Síða 1 af 1

Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fim 16. Jan 2020 14:03
af GuðjónR
Hvenær er Íslandsbanki ekki í ruglinu?

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fim 16. Jan 2020 14:36
af brynjarbergs
Úff ... ef það eru einhverjar heimasíður sem maður treystir í blindni og vill ekki sjá forritunarkóða á :face

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fim 16. Jan 2020 15:16
af Viktor
Merkilegt að vera með sama útlit og þegar internetið var fundið upp.

Neyðist stundum til að nota þetta til að millifæra. Þegar ég vel viðtakanda og smelli á Greiða þá velur ÍSB annan úttektarreikning randomly sem er með 0kr. innistæðu.

“Úttektarreikningi breytt í samræmi við þekktan viðtakanda”

Eins og þetta sé fítus. Hverjum datt þetta í hug?

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fim 16. Jan 2020 15:22
af Mossi__
Af öllu því mörgu sem ég hef gert um ævina hef ég aldrei átt viðskipti við Íslandsbanka og er bara mjög ánægður með það.

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fim 16. Jan 2020 15:53
af Hjaltiatla
Þú hefur greinilega sett Íslandsbanka reikninginn þinn á hliðina við að versla innbyggðan örbylgjuofn.
Hrunið er þér að kenna :Þ

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fim 16. Jan 2020 18:01
af Sporður
Mynd

Á Georg ég treysti!

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fim 16. Jan 2020 20:01
af rapport
Hef reynslu af því að reyna að skipta frá ÍSB yfir í bæði Arion og LÍ.

Arion = ljúga að mér til að fá viðskiptin yfir og stofna mig svo óvart í röngum banka.

LÍ = vildu að allt sparifé væri í sjóðum en ekki bók um það leiti sem Byr rann saman við ÍSB. Urðu hundfúlir þegar mað var ekki tekið í mál. Fóru á hausinn þrem mánuðum seinna.

Íslandsbanki er einfaldlega mesti viðskiptabankinn fyrir launafólk sem er ekki með neinn rekstur eða brask.

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fim 16. Jan 2020 23:09
af pattzi
rapport skrifaði:Hef reynslu af því að reyna að skipta frá ÍSB yfir í bæði Arion og LÍ.

Arion = ljúga að mér til að fá viðskiptin yfir og stofna mig svo óvart í röngum banka.

LÍ = vildu að allt sparifé væri í sjóðum en ekki bók um það leiti sem Byr rann saman við ÍSB. Urðu hundfúlir þegar mað var ekki tekið í mál. Fóru á hausinn þrem mánuðum seinna.

Íslandsbanki er einfaldlega mesti viðskiptabankinn fyrir launafólk sem er ekki með neinn rekstur eða brask.




Ég lokaði reikningum í Arion Íslandsbanka og landsbankanum og fór yfir í Sparisjóð Höfðhverfinga mikið persónulegri þjónusta og ekki eins og tala við vegg .... Íslandsbanki vildi ekkert gera varðandi skuld sem ég var að reyna semja um við þá fyrir nokkrum árum vildu frekar ekki fá neitt ... ég btw lækkaði um 50% í launum á þessum tíma svo ég réð ekki við það sem ég var með hjá þeim ... en þeir hafa ekki fengið neitt þó ég eigi pening fyrir þessari skuld í dag en mér dettur ekki í hug að láta þá hafa þetta enda svosem löngu gufað upp held ég enda var þetta 2013..

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fös 17. Jan 2020 13:08
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:Merkilegt að vera með sama útlit og þegar internetið var fundið upp.

Nákvæmlega, og næstum því sömu virkni/óvirkni líka.
Landsbankinn vinnur með yfirburðum þegar kemur að heimabönkum.

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fös 17. Jan 2020 22:50
af einarn
GuðjónR skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Merkilegt að vera með sama útlit og þegar internetið var fundið upp.

Nákvæmlega, og næstum því sömu virkni/óvirkni líka.
Landsbankinn vinnur með yfirburðum þegar kemur að heimabönkum.


Þeir voru allavegna nógu fljótir að grípa einkabanki . Is lénið

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Fös 17. Jan 2020 23:16
af pattzi
einarn skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Merkilegt að vera með sama útlit og þegar internetið var fundið upp.

Nákvæmlega, og næstum því sömu virkni/óvirkni líka.
Landsbankinn vinnur með yfirburðum þegar kemur að heimabönkum.


Þeir voru allavegna nógu fljótir að grípa einkabanki . Is lénið



Einkabanki.is (Landsbankinn)
netbanki.is (islandsbanki)
heimabanki.is (sparisjoðurinn)
netbankinn.is (kvika)

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Lau 18. Jan 2020 00:19
af HalistaX
Skemmtilegt að þið skulið vera að ræða heimabanka, þá lenti ég í því í gær(Fimmtudag) að allt í einu loggaði Arion appið sig bara út og krassaði svo í hvert skipti sem ég sló inn username og password og neitaði að logga sig inn aftur....

Þetta var að gera mig alveg snælduvitlausann en ég náði að láta það virka með því að re-install'a því bara.

Re: Traustvekjandi heimabanki

Sent: Lau 18. Jan 2020 17:25
af einarn
pattzi skrifaði:
einarn skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Merkilegt að vera með sama útlit og þegar internetið var fundið upp.

Nákvæmlega, og næstum því sömu virkni/óvirkni líka.
Landsbankinn vinnur með yfirburðum þegar kemur að heimabönkum.


Þeir voru allavegna nógu fljótir að grípa einkabanki . Is lénið



Einkabanki.is (Landsbankinn)
netbanki.is (islandsbanki)
heimabanki.is (sparisjoðurinn)
netbankinn.is (kvika)


Er bara að segja á sínum tíma þá var þetta marðkaðsett sem einkabanki.