Síða 1 af 1

Viðurkennd verkstæði sem gera við Samsung síma?

Sent: Fös 04. Sep 2020 13:34
af GuðjónR
Er þetta virkilega eina viðurkennda fyrirtækið sem gerir við Samsung farsíma á Íslandi?
https://tvr.is/
https://samsungmobile.is

Re: Viðurkennd verkstæði sem gera við Samsung síma?

Sent: Fös 04. Sep 2020 13:45
af Roggo
GuðjónR skrifaði:Er þetta virkilega eina viðurkennda fyrirtækið sem gerir við Samsung farsíma á Íslandi?
https://tvr.is/
https://samsungmobile.is


Stemmir.

Re: Viðurkennd verkstæði sem gera við Samsung síma?

Sent: Fös 04. Sep 2020 13:55
af GuðjónR
Er einhver Vaktari sem þekkir til innanbúðar hjá þeim og getur reddað skjáskiptum samdægurs?
Finnst vika of langur biðtími. :-#

Re: Viðurkennd verkstæði sem gera við Samsung síma?

Sent: Fös 04. Sep 2020 20:13
af gotit23
eru ekki viss í öllu?

Re: Viðurkennd verkstæði sem gera við Samsung síma?

Sent: Fös 04. Sep 2020 21:52
af GuðjónR
gotit23 skrifaði:eru ekki viss í öllu?
Viss senda símana á tvr.is

Fyrst voru það sumarfríin..
Samsungmobile.is skrifaði:Viðskiptavinir athugið!
Vegna sumarfría mun bíðtími á verkstæði okkar vera lengri en þið eigið að venjast hjá okkur.
Fram undir miðjan ágúst mega viðskiptavinir búast við að biðtími geti verið allt að 7 dagar.

En núna er covid eitthvað að trufla...
Samsungmobile.is skrifaði:Viðskiptavinir athugið!
Vegna sumarfría og varúðarráðstafana vegna Covid-19 mun bíðtími á verkstæði okkar vera lengri en þið eigið að venjast hjá okkur.
Fram undir miðjan september mega viðskiptavinir búast við að biðtími geti verið allt að 7 dagar.

Hefði svo sem verið til í að borga flýtimeðferðargjaldið áður en þeir hækkuðu það úr 5.900 í 9.000 um daginn, hefði það þýtt að fá símann samdægurs en að fara úr 7 dögum í 3 ekki beint 9.000.- kr. virði.
Icephone gerir þetta á 90 mínútum en þeir eru ekki „viðurkenndir“ og því treysti ég þeim ekki.

Re: Viðurkennd verkstæði sem gera við Samsung síma?

Sent: Þri 15. Sep 2020 23:13
af normanjk
Tæknimaður TVR hér.

Vegna covid og orlofa tæknimanna og jókst biðtíminn hjá okkur yfir sumarið.
Nú erum við fullmannaðir og biðtíminn fer sífellt minnkandi.

Re: Viðurkennd verkstæði sem gera við Samsung síma?

Sent: Lau 19. Sep 2020 00:35
af natti
normanjk skrifaði:Tæknimaður TVR hér.

Vegna covid og orlofa tæknimanna og jókst biðtíminn hjá okkur yfir sumarið.
Nú erum við fullmannaðir og biðtíminn fer sífellt minnkandi.


Bíddu, ha, eru TVR byrjaðir að þjónusta einstaklinga beint? Eða þarf maður ennþá að fara í gegnum Viss/NOVA/Símann/etc/?

Á mér mjög minnisstætt og skemmtilegt atvik(~2012) þegar starfsmaður TVR neitaði að tala við mig "in person" því "TVR þjónustar ekki einstaklinga, finndu símabúð til að tala við og þeir tala við okkur, bless!" og tók svo silent treatment á mig, en átti ekki í neinum vandamálum með að ræða við mig í gegnum síma er ég stóð bara úti á bílastæðinu og horfði á hann í gegnum glerið ræða við mig í símann. Örlítið súrrealískt.

Hef ekki verið með Samsung síðan þá... (Keypti símann erlendis, gat því ekki fengið þjónustu á Íslandi, henti 6 mánaða gömlum Samsung Galaxy S2.)