Rín er með Crown hljóðkerfismagnara.
https://www.rin.is/index.php?option=com_virtuemart&view=category&virtuemart_category_id=64Í hvað ætlar þú að nota þetta? Hljóðkerfismagnarar eru oftast mjög öflugir (Class D) en eru oft með viftum og eru meira "crude" en hefðbundnir hifi kraftmagnarar. Í heimahús hafa þeir helst verið notaðir við heimasmíðaða bassahátalara. En í sjálfu sér ekkert að þeim ef þú ert fyrst og fremst að leita efir aflinu.
Ef þú ert að spá í hljómtækjum (hifi) þá hafa NAD kraftmagnarar fengist í Heimilistækjum.
Það er lítil búð í Hafnarfirðinum sem heitir Norðurljósa-hljóðtækni. Þeir eru með mörg góð merki, m.a. Cambridge Audio
http://nlh.is/.
Önnur lítil búð er Stereo.is
https://stereo.is/..og auðvitað Hljómsýn:
https://hljomsyn.com/