Síða 1 af 1

Vatnsverja eScooter

Sent: Þri 11. Ágú 2020 14:31
af Bengal
Sælir

Ég er að fara vatnsverja rafmagnshlaupahjól og vantar mig ráðleggingar varðandi hvaða efni skal nota til þess :-k

Hef verið að googla þetta aðeins og þar er verið að tala um Liquid Tape - hvar fæst svoleiðis?

Fann þetta á Amazon en algjört bras að flytja þetta inn því þetta er á útflutnings bannlista í BNA

Re: Vatnsverja eScooter

Sent: Þri 11. Ágú 2020 14:42
af jonsig
Nota sílikón feiti á alla þéttikannta. Ef einhver segir vaselín eða eitthvað álíka sem er unnið er úr olíu, þá ertu að ræða við óvita.

Re: Vatnsverja eScooter

Sent: Þri 11. Ágú 2020 14:55
af Bengal
jonsig skrifaði:Nota sílikón feiti á alla þéttikannta. Ef einhver segir vaselín eða eitthvað álíka sem er unnið er úr olíu, þá ertu að ræða við óvita.


Já er með það á efna listanum, blessaða siliconið.

Nota ég það líka til að vatnsþétta bolta og skrúfur ?