Síða 1 af 1

sur-ron rafmagnshjól

Sent: Sun 25. Ágú 2019 15:30
af Hnykill
Rafmagnshjól... https://lunacycle.com/sur-ron-x-bike-li ... ck-edition einhver heyrt af þessu eða átt ?

Virkar mjög spennandi sem íslenskt reiðhjól fyrir mig. sérstaklega hér á Akureyri það sem mikið er uppá móti. á einhver svona eða hefur spáð í því ?

Re: sur-ron rafmagnshjól

Sent: Mán 26. Ágú 2019 08:22
af Njall_L
Eru þetta ekki svipuð hjól og Super Soco hjólin sem Nova og Elko hafa verið að selja?
https://elko.is/searchresult/?q=Super%20Soco

Re: sur-ron rafmagnshjól

Sent: Mán 26. Ágú 2019 09:51
af chaplin
Mig langar svo mikið að prufa Super Soco, en 45km/klst hámarkshraði gerir þetta svolítið ópraktíst. Flott í innanbæjarsnatt þar sem hámarkshraði er 50 km/klst en fyrir allt annað finnst mér þetta meika lítið sens. Sur Ron X lúkkar rosalega, væri gaman að prufa það off-road.

Re: sur-ron rafmagnshjól

Sent: Mán 26. Ágú 2019 09:59
af brynjarbergs
chaplin skrifaði:Mig langar svo mikið að prufa Super Soco, en 45km/klst hámarkshraði gerir þetta svolítið ópraktíst. Flott í innanbæjarsnatt þar sem hámarkshraði er 50 km/klst en fyrir allt annað finnst mér þetta meika lítið sens. Sur Ron X lúkkar rosalega, væri gaman að prufa það off-road.


Það er víst lítið mál að smella þeim í svokallað L3e mode (úr L1e) og þá kemst það í 70km/h

https://www.youtube.com/watch?v=-0ckraFu8q8

Re: sur-ron rafmagnshjól

Sent: Mán 26. Ágú 2019 10:12
af chaplin
Áhugavert! Ein pæling, þarf þá ekki líka mótorhjólapróf?

Re: sur-ron rafmagnshjól

Sent: Mán 26. Ágú 2019 10:14
af Njall_L
chaplin skrifaði:Áhugavert! Ein pæling, þarf þá ekki líka mótorhjólapróf?

Þarft þess sennilega ekki en það væri að sjálfsögðu ráðlagt. Ég er meira forvitinn um tryggingar og slíkt, myndi ekki vilja fara út í umferðina á tæplega 80km/klst á ótryggðu mótorhjóli

Re: sur-ron rafmagnshjól

Sent: Mán 26. Ágú 2019 11:12
af blitz
Aflknúin hjól (t.d. rafmagns) sem komast hraðar en 25 km/h frá framleiðanda falla utan flokksins "létt bifhjól í flokki 1" sem krefjast þess vegna prófs á viðkomandi hjól, skráningu og vátryggingu.

Re: sur-ron rafmagnshjól

Sent: Fös 24. Apr 2020 22:29
af Lexxinn
Fyrir forvitna þá eru Ellingsen komnir með þessi hjól; https://ellingsen.s4s.is/ellingsen/rafh ... ID=PROD220

Sá 3 svona hjól bara í dag, hafði aldrei séð þau áður á Íslandi, var frekar gáttaður og áhugasamur.