Síða 1 af 1
Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mán 10. Ágú 2020 18:46
af Fennimar002
Sælir vaktarar,
Er að íhuga að kaupa mér nýjan leikjaskjá og sá að coolshop væri með góðan asus skjá á lægra verði en tölvu búðirnar hér á landi,
Er alveg "worth it" að kaupa skjá eða bara eitthvað inná þessari síðu?
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mán 10. Ágú 2020 18:57
af brynjarbergs
Þetta er vel legit. Voru smá byrjunarörðugleikar hjá þeim en það virðist vera búið að fínpússa þetta.
Ég skoða alltaf Coolshop áður en ég versla mér hlut í dag - sama hvort það er loftljós, loftdæla eða heimilistæki.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mán 10. Ágú 2020 19:19
af Cascade
Hef keypt router þarna miklu ódýrari enn annarsstaðar
Þurfti að bíða tæpar 2 vikur eftir að fá hann en vel þess virði
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mán 10. Ágú 2020 19:32
af Fennimar002
Okei geggjað.
Eru þá vörurnar innfluttar þegar keypt er á síðunni?
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mán 10. Ágú 2020 19:57
af Njall_L
brynjarbergs skrifaði:Ég skoða alltaf Coolshop áður en ég versla mér hlut í dag - sama hvort það er loftljós, loftdæla eða heimilistæki.
Tek undir þetta, byrja alltaf að skoða Coolshop ef ég þarf ekki hlutinn strax.
Fennimar002 skrifaði:Eru þá vörurnar innfluttar þegar keypt er á síðunni?
Já, samkvæmt starfsmanni Coolshop, sjá betur á þessum þræði:
viewtopic.php?f=9&t=81683&hilit=coolshopOlafurhrafn skrifaði:Lagerinn er í Danmörku, allt sent saman einu sinni í viku til að halda kostnaði sem lægstum fyrir viðskiptavini
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 12. Ágú 2020 16:08
af KLyX
Búinn að kaupa heilmikið þarna og alltaf sáttur - verð oft mun betra en það sem býðst hér heima. Get vel mælt með.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Lau 15. Ágú 2020 07:58
af draconis
Fékk mitt Logitech G915 wireless þaðan. færð það Mikið ódýrara þaðan enn alstaðar hér. margt fleirra þar sá líka margar high end mýs sem var rosalegur verðmunur samanborið við allar verslanir hér. Mæli hiklaust með
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Lau 15. Ágú 2020 11:29
af Morphy
Hef verslað nokkrum sinnum við þá vegna þess að þeir voru ódýrastir. Hef ekkert nema gott um þá að segja. Mæli með þeim.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 18. Nóv 2020 17:04
af theo112
Sketchy shop:
1. The phone number the have for coolshop.is in not working. When you call the number, you pick the option for the coolshop.is and the call drops (of course during the working hours they advertise on the site)
2. They take their sheet time to answer on emails. 24hrs+ and sometimes they never reply
3. Order problem:
a. For me, I made an order for a product they had in stock and they withdrow the money for a product (not reserve the amount - they actually got the money).
b. It turns out they didn't have in stock and never informed me.
c. When I asked about it 2 weeks later, they tell me that I have to wait for new arrival.
d. When I cancelled the order, didn't get my money back automatically - still pending for resolution
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 18. Nóv 2020 17:08
af benony13
Ég pantaði hjá þeim um daginn. Ekkert vesen.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 18. Nóv 2020 17:25
af brain
Keypt 6 sinnum frá þeim , fín verð
ekkert mál og allt staðist 100 %
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 18. Nóv 2020 17:49
af Dr3dinn
Keypti mx518 þar og sparaði 5þ...ekkert ves
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 18. Nóv 2020 19:22
af Hjaltifr123
Hef keypt nokkrum sinnum hjá þeim og alltaf allt 100% og ekkert vesen.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 18. Nóv 2020 20:48
af Tóti
Hef keypt hjá þeim tók smá tíma að fá vöru.
En þess virði að bíða stóðst allt hjá þeim.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 16. Des 2020 15:51
af netkaffi
Var að fá "Vinsamlegast hafðu það í huga að ef þú valdir að sækja í KiDS á Smáratorgi þá fer afhending núna fram í rýminu sem Pier var áður í."
Er þetta ekki á sama stað á Smáratorgi, sama bygging? Það er bara gert ráð fyrir að allir viti hvar Pier var án neinna upplýsinga. Vona það sé allavega ekki Korputorg þar sem eitthvað sem heitir The Pier er núna.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Mið 16. Des 2020 15:54
af mercury
netkaffi skrifaði:Var að fá "Vinsamlegast hafðu það í huga að ef þú valdir að sækja í KiDS á Smáratorgi þá fer afhending núna fram í rýminu sem Pier var áður í."
Er þetta ekki á sama stað á Smáratorgi, sama bygging? Það er bara gert ráð fyrir að allir viti hvar Pier var án neinna upplýsinga. Vona það sé allavega ekki Korputorg þar sem eitthvað sem heitir The Pier er núna.
sama hús bara lengst til vistri.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Fim 07. Jan 2021 15:02
af Dan123
Þarf maður að borga toll þegar maður sækjir vöruna af coolshop?
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Fim 07. Jan 2021 15:05
af Xmatic
Dan123 skrifaði:Þarf maður að borga toll þegar maður sækjir vöruna af coolshop?
no
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Fim 07. Jan 2021 15:57
af worghal
Dan123 skrifaði:Þarf maður að borga toll þegar maður sækjir vöruna af coolshop?
það verð sem er á síðunni er það eina sem þú borgar.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Fim 07. Jan 2021 16:51
af Kristján
hvernig er með ábyrgð?
aldrei keypt neitt þarna þanniig er forvitinn
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Fim 07. Jan 2021 17:45
af hagur
Kristján skrifaði:hvernig er með ábyrgð?
aldrei keypt neitt þarna þanniig er forvitinn
Væntanlega bara sama lögbundna ábyrgð og í öðrum verslunum hér á landi. Þetta er íslensk verslun, en lagerinn er í DK.
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Fim 07. Jan 2021 18:53
af Dr3dinn
Er að lenda í veseni með mús sem dó eftir 5 mánaða notkun....ábyrgð ekki að ganga vel gagnvart coolshop :l
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Fös 08. Jan 2021 03:01
af Kristján
Dr3dinn skrifaði:Er að lenda í veseni með mús sem dó eftir 5 mánaða notkun....ábyrgð ekki að ganga vel gagnvart coolshop :l
hvernig er tekið á því, þeir eru væntalega ekki með verkstæði eða einhvern hérna á landi sem gerir við fyrir þá, er þetta sent út eða er þetta bara skipt út strax?
hvaða vandræði ertu að lenda í ef ég má spurja?
Re: Hafa einhverjir keypt hluti á coolshop?
Sent: Fös 08. Jan 2021 07:58
af Dr3dinn
Kristján skrifaði:Dr3dinn skrifaði:Er að lenda í veseni með mús sem dó eftir 5 mánaða notkun....ábyrgð ekki að ganga vel gagnvart coolshop :l
hvernig er tekið á því, þeir eru væntalega ekki með verkstæði eða einhvern hérna á landi sem gerir við fyrir þá, er þetta sent út eða er þetta bara skipt út strax?
hvaða vandræði ertu að lenda í ef ég má spurja?
Músin gaf bara upp öndina, snýst í endalausa hringi í leikjum.
Lendi bara á support manneskju sem biður um hluti, sem maður svara og upplifir frekar að boti sé að svara en ekki alvöru manneskja.
Biðja um myndbönd af vandamálinu þar sem verkstæðið er ekki staðsett hérlendis. Svo líða vikur á milli svara.
Ég allaveganna versla ekki þarna aftur.