Síða 1 af 1
Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Sun 19. Júl 2020 23:41
af GuðjónR
Það lék allt á reiðiskjálfi hérna á Kjalarnesi fyrir svona 5 mínútum (23:35)
Stóð yfir í 10-15 sec ... svakalegar drunur.
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Sun 19. Júl 2020 23:44
af Zorba
Fann smá skjálfta hérna í reykjavík í svona 5 sek
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Sun 19. Júl 2020 23:48
af brain
Það urðu 2 skjáftar við Fagradalsfjall ( Grindavík ) stærð 4.1 og 4.4 áðan.
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Sun 19. Júl 2020 23:53
af gutti
já fann vell á því var spila í warzone hætti að spila. Stólinn fór að hrista smá sec
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Mán 20. Júl 2020 00:12
af Tiger
Fann bara smá nudd hérna í sófanum í Hafnarfirði.
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Mán 20. Júl 2020 01:48
af JVJV
Ég bý í Grindavík, hann var ansi stór þessi, ekki oft sem maður fer að tjékka á lausamunum þó skjálftar séu algengir hérna, svo eru núna hellingur af litlum skjálftum og þetta finnst allt. Sérstaklega ef þeir eru 2.5+ og maður er í rólegheitum, er sennilega búinn að finna fyrir svona 15 frá þeim stóra áðan.
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Mán 20. Júl 2020 08:08
af brynjarbergs
Þessi skjálfti vakti mig á Akureyri. Ég vissulega er á high-alert eftir hrinur síðastliðinna vikna en ég vaknaði og leit á klukkuna ... 23:36! Þreifaði fyrir mér í rúminu hvort að mig væri að dreyma ... leit á gluggatjöldin og sá léttan skjálfta í þeim!
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Mán 20. Júl 2020 08:41
af Mossi__
Yep.
Gítararnir mínir vingsuðu til.
Krakkarnir mínir vöknuðu ekkert við þetta og ekkert datt eða neitt svoleiðis.
Er á Vatnsleysu.
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Mán 20. Júl 2020 10:55
af kjartanbj
Selfoss, fann ekkert
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Þri 21. Júl 2020 16:39
af falcon1
Ég er í Reykjanesbæ og fann bara ölduganginn í skrifstofustólnum sem ég sat í... var mjög skrítin tilfinning að vera allt í einum komin út á sjó haha...
það var samt ekkert glamur eða neitt högg á húsið eins og kemur oft. Var mjög misjafnt hvernig skjálftinn fór í gegnum bæinn, sumir fundu mjög mikið fyrir honum en aðrir svona svipað og ég.
Re: Funduð þið jarðskjálftann?
Sent: Þri 21. Júl 2020 19:03
af emmi
Er í Ytri Njarðvík og fann ekki neitt. :p