Síða 1 af 2

Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 21:35
af GuðjónR
Er með Apple watch sem fylgist með hjartslætti í svefni en eru 132 slög á mínutu ekki frekar mikið fyrir sofandi manneskju?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 21:42
af Mossi__
Blautir draumar?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:10
af gorkur
Er þetta að gerast reglulega yfir nóttina?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:20
af kornelius
Kannski góð skýring á því af hverju þú ert stigahæstur "vaktara" JOKE :)

En fyrir utan það að þá vorkenni ég mjög mikið fólki sem notar vörur frá bæði Apple og Microsoft án þess að ég vilji stofna að einhverju eldstríði varðandi það.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:23
af Gustaf
Þetta er frekar hátt, hjartslátturinn hjá mér er í á bilinu 45 til 70bpm þegar ég sef samkvæmt úrinu mínu. Er þetta að gerast reglulega?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:28
af dragonis
Það er ekki rass að marka þetta nema þú sofir með strappa nokkrar nætur og mælir hjartsláttinn á þann vegin. Optical sensor getur verið mjög ónækvæmur og sýnt ranga niðurstöðu. Hleyp á hverjum degi og hef notað bæði í mörg ár og mig dettur ekki í hug að reyða mig á neitt annað en strappa.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:29
af Revenant
Þú getur ekki verið bæði með 69 og 132 slög á sömu mínútu (06:17). Ég mundi halda að þetta sé tómt rugl sem þú ert að fá.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:33
af Lexxinn
Sæll, er þetta að gerast oft eða bara einu sinni í viku? Ef þú situr og lest bók eða horfir á bíómynd. Er þetta að koma upp fyið aðra sedentary afþreying sem ætti vanalega ekki að skjóta púlsinum upp? Eiitthvað verið að fá takverk f. brjóstið eða kominn með bjúgmyndun?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:33
af einarhr
Sem hjartasjúklingur þá hef ég smá reynslu af svona úrum sem mæla hjartslátt, þau auka bara á stressi ;)
En að kjarna málsins þá átti ég Fitbit fljótlega eftir að ég veiktist og ég fór að spá allt of mikið í púlsinum frekar enn blóðþrýstingi sem olli bara meiri blóðþrýstingi. Þegar maður sefur þá dreymir manni og það eru mismunandi draumar sem geta gert mann æstann á tvo eða fleiri vegu :)

Hvíldarpúsl er mældur þegar þú vaknar og ertu ennþá í rúminu án þess að reisa þig upp, minn er í dag um 50 en er að jafnaði yfir daginn 75 þar sem ég er á lyfjum. Ég á til að vakna á næturna í einhverju stressi útaf draum og jafnvel með púsl í 150 en það á við alla og þess vegna bið ég ykkur um að trúa ekki of miklu þessum svefnmælingum í snjallúrum ofl.,

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:50
af Mossi__
Hvíldarpúslinn hjá mér er 50. Og í rækt 140 í skokki, ca.

Þannig að.. ég held að þessar tölur sem úrið gefur séu í rugli.

Hvernig er svefninn hjá þér?

(Flokkast þessi póstur þinn ekki undir persónuleg mál.. sem var sameiginleg ákvörðun ykkar Mods að ætti ekki heima hér á þessi spjalli?)

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 22:59
af rapport
Kæfisvefn?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 23:08
af Sporður
Byrjaðu á því að útiloka úrið.

Það eru nokkur atriði sem er vert að hafa í huga.

Það fyrsta er að því strengdari sem ólin er því nákvæmari ætti skynjarinn að vera. Þ.e. ef úrið situr þétt að þá er það nákvæmara ef ólin er laus og úrið hreyfist til.

Ég veit ekki hvernig það er með Apple en ein helsta gagnrýnin á heilsuúr er sú að þeir mæla ekki púlsinn nógu oft yfir tímabil til þess að veita fullnægjandi nákvæmni.

Þessir optisku ljósmælar virðast vera þolanlega nákvæmir ef hreyfingin á mælitækinu er lítil. Þeir verða óáreiðanlegir í miklum átökum (er sagt), þeas þegar fólk væri í/nálægt hámarksafköstum/púlsi. Þar koma bringubeltismælarnir sterkastir inn en það eru fáir sem nenna að sofa með þá held ég.

Það er mögulega eitthvað fleiri sem gæti truflað mælinguna. Ég hinsvegar veit ekki hvað það væri.

Byrjaðu á því að útiloka tækið.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 23:09
af einarhr
rapport skrifaði:Kæfisvefn?

Ekki ómögulegt en samt eru þessar tölur sérstakar þar sem á 1 mín tímabili fer púls úr 69 uppí 120+ og svo niður í 70. Þetta er líklega einhver villa í úrinu en allur er varinn góður og ég er búin að mæla með góðum hjartalækni.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Þri 31. Mar 2020 23:50
af rapport
p.s. hvaða prósentutala er þetta sem er inní súlunum?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 00:28
af einarhr
rapport skrifaði:p.s. hvaða prósentutala er þetta sem er inní súlunum?

Líklega áætlaður púls skv Appi, ég mæli ekki með þessu fyrir þá sem eru hjartveikir og þjást að kvíða. Þetta eykur bara óttan hjá þeim sem eru með kvíða og sérstaklega þeir sem eru hjartveikir.

Það sem hefur hjálpað mér mest er það sem ég lærði á Reykjalundi og það er Borg skalinn sem er þinn eiginn mælir á þolmörk.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 00:30
af Sporður
rapport skrifaði:p.s. hvaða prósentutala er þetta sem er inní súlunum?


220 - aldur = 170 +/- ?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 00:47
af einarhr
Sporður skrifaði:
rapport skrifaði:p.s. hvaða prósentutala er þetta sem er inní súlunum?


220 - aldur = 170 +/- ?

Einmitt er þetta ekki prósenta af hámarkspúls miðað við aldur viðkomandi?

PS ég hef ekki hugmynd hvað GuðjónR er gamall en hann eldist vel á netinu.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 01:21
af Sporður

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 04:17
af tryggvhe
Ef við gefum okkur að þetta er ekki bara einhv rugl í apple watchinu og þetta er bara að gerast á nóttunni eins og inleggið þitt gefur að skilja þ.e. þú ert ekki með tachycardiu allann daginn og ert að vakna útkvíldur almennt þá gæti þetta alveg eins verið draumar. Ætla ekki að þykjast vera einhver svefnsérfræðingur eða læknir yfirhöfuð :P en það væri frekar cool ef þetta væri að sýna Rem og Nrem svefn. Samkvæmt stuttu insomniac googli sýnist mér að þau vara á bilinu 5-10 min allavega fyrir Nrem sem myndi samsvara lækkuninni í nokkrar mín og síðan rem frá 15 mín sem eykst þegar líður á svefninn. Eins og eg segi bara skemmtileg pæling en eflaust bara bull. :D

hugsum vel um <3 okkar boys.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 09:41
af Viktor
Ekki taka mark á úrinu.

Kynntu þér það sem sérfræðingarnir segja.




Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 10:08
af Tiger
Hvaða app ertu að nota í þetta? Er það nógu fast á þér?

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 10:40
af raggos
Mér sýnist að neðri talan hjá þér sé hvíldarpúlsinn í svefni en hitt sé bara einhver vitleysa sem úrið telur sig vera að sjá.
Þessi úr eru mjög ónákvæm svo ef gögnin eru skrítin þá er skekkja líklegri skýring en e-ð líkamlegt.
Eðlilegur hvíldarpúls í svefni er 50-70 hjá venjulegu fólki. Því mun betra formi sem fólk er í þeim mun lægri, afrekshjólarar t.d. eru stundum með hvíldarpúls niður í 25bpm

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 10:53
af mikkimás
Úrið er mjög líklega að rugla, eða að fá óáreiðanleg input.

En ef ekki, þá er spurning hvort nefið þitt sé mögulega stíflað og hamli eðlilegum andardrætti.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 11:04
af Mossi__
Sko..

Ef að þú vaknar á morgnana..

Og rúmið er ekki gegnsvola af svita... og þér finnst þú ekki hafa orðið fyrir bíl..

Þá er ég 100% viss um að þetts sé klikkerí í úrinu.

Ef þú ert eitthvað stress með hjartaheilsuna, talaðu við lækni.

Re: Eðlilegur hjartsláttur í svefni?

Sent: Mið 01. Apr 2020 11:13
af GuðjónR
Takk fyrir allar ábendingarnar, eftir yfirlestur þráðar þá er ég 99.9% viss um að þetta er eitthvað rugl í úrinu, hugsanlega of mikill slaki í ólinni.
Næ pumpunni ekki svona hratt þó ég príli upp á Esjuna og efast um að Covid-kvíðinn sé kominn á þetta level þó mikill sé.

Er að nota öppin AutoSleep og HeartWatch en þau eiga að vinna saman.
Það borgar sig greinilega ekki að taka þessar mælingar of bókstaflega.
http://autosleep.tantsissa.com/

edit:
Smá viðbót, þar sem of langt mál yrði að svara öllum með reply, var að skoða logg yfir undanfarnar vikur, þetta var einsdæmi.
Heilsan almennt góð, ef eitthvað er þá finnst mér púlsinn frekar hægur dags-daglega frekar en hitt en tek þó eftir því að púlsinn er oft hraðari þegar ég sef á nóttunni en á daginn. Kannski er ástæðan að maður fær sér yfirleitt að borða fyrir svefninn.