Síða 1 af 1

Frystikistan brann úr sér. Tryggingar?

Sent: Þri 12. Feb 2019 16:35
af agnarkb
Gamla frystikistan okkar var að brenna úr sér. Grunar helst mótorinn hafi blossað aðeins og drepist, allaveganna af fýlunni að dæma.
Er eitthvað vit í að reyna fá eitthvað úr tryggingum, erum með nokkuð öfluga heimilistryggingu og fengum eitthvað smá þegar þvottavélin hjá okkur losnaði úr festingum og féll á gólfið.

Re: Frystikistan brann úr sér. Tryggingar?

Sent: Þri 12. Feb 2019 17:38
af addon
Einhver félagi minn fékk nú megnið bætt úr sinni kistu einu sinni... man reyndar ekki hver ástæðan var að hún klikkaði. en full kista getur fljótlega slefað vel yfir 100k.
minnir að það hafi verið sjóvá og þeir báðu ekki einusinni um myndir, bara lista af því sem var í kistunni.

Re: Frystikistan brann úr sér. Tryggingar?

Sent: Þri 12. Feb 2019 18:49
af arons4
Færð sennilega sem nemur nýrri kistur+allt sem var í henni mínus sjálfsábyrgðin þar sem það borgar sig yfirleitt aldrei að gera við frystikistur og ísskápa ef pressurnar fara.

Re: Frystikistan brann úr sér. Tryggingar?

Sent: Mið 13. Feb 2019 15:27
af agnarkb
Þeir voru fljótir að segja fokkjú við tjónaskýrslunni. Tæki 10+ ára falla víst ekki undir tryggingu. Sennilega best þá að kaupa bara eitthvað drasl næst sem rétt slefar yfir ábyrgð áður en það drepst.....

Re: Frystikistan brann úr sér. Tryggingar?

Sent: Mið 13. Feb 2019 15:32
af GuðjónR
Þú færð örugglega það sem er í kistunni bætt en ég efast um að þú fáir sjálfa kistuna bætta.
Endilega leyfðu okkur að fylgjast með hvernig þetta fer hjá þér.

Re: Frystikistan brann úr sér. Tryggingar?

Sent: Mið 13. Feb 2019 17:10
af hagur
agnarkb skrifaði:Þeir voru fljótir að segja fokkjú við tjónaskýrslunni. Tæki 10+ ára falla víst ekki undir tryggingu. Sennilega best þá að kaupa bara eitthvað drasl næst sem rétt slefar yfir ábyrgð áður en það drepst.....


Færðu ekki heldur innihaldið bætt?

Re: Frystikistan brann úr sér. Tryggingar?

Sent: Fim 14. Feb 2019 05:00
af DJOli
TM Tryggingar - Innbústrygging skrifaði:Kæli- og frystivörur: Skemmdir á frystikistu eða ísskáp svo og matvælum í þeim sem verða vegna þess að rafstraumur rofnar skyndilega og óvænt.


Smelltu hér!