Síða 1 af 1
Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Lau 18. Júl 2020 23:41
af GuðjónR
Hvað gæti orsakað þennan gula lit í Apple usb-c hleðslu snúrunni?
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 00:11
af jonsig
Er þetta ekki nr.1 staður sem sambandsleysi byrjar, þarf engann mega hita til að upplita xlpe einangrun. Vonandi ekki skemmt útfrá sér í hleðsluportið á símanum. Hættu að nota þetta rusl. Þar að segja ef þú hefur ekki misst einhvern óblandaðan amfetamín basa á þetta.
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 07:28
af ColdIce
Þetta er vegna hita, nokkuð algengt á þessum snúrum. Mæli með nýrri :p
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 10:36
af GuðjónR
Mig grunaði líka hitamyndun, ekki beint traustvekjandi ef snúrurnar eru að hitna svo mikið að þær upplitast. Ætli það komi of hvasst horn á snúruna sem veldur viðnámi og hita?
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 12:12
af jonsig
GuðjónR skrifaði:Mig grunaði líka hitamyndun, ekki beint traustvekjandi ef snúrurnar eru að hitna svo mikið að þær upplitast. Ætli það komi of hvasst horn á snúruna sem veldur viðnámi og hita?
Nei!
Hann juðast í sundur og strendingarnir í vírnum trosna, því minnkar þverskurðarflatarmál vírsins á þessum tiltekna stað til að flytja rafstraum sem skilar sér beint í meira viðnámi og því myndast hiti.
Eins og þú myndir krumpa aðeins saman vatnspípu á einum stað sem byggi til flöskuháls, nema í þessu tilfelli myndast hiti á krumpusvæðinu.
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 14:38
af GuðjónR
Ég skipti þessum út, ekki spurning.
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 15:43
af Dropi
Sami staður
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 16:25
af MrIce
GuðjónR skrifaði:Ég skipti þessum út, ekki spurning.
Besta lausnin, svona áður en það verður eitthvað issue útfrá þessu eins og að kvikni í
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 21:10
af einarn
GuðjónR skrifaði:Ég skipti þessum út, ekki spurning.
Hefuru prófað IKEA hleðslusnúrurnar? Keypti tvær micro usb fyrir dálitlu og finnst gæðin vera nokkuð góð miðað við verð. Þeir eru með ubs-c og lightning snúrur líka.
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 21:33
af worghal
jú jú, þetta er þar sem snúran byrjar alltaf að tærast upp og endar með því að fara í sundur, en þessi upplitun er líklegri vegna svita/olíu af puttum þar sem þessi staður fær lang mestu snertinguna.
auk þess er þetta gúmmí alger horbjóður og sígur í sig allt ógeðið.
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 21:44
af jonsig
worghal skrifaði:jú jú, þetta er þar sem snúran byrjar alltaf að tærast upp og endar með því að fara í sundur, en þessi upplitun er líklegri vegna svita/olíu af puttum þar sem þessi staður fær lang mestu snertinguna.
auk þess er þetta gúmmí alger horbjóður og sígur í sig allt ógeðið.
Re: Hvað veldur þessari upplitun?
Sent: Sun 19. Júl 2020 22:22
af Viggi
Þarft braded kapal. Á slatta af þessum og bestu snúrur sem ég hef átt
https://m.aliexpress.com/item/400052490 ... a6c0&is_c=