Síða 1 af 1
Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 17:59
af Yawnk
Sælir,
Ég er að hugleiða það að selja fornbíl til Bandaríkjanna.
Ég er búinn að auglýsa bílinn á eBay og búið er að bjóða þá upphæð sem að ég myndi samþykkja.
Hefur einhver hér reynslu af þessu?
Hvernig væri best að hátta greiðslu? í gegnum PayPal? Er eitthvað sem að þarf að varast ef farið er í gegnum PayPal?
Er nokkuð vandamál að færa pening af Paypal og inn á íslenskan bankareikning?
Kv,
Sá sem þekkir þetta ekki neitt
Re: Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 18:37
af littli-Jake
Fornbíl TIL Bandaríkjanna??? Þetta hljómar eitthvað rangt.
Hvað ertu annars að selja?
Re: Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 19:00
af Yawnk
littli-Jake skrifaði:Fornbíl TIL Bandaríkjanna??? Þetta hljómar eitthvað rangt.
Hvað ertu annars að selja?
Til Bandaríkjanna, já.
Ford Bronco '74
Re: Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 19:23
af Viktor
Þú getur wkki notað Paypal, það greiðir inn á kreditkort og taka prósentu.
Best að fá bankamillifærslu(Swift).
Re: Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 20:26
af Sam
Samkvæmt heimasíðu Paypal leggja þeir inn á debet reikninga, skrolla bara niður þessa síðu
https://www.paypal.com/us/webapps/mpp/p ... t-transferEdit: Þeir taka ekki prósentu ef þú nennir að bíða í 1 til 3 daga eftir greiðslunni
Re: Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 20:29
af HalistaX
Sallarólegur skrifaði:Þú getur wkki notað Paypal, það greiðir inn á kreditkort og taka prósentu.
Best að fá bankamillifærslu(Swift).
Aldrei nota Paypal í neitt svona! Refund policy'ið þeirra er alltaf lauslegt og getur hver sem er, þó svo að hann hafi fengið sendinguna í hendurnar, request'að refund og komist upp með það!
Re: Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 22:55
af Yawnk
Takk fyrir þetta, þá heldur maður sig frá PayPal.
Þá er staðgreiðsla eða bein millifærsla málið í þessu, engir milliliðir.
Re: Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 23:00
af Binninn
Smá forvitni,
ertu með hlekk á bílinn ?
Re: Að selja bíl til Bandaríkjanna
Sent: Þri 07. Jan 2020 23:01
af Binninn
Fann hann..
flottur gulur bíll