Síða 1 af 1

AMD Athlon 64 X2 Dual-Core benchmarks

Sent: Mán 09. Maí 2005 11:27
af kristjanm
AMD svarar Intel með dual-core Athlon 64 X2 örgjörvunum sínum.

Athugið að þeir eru ekki að gefa örgjörvana út strax, heldur bara að senda review síðum þá til þess að benchmarka. Örgjörvarnir ættu að koma formlega út í júní.

http://www.anandtech.com/cpuchipsets/sh ... spx?i=2410

Sent: Mán 09. Maí 2005 11:55
af wICE_man
Þetta undirstrikar niðurstöður Anandtech úr prófunum þeirra á Dual-core Opteron gjörvunum þar sem þeir gjörsamlega hakka í sig Pentium 840, það er þó dálítið undarlegt að skoða heimatilbúnu fjölvinnsluprófanir Anands sem gefa vægast sagt undarlegar niðurstöður, munurinn á 840 D og 840 EE er gríðarlegur, allt að 90%!!! Á meðan að munurinn á X2 4200+ og X2 4800+ er lítill, jafnvel innan við 1%. Í þessum prófunum voru Athlon64 X2 gjörvarnir yfirleitt staðsettir milli intelgjörvana sem skiptust hvor um sig á að sökka og brillera. Hyper-threading virðist vera tvíeggjað sverð í þessum Dual core gjörvum.

Sent: Mán 09. Maí 2005 12:04
af wICE_man
Hér er önnur umfjöllun:

AMD Athlon 64 X2 4800+: Dual-Core

Þeir prófuðu að yfirklukka og komust upp í 2.7GHz á innan við 1.4V, nokkuð nett :)

Sent: Mán 09. Maí 2005 12:07
af kristjanm
Extreme Edition gerðin er ekki að standa sig nógu vel, allavega alls ekki nógu vel til þess að kallast "Extreme" og kosta miklu meira.

Annars finnst mér Intel vera að gera góða hluti fyrir það að þeir ætla að hafa Pentium D örgjörvana þó nokkuð ódýra, þar sem að verðin á Athlon64 X2 örgjörvunum verður mjög hátt.

Ég myndi samt frekar kaupa mér X2 4200+ heldur en einhvern af þessum Pentium D örgjörvum.

Sent: Mán 09. Maí 2005 12:10
af kristjanm
wICE_man skrifaði:Hér er önnur umfjöllun:

AMD Athlon 64 X2 4800+: Dual-Core

Þeir prófuðu að yfirklukka og komust upp í 2.7GHz á innan við 1.4V, nokkuð nett :)


Nice overclocking :) Ætli þetta sé ekki þetta dual stress liner að segja til sín, átti víst að gefa kjörnunum 22% meira svigrúm á klukkuhraða.

Sent: Mán 09. Maí 2005 16:14
af wICE_man
Jebb, þeir eru byggðir upp á sömu tækni og Venice kjarnarnir nýju og hafa allar sömu endurbæturnar, sérstaklega á minnisstýringunni, núna getur maður fyllt allar 4 minnisraufarnar og samt keyrt á T1 command rating, auk þess er hægt að nota mismunandi minniskubba án þess að missa mikil afköst.

Það sem kom mér mest á óvart var nokkuð sem kom í ljós þegar ég las grein Tech Report um þetta, en þar kemur fram að L2 skyndiminnið er þó nokkuð hraðvirkara í E útgáfunni. Ég mæli með þessari grein:

http://www2.techreport.com/reviews/2005q2/athlon64-x2/index.x?pg=1

X2 4800+ er jafnvel að gera betur en FX-55 í FarCry og UT2004!!!

En hvernig er þetta? Erum það bara við tveir sem höfum áhuga á þessu?

Sent: Mán 09. Maí 2005 16:32
af Daz
Ég hef alveg gríðarlegan áhuga, en er eins og er of latur til að kynna mér málið betur svo ég hef ekkert vit á þessu :)

Sent: Mán 09. Maí 2005 17:31
af kristjanm
Amm við virðumst vera þeir einu :(

Annars eru þetta alveg stórmerkilegar fréttir að mínu mati. Multi-core er framtíðin og ætti að leiða eitthvað mjög gott af sér þegar búið er að hanna fleiri forrit til að nýta þá.

Þeir sem eru mikið í encoding ættu samt að sjá mjög mikla performance aukningu.

Sent: Mán 09. Maí 2005 17:44
af Yank
Þetta eru bara svo fjandi dýrir cpu.

Þessi 4400+ virkar þó nokkuð traustur og lítið mál að klukka upp um 200mz þannig hann virki eins og um helmingi dýrari cpu. Ætli verðið verði ekki í kringum 60 þús á ísl. fyrir slíkt. Erfitt fyrir mig að réttlæta slík kaup þegar ég get í dag keypt 15 þús kr. cpu og yfirklukkað hann þannig að hann virki betur en FX 55 á stock.

Sent: Mán 09. Maí 2005 17:54
af kristjanm
Amm þeir eru allt of dýrir, allavega til að byrja með.

Sent: Mán 09. Maí 2005 20:50
af gnarr
eruði ekki að grínast.. þið eruð ekki einu með áhuga á þessu.. ég er með áhuga á við 5 þjóðir!

Sent: Mán 09. Maí 2005 22:36
af wICE_man
Málið er að AMD geta ekki selt þá ódýrar, ef þeir gerðu það gætu þeir aldrei annað eftirspurninni, það er sorglegt en satt, en við munum ekki sjá tvíkjarna AMD gjörva á viðráðanlegu verði fyrr en á næsta ári þegar að Fab 36 verður komin í gagnið.

Sent: Fim 12. Maí 2005 16:32
af gnarr

Sent: Fim 12. Maí 2005 16:42
af kristjanm


Damn, væri til í svona..

Sent: Fös 13. Maí 2005 13:30
af wICE_man
Alltaf gaman að láta sig dreyma, svo er bara að skella í þetta 4 Opteron 875 (2650$ stykkið) þá er þetta pakki uppá kanski 11.000$, það er svona milljón komið til landsins :)

Sent: Fös 13. Maí 2005 21:59
af kaktus
wICE_man skrifaði:Alltaf gaman að láta sig dreyma, svo er bara að skella í þetta 4 Opteron 875 (2650$ stykkið) þá er þetta pakki uppá kanski 11.000$, það er svona milljón komið til landsins :)


hmmmm ætli marr næði 100fps staple? :roll:

Sent: Sun 15. Maí 2005 00:34
af wICE_man
kaktus skrifaði:hmmmm ætli maður næði 100fps staple? :roll:


Já, ég er viss um að maður næði 100fps frímerki á þessari vél :)

Sent: Sun 15. Maí 2005 01:35
af ICM

Sent: Mið 25. Maí 2005 20:01
af gnarr