Síða 1 af 1

Nýjar upplýsingar um næstu kynslóð XboX, XboX 360

Sent: Fös 13. Maí 2005 10:38
af kristjanm
Ég veit að það var þráður um þetta fyrir stuttu en það eru komnar nýjar upplýsingar og myndir af XboX og fleira.

Jæja, þrír 3.2GHz PowerPC kjarnar sem ráða við tvo þræði hver.

ATI R520 með 48 Pipelines?

Þessi "litla" leikjatölva verður öflugri en allar venjulegar tölvur sem til eru í dag :D

http://www.tomshardware.com/game/200505121/index.html

Sent: Fös 13. Maí 2005 13:52
af wICE_man
En hvenær kemur græjan út?

Þessi nýju skjákort koma með haustinu fyrir PC, Tvíkjarna Athlon64 gjörvi ræður líka við 6 aðgerðir á klukku og er áreiðanlega með styttri pípun en þessir 3.2GHz gjörvar.

Það sem gerir XBOX kraftmeiri en ella er að öll forrit eru skrifuð sérstakleg fyrir hardware-ið svo að allir þessir þræðir nýtast upp í top.

Og hvað mun þetta kosta?

Ég held að þeir treysti á að selja skrilljón svona vélar ef þeir ætla að hagnast eitthvað á þessu. Allavega með þessum íhlutum. R520 með 512MB af GDDR3 minni mun örugglega kosta 400-500$, bætum við 3 gjörvum og eitthvað innra minni, sennilega í dýrari kantinum.

Þetta myndi kosta yfir 1000$ í PC vél, ég efast um að þeir fari að selja leikjatölvur á meira en 500$ svo að þeir þurfa að fá góðan magnafslátt. Munið að þeir töpuðu stórum fjárhæðum á gamla XBOXinum. Núna eiga þeir reyndar framleiðsluréttinn á öllum hlutum vélarinnar en samt....

Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þessu.

Sent: Fös 13. Maí 2005 15:05
af kristjanm
Held að þetta eigi að koma út á þessu ári. Ekki viss samt.

Sent: Fös 13. Maí 2005 16:39
af nomaad
Erm, þráðurinn í leikjasalnum er með allar þessar upplýsingar. Er nauðsynlegt að hafa tvo þræði um sama efnið?

Sent: Fös 13. Maí 2005 16:54
af arnifa
hun kemur út í november 2005 og mun kosta frá bilinu 299$ - 399$...

Sent: Fös 13. Maí 2005 17:39
af hahallur
Semsagt 50þús kéll hérna heima :)

Sent: Fös 13. Maí 2005 18:53
af kristjanm
nomaad skrifaði:Erm, þráðurinn í leikjasalnum er með allar þessar upplýsingar. Er nauðsynlegt að hafa tvo þræði um sama efnið?


Úps ég var ekki búinn að sjá þetta í leikjasalnum.

Afsakið :oops:

Sent: Fös 13. Maí 2005 18:55
af nomaad
kristjanm skrifaði:Úps ég var ekki búinn að sjá þetta í leikjasalnum.

Afsakið :oops:


Heh, vertu ekkert að stressa þig. Ég er bara að pæla hvort að það væri málið að færa minn þráð hingað eða hvað. Moddarnir ákveða það, I guess :roll:

Sent: Fös 13. Maí 2005 23:32
af arnifa
hahallur skrifaði:Semsagt 50þús kéll hérna heima :)


jafnvel meira :lol: :(