Síða 1 af 1

þurrt loft

Sent: Fös 12. Apr 2019 16:56
af sunna22
Halló það er ansi þurrt loft í íbúðini.(vil aðeins bíða með að kaupa rakatæki) Og það var hægt að kaupa svona brúsa eða hvað sem það heitir. Sem var hægt að hengja á ofna og fylla með vatni. En veit einhver hvort það sé selt en þá og hvað þetta er kallað.

Re: þurrt loft

Sent: Fös 12. Apr 2019 18:40
af gnarr
Þú þarft að fara svolítið varlega með þannig lausn og skipta oft um vatn vegna hættu á hermannaveiki.
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=5289

Re: þurrt loft

Sent: Lau 13. Apr 2019 00:22
af russi
Reyndar er óþarfi að kaupa eitthvað í þetta, getur sett vatn í box og það við eða á ofn,þetta er gamalt húsráð

Re: þurrt loft

Sent: Lau 13. Apr 2019 01:54
af Baldurmar
gnarr skrifaði:Þú þarft að fara svolítið varlega með þannig lausn og skipta oft um vatn vegna hættu á hermannaveiki.
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=5289

Ef að boxið þornar inni á milli er það ekki vandamál

Re: þurrt loft

Sent: Lau 13. Apr 2019 07:51
af brain
Ég keypti í Blómavaal svona skál ca 25 cm langa,m 8 cm breiða og um 1.5 cm hár kantur., notuð undir blóm til að grípa vatn eftir vökvun.

Virkar vel.

Re: þurrt loft

Sent: Sun 14. Apr 2019 01:18
af jonsig
Maður sér á fiskabúrinu í 130fm íbúðinni að það tapar mörgum lítrum á dag. Það er glettilega þurrt loftið hérna á klakanum.