja aksturinn ákveðnum verkum/pöntunum svo það fari ekki á milli mála af hverju þessir km voru eknir.)

Þú ættir að eiga rétt á því að fá greitt km gjald fyrir hvern ekinn km á þínum einkabíl ef það er í erindagjörðum fyrir fyrirtækið sem þú vinnur hjá.

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 18:45
af MrIce
Þetta lúkkar eins og allgjör skítabúlla ef þeir ætlast til að þú notir eigin bíl... Ég myndi persónulega sækja um hjá Aha.is frekar en þeim.

Akstursbók, skrifa hvern einn og einasta km og fá uppáskrifað strax í byrjun (ekki bara word of mouth) að þeir borgi x per km. Ég hef brennt mig á að treysta word of mouth með svona

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Fös 13. Nóv 2020 20:12
af mattinn
Las þetta svona þrisvar sinnum sem "Þekkir einhver fyrirtækið Heimskastur"

Ég var farinn að pæla í hvernig vörur þeir væru með... Eflaust eitthvað fyrir mig :woozy #-o

Re: Þekkir einhver fyrirtækið Heimakstur

Sent: Lau 14. Nóv 2020 22:16
af skari10
já ég held ég sleppi þessari vinnu og finn mér eitthvað annað