Síða 1 af 1

Downloada af youtube ?

Sent: Mið 24. Jún 2020 09:57
af benony13
Sælir spjallverjar

Ég er mikið í að klippa leiki af mínu líði og þarf því að sækja þá í tölvuna mína. Hver er besta leiðin til að gera það og halda ágætis gæðum?
Ég hef verið að nota ýmsar síður sem hafa allar verið í slökum gæðum.

Re: Downloada af youtube ?

Sent: Mið 24. Jún 2020 10:28
af Hjaltiatla
Ég nota https://github.com/Tzahi12345/YoutubeDL-Material aðallega því ég er ekki að gera neitt svakalega flókið.

Hins vegar er hægt að nota Youtube-dl CLI : https://ytdl-org.github.io/youtube-dl/download.html til að stjórna betur hvernig format,gæði etc... þú villt fá frá síðunni sem þú downloadar frá.

Re: Downloada af youtube ?

Sent: Mið 24. Jún 2020 10:30
af gnarr
benony13 skrifaði:Hver er besta leiðin til að gera það og halda ágætis gæðum?


Besta leiðin er að sækja efnið ekki af youtube heldur fá það beint frá þeim sem tók upp video'ið.

Re: Downloada af youtube ?

Sent: Mið 24. Jún 2020 10:33
af Benz
Ég hef notað RealPlayer downloader í mörg ár (áratugi :face ) til að sækja efni af síðum eins og Youtube með ágætum árangri. Verð þó alltaf að skoða stillingar á upplausn myndefnisins áður en ég sæki það (er mismunandi eftir síðum...). Algengast er að 720p sé hámarksupplausnin á a.m.k. "opnu" Youtube síðunni (þ.e. ekki í áskrift, veit ekki hvernig það er "áskriftarmegin" :-k ).
Það er sjálfsagt til betri lausnir en er búinn að nota RealPlayer ansi lengi og ekki þurft að leita annað - en er heldur ekki í "myndbandagerð" eins og þú hefur í huga ;)

Re: Downloada af youtube ?

Sent: Mið 24. Jún 2020 12:04
af benony13
gnarr skrifaði:
benony13 skrifaði:Hver er besta leiðin til að gera það og halda ágætis gæðum?


Besta leiðin er að sækja efnið ekki af youtube heldur fá það beint frá þeim sem tók upp video'ið.


Það er því miður oft ekki möguleiki

Re: Downloada af youtube ?

Sent: Mið 24. Jún 2020 13:13
af DJOli
Fría "Ótakmarkaða trial" útgáfan af 4K video downloader hefur verið að virka mjög vel hjá mér. Ef YouTube gera breytingar á API-inum á síðunni, þá kemur yfirleitt uppfærsla nokkrum dögum seinna.
Getur sótt myndbönd í allt upp í 8K (svo fremi sem það er í boði) eftir því sem ég hef séð.
https://www.4kdownload.com/products/pro ... downloader