Síða 1 af 1
Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Lau 14. Mar 2020 00:49
af Eybbus
Sælir/sælar,
Pappakassa sérfræðingur óskað!
Jæja ég er að flyja til noregs á versta helvítis tíma og er að flýta mér. Hvar get ég fengið pappa kassa nóu stórann fyrir inwin 303 tölvukassa? Nei, ég get ekki notað pappa kassann sem hann kom í af því að ég er halfviti og henti honum fyrir löngu.
Hver selur nóu stóra kassa?
Hver selur draslið sem maður setur í kassann þannig að hann skemmist/brotni ekki?
Er til þjónusta sem myndi gera þetta fyrir mig?
Ætti ég bara nota dhl til að senda til noregs eða er til betra fyrirtæki?
Hefði viljað selja kassann til að losna við þetta vesen en það er sitt eigið vesen.
https://www.in-win.com/en/gaming-chassis/303/
Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Lau 14. Mar 2020 01:14
af gnarr
Án þess að vera með það á hreinu, þá hugsa ég að flutningsgjöldin á tölvukassanum myndu líklega vera hærri en að kaupa annann í noregi.
Gætirðu ekki bara komið kassanum í "umboðssölu" hjá vini þínum tildæmis?
Annars myndi ég tékka með tölvubúðir. Þær gætu mögulega átt kassa utanaf öðrum tölvukassa sem gæti passað fyrir þig.
Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Lau 14. Mar 2020 01:59
af worghal
computer.is eru með in-win á íslandi, kanski eiga þeir kassa handa þér
Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Lau 14. Mar 2020 10:27
af Funday
bara smella kassanum í ferðatösku það kostar minna að borga fyrir auka tösku heldur en að flytja hann með einhverjum eins og dhl
Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Lau 14. Mar 2020 10:57
af Klemmi
Myndi reyna að selja kassann, aflgjafann og mögulega örgjörvakælinguna, eftir því hvað hún er stór, og taka rest í handfarangri (gefið að reglur leyfi).
Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Lau 14. Mar 2020 11:44
af Sporður
Ég veit ekkert hvort þetta er mögulegt en þú getur keypt aukatösku með flugfélaginu. Pakkar kassanum inn í eitthvað og merkir brothætt.
Kostar líklega svipað og að senda í pósti.
Verður bara að vona að hlaðmaðurinn sé ekki heimsmeistari í dvergakasti eins og þeir virðast margir vera.
....
Og funday var búinn að leggja það til
P. S. Kauptu aukatöskuna fyrirfram, ekki uppi á velli
Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Lau 14. Mar 2020 19:24
af Eybbus
Já held að sé búinn að redda mér nóu stóra tösku en... Ég núna ekki viss hvort ég muni komast til noregs þar sem þeir loka landamærin kl 8 á mánudaginn og ef ég myndi komast þá myndi ég þurfa að fara í sóttkví í 2 vikur.
Sjítturinn titturinn
Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Sun 15. Mar 2020 10:03
af Funday
ef þú kemst mundu að tapea glerið allt þannig ef einhvað dickface er að vinna við töskuna og hendir henni til þá brotnar ekki glerið yfir allt og mögulega cuttar einhverjar micro leiðingar á móðurborðinu það er mikið betra að þrífa glerið eftir á heldur en að þurfa nýtt móðurborð
Re: Flutningur. Pappa kassi fyrir tölvukassa
Sent: Sun 15. Mar 2020 12:44
af Runar
Smá ábending ef þú tekur kassann með þér til Noregs og selur hann ekki hérna heima eins og sumir mældu með. Það er mikilvægt að setja eitthvað INN í kassann, til að styðja t.d. skjákortið, CPU kælinguna ef hún er stór og annað sem er nógu stórt. Ef einhver högg eða mikill hristingur verður á kassanum, þá getur eitthvað skemmst inni í honum. T.d. væri ekki slæmt að nota þetta hvíta drasl sem flest allt stærra tölvudót kemur með til að vernda það, freyðiplast? Andskotinn! Nafnið á því er dottið út úr haunsum á mér í augnablikinu!
Skera það í búta til að passa vel inn í kassann til að styðja vel við allt stærra dótið.
Mæli með þessu, sem er aðeins mýkra en ekki of mjúkt og nær að styðja við innihaldið í kassanum án þess að skemma eitthvað:
https://sc01.alicdn.com/kf/HTB1F.FyxVOWBuNjy0Fiq6xFxVXat.jpg_350x350.jpghttps://www.synergypackaging.co.uk/wp-content/uploads/2014/09/cushioning-foam-end-caps1.jpgEða þá þetta:
https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/65/Expanded_polystyrene_foam_dunnage.jpg/1200px-Expanded_polystyrene_foam_dunnage.jpg