Síða 1 af 1

Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 19:40
af mikkimás
Sælir.

Er í nýrri íbúð með nettengil í hverju herbergi og þarf að láta færa ljósleiðararouter.

Síminn rukkar 13þ fyrir að senda sinn mann.

Getur einhver bent mér á rafvirkja í Reykjanesbæ sem tekur hóflegt verð fyrir?

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 19:55
af Dúlli
mikkimás skrifaði:Sælir.

Er í nýrri íbúð með nettengil í hverju herbergi og þarf að láta færa ljósleiðararouter.

Síminn rukkar 13þ fyrir að senda sinn mann.

Getur einhver bent mér á rafvirkja í Reykjanesbæ sem tekur hóflegt verð fyrir?

13þ er bara frekar ódýrt. Eingöngu míla og GR get fært búnaðinn þar sem það eru miklar líkur að þurfi að sjóða strenginn og fæstir rafvirkjar hafa þau verkfæri.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 20:04
af mikkimás
Maðurinn frá Símanum vildi meina að ég gæti fengið sjálfstæðan rafvirkja á staðinn ef ég týmdi ekki þessum 13þ kalli.

En er þetta virkilega svona mikið mál í splunkunýrri blokk?

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 20:06
af Vaktari
mikkimás skrifaði:Maðurinn frá Símanum vildi meina að ég gæti fengið sjálfstæðan rafvirkja á staðinn ef ég týmdi ekki þessum 13þ kalli.

En er þetta virkilega svona mikið mál í splunkunýrri blokk?

Ertu að tala bara um routerinn sjálfan sem tengist við LL box frá mílu eða GR?
Þetta er basicly bara að færa routerinn yfir í annan tengil og færa lögn úr LL boxinu á réttan tengil í töflu ef slíkt er til staðar fyrir.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 20:36
af Viktor
Í hvaða heimi er 13 þ. mikið fyrir að fá mann sendan heim til sín? :hmm

Hvað ætli það kosti að reka bílinn sem hann þarf að ferðast um á?

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 20:48
af mikkimás
Vaktari skrifaði:Ertu að tala bara um routerinn sjálfan sem tengist við LL box frá mílu eða GR?
Þetta er basicly bara að færa routerinn yfir í annan tengil og færa lögn úr LL boxinu á réttan tengil í töflu ef slíkt er til staðar fyrir.

Ég held nefnilega að þannig séð það.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 20:50
af mikkimás
Sallarólegur skrifaði:Í hvaða heimi er 13 þ. mikið fyrir að fá mann sendan heim til sín? :hmm

Hvað ætli það kosti að reka bílinn sem hann þarf að ferðast um á?

Ekki kostar innanbæjarferðin 13þ kall í eldsneyti?

Ef þetta þykir sanngjarnt verð, þá verður bara að hafa það, ekki er ég sérfræðingurinn.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 20:54
af mikkimás
Þessu ótengt, eru fleiri not fyrir svona marga nettengla, þ.e. fyrir utan að geta ráðið staðsetningu routers?

Ekki er íbúðin það stór að merkið geti ekki flakkað á milli rýma.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 21:03
af Vaktari
mikkimás skrifaði:Þessu ótengt, eru fleiri not fyrir svona marga nettengla, þ.e. fyrir utan að geta ráðið staðsetningu routers?

Ekki er íbúðin það stór að merkið geti ekki flakkað á milli rýma.

Fer allt eftir því hvað þú ætlar að nota tenglana í.
Eins og þú viljir hafa mörg tæki actually snúrutengd gegnum cat lagnirnar
Sumir hafa router hjá töflu og tengja svo innanhúslagnirnar við router og nota mögulega AP
Svo eins og með GR ll box að þá fer iptv straumur alfarið gegnum LL boxið sjálft.

Þú getur i raun fært routerinn bara sjálfur ef þetta er allt tilbúið í töflu

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 21:04
af helgii
mikkimás skrifaði:Þessu ótengt, eru fleiri not fyrir svona marga nettengla, þ.e. fyrir utan að geta ráðið staðsetningu routers?

Ekki er íbúðin það stór að merkið geti ekki flakkað á milli rýma.

Tölvur, símar, þráðlausir access punktar, myndavélar, sjónvarpsafruglarar t.d.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 21:05
af Viktor
mikkimás skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Í hvaða heimi er 13 þ. mikið fyrir að fá mann sendan heim til sín? :hmm

Hvað ætli það kosti að reka bílinn sem hann þarf að ferðast um á?

Ekki kostar innanbæjarferðin 13þ kall í eldsneyti?

:shock:

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 21:08
af mikkimás
Sallarólegur skrifaði: :shock:

Já, þú meinar.

Nú fatta ég.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 21:23
af Moldvarpan
Þú þarft ekkert rafvirkja við að færa routerinn...

Hvernig er þetta sett upp hjá þér? Er routerinn inní eh herberginu eða í töflunni?

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 22:22
af pepsico
Mér finnst ekki ennþá nógu skýrt hvort þú ert að tala um ljósleiðaraboxið sem er fast á veggnum eða bara routerinn.

Ef router (frjáls eins og fuglinn er ef þú tekur snúrurnar úr honum):
Ef það er búið að draga snúrur í þessa veggtengla og þeir hittast í miðlægu boxi og núverandi uppsetning er að netsnúra fer úr ljósleiðaraboxi í routerinn þá er þetta bara spurning um að færa þá netsnúru svo hún fari úr ljósleiðaraboxi í veggtengil, færa routerinn þangað sem hann á að fara og tengja við næsta veggtengil með annarri netsnúru, og fara svo í miðlæga boxið og tengja þessa tvo veggtengla saman með þriðju netsnúrunni.

Ef ljósleiðaraboxið(sem er fast á vegg):
Þarft mann í þetta og þetta kostar meira en 13 þús. sama hvað.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Lau 01. Feb 2020 22:49
af nonesenze
maður hreyfir sig ekki út úr húsi án þess að eyða 10k, sumir dagar kosta meira, bara að fara með bílinn í þjónustu skoðun kostar 60-80, að fá mann fyrir 13k er ekki svo mikið, allt kostar svo mikið í dag miðað við laun hérna, að vinna hluti sjálfur þá ertu á góðu tímakaupi

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Mán 03. Feb 2020 09:56
af mikkimás
pepsico skrifaði:Mér finnst ekki ennþá nógu skýrt hvort þú ert að tala um ljósleiðaraboxið sem er fast á veggnum eða bara routerinn.

Ef router (frjáls eins og fuglinn er ef þú tekur snúrurnar úr honum):
Ef það er búið að draga snúrur í þessa veggtengla og þeir hittast í miðlægu boxi og núverandi uppsetning er að netsnúra fer úr ljósleiðaraboxi í routerinn þá er þetta bara spurning um að færa þá netsnúru svo hún fari úr ljósleiðaraboxi í veggtengil, færa routerinn þangað sem hann á að fara og tengja við næsta veggtengil með annarri netsnúru, og fara svo í miðlæga boxið og tengja þessa tvo veggtengla saman með þriðju netsnúrunni.

Nákvæmlega þetta var málið.

Ekki nærri því jafn flókið og ég taldi mér trú um.

Ég þakka samt Sallarólegi og nonesenze fyrir þetta reality check :)

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Mán 03. Feb 2020 19:11
af Benz
Dúlli skrifaði:
mikkimás skrifaði:Sælir.

Er í nýrri íbúð með nettengil í hverju herbergi og þarf að láta færa ljósleiðararouter.

Síminn rukkar 13þ fyrir að senda sinn mann.

Getur einhver bent mér á rafvirkja í Reykjanesbæ sem tekur hóflegt verð fyrir?

13þ er bara frekar ódýrt. Eingöngu míla og GR get fært búnaðinn þar sem það eru miklar líkur að þurfi að sjóða strenginn og fæstir rafvirkjar hafa þau verkfæri.

Það á auðvitað ekki að þurfa að bræðisjóða streng í innanhússlögn. Skv. reglum PFS, og innanhússlagnastaðlinum, þá á allt að vera tengt upp á tengilista og því á ekki að þurfa að gera neitt :lol:

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Mán 03. Feb 2020 19:13
af Gunnar
Benz skrifaði:

en hvað er það er buið að draga strenginn i gegnum rör og það þarf að draga hann til baka til að færa hann annað? :face

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Mán 03. Feb 2020 19:23
af Benz
Gunnar skrifaði:

Þá ertu í veseni :-k - nema að fá einhvern sérfræðing í verkefnið...
Ég myndi sjálfsagt gera þetta sjálfur (innan "skynsemismarka" ;) ) en um leið passa mig á því að ljósleiðari er mjög viðkvæmur og getur brotnað auðveldlega.

Re: Fá rafvirkja til að færa ljósleiðararouter

Sent: Mán 03. Feb 2020 22:08

Eitt er að vitna í tilmæli um frágang og hitt er hvernig frumskógurinn er.

En þetta virðist vera leyst, OP innleggið var bara allt of óljóst.