Síða 1 af 1

vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 18:09
af nonesenze
sælir félagar, datt í hug að spyrja hérna. mig vantar góðar myrkva rúllu gardínur fyrir herbergin hjá mér og stærðin er 148cm en það sem ég finn er stæðsta 140cm, hafið þið einhverja hugmynd um hvar er hægt að finna svona, er búinn að skoða ikea og rúmfatalagerinn

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 18:12
af GullMoli
Efast um að þú finnir þetta í nákvæmlega 148cm. Þú þarft að kaupa aðeins stærri stærð og skera/klippa gardínuna niður í rétta stærð. Eflaust einhverjir staðir sem bjóða upp á þá þjónustu.

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 18:32
af nonesenze
GullMoli skrifaði:Efast um að þú finnir þetta í nákvæmlega 148cm. Þú þarft að kaupa aðeins stærri stærð og skera/klippa gardínuna niður í rétta stærð. Eflaust einhverjir staðir sem bjóða upp á þá þjónustu.


já geri mér grein fyrir því að það er sennilega ekki hægt að fá þetta nákvæmlega, en allir virðast vera með 140cm max, vantar stærri eða lengri allavega

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 18:48
af ColdIce
Álnabær?
Drulludýrt en maður sér aldrei eftir góðum gardínum

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 18:53
af nonesenze
ColdIce skrifaði:Álnabær?
Drulludýrt en maður sér aldrei eftir góðum gardínum


gæti verið lausnin, væri samt alveg til í ódýrari lausn ef einhver veit um eitthvað annað, takk fyrir, hefði ekki dottið í hug álnabæ

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 18:57
af upg8
láttu þær ekki sitja inní glugga-rammanum eins og flestir gera því þá kemur sterk sól meðfram gardínunum, nema þú sért með þykkar gardínur þar að auki...

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 18:59
af Televisionary
Álnabær eru alveg frábærir, var að fá gardínur hjá þeim. Þeir mældu fyrir þessu, það kostaði eitthvað en þeir mældu allt húsið í einu og hafa alla glugga á skrá hjá sér þegar þarf að kaupa restina.

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 18:59
af Viggi
Keypti svona fyrir herbergið og eldhúsið. Bkockar birtuna helvíti vel

#Aliexpress ISK 1,969 | Hot sale dual layer fabric zebra roller blinds
https://a.aliexpress.com/_d7BEREw

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 19:29
af nonesenze
Viggi skrifaði:Keypti svona fyrir herbergið og eldhúsið. Bkockar birtuna helvíti vel

#Aliexpress ISK 1,969 | Hot sale dual layer fabric zebra roller blinds
https://a.aliexpress.com/_d7BEREw


þessar líta ekki vel út fyrir svefnherbergin sem ég þarf mest, allt í lagi fyrir eldhús eða þannig en vill helst hafa alltaðar eins

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 19:48
af emmi
Keypti mínar í Rúmfatalagernum, virka fínt.

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 20:16
af nonesenze
emmi skrifaði:Keypti mínar í Rúmfatalagernum, virka fínt.


stærri en 140cm?

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 20:20
af rapport
Fá tilboð hjá Einari hjá Nútíma, nutima.is - hann er snillingur sem kann sitt fag.

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 20:36
af nonesenze
rapport skrifaði:Fá tilboð hjá Einari hjá Nútíma, nutima.is - hann er snillingur sem kann sitt fag.


þetta lítur vel út, skoða þetta klárlega með verð, takk

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 21:55
af Longshanks

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 22:24
af g0tlife
Fór í Álnabæ og fékk mann heim til að mæla. Keypti mér tvöfaldar hvítar myrkra. Sést ekki snefill af ljósi gegnum þessar gardínur þegar ég dreg alveg niður. Sé ekki eftir því.

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Fös 05. Jún 2020 22:54
af Squinchy
https://www.ikea.is/products/597850
THIS!
Setti svona í öll svefniherbergi, þetta blockar all!

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Lau 06. Jún 2020 07:46
af bananastand
Z-brautir og gluggatjöld gera eftir pöntun og eru þokkalega ódýrir. Ég fékk ca 150x130 myrkvunargardínur hjá þeim á 14 þúsund.

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Lau 06. Jún 2020 08:53
af jonsig
Fór í z-brautir. Kostaði augun úr

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Lau 06. Jún 2020 10:42
af nonesenze
maður kemur ekki að tómum kofanum hérna, takk fyrir góðar hugmyndir, allt virðist vera uppselt í ikea sama hvað það er nánast annars væri https://www.ikea.is/products/597850 þetta flott, https://www.rumfatalagerinn.is/stok-var ... 13c243e9bd væri fínt ef þetta væri ekki svart

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Lau 06. Jún 2020 19:50
af Longshanks

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Sun 07. Jún 2020 00:55
af appel
Manni verður smá flökurt yfir verðlagningunni hjá þessum gardínubúðum, Z brautir og álnabær. Fékk tilboð í tvöfaldar gardínur+brautir fyrir einhverja 3-4 glugga og það var hálf milljón.
Fór í rúmfó eftir það og keypti gluggatjöld og stangir fyrir kannski 30 þús kall.

Re: vantar góðar myrkva gardínur

Sent: Sun 07. Jún 2020 01:17
af einarhr
Til að fá myrkvagardínu til að virka sem best er að láta hana fara yfir allt gluggaopið á innan og þá kemst lítið sem ekkert ljós í gegn, en ef þú ert með hana innaní þá er alltaf einhverjir mm á hvorri hlið sem gapa.

Það er hægt að mjókka og stytta svona gardínur ef maður er smá handlaginn og hefur aðgang að td góðri réttskeið, dúkahníf, málbandi og járnsög