Síða 1 af 1

Amazon Echo innflutningur?

Sent: Mán 28. Jan 2019 15:37
af absalom86
Einhver reynslu á því að láta Amazon senda sér Echo vörur? Finnst álagninginn hérna heima vera allt of há ( 25 dollara vara á 12þús ).

Þeir neita að senda þetta beint til Íslands þannig maður þyrfti annað hvort að vera staddur í Bandaríkjunum þegar maður pantar eða að nota milligönguaðila.

Ef milligönguaðilar eru svarið, hver þeirra er þá bestur?

Takk.

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Mán 28. Jan 2019 16:13
af rattlehead
sæll

ég nota shopusa.com mjög mikið og pantaði fire tv í gegnum þá á sínum tíma. Er þægileg reiknivél sem lætur þig vita um aukagjöld.

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Mán 28. Jan 2019 16:17
af absalom86
rattlehead skrifaði:sæll

ég nota shopusa.com mjög mikið og pantaði fire tv í gegnum þá á sínum tíma. Er þægileg reiknivél sem lætur þig vita um aukagjöld.


Geri þá ráð fyrir að þú greiðir tolla aukalega þegar þetta er komið heim? eða hvernig virkar þetta.

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Mán 28. Jan 2019 16:22
af ZiRiuS
Held að það sé enginn tollur á þessum hlutum. Hinsvegar 24% vaskur á öllu.

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Mán 28. Jan 2019 20:29
af kubbur
ég er alveg sammála, sjúkleg álagning á þessu, og google home dótinu, ertu búinn að athuga á amazon.co.uk, fékk allavega ekki villu þegar að ég setti echo dot í körfu og checkout

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Mán 28. Jan 2019 21:46
af worghal
fínt að eiga tengdó í usa :D

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Þri 29. Jan 2019 00:03
af kjarnorkudori
Ég flutti inn 2x Echo Plus og 1x Echo Dot í gegnum MyUS.com. Var síðan með VPN í gangi og þurfti að ná í APK til að setja upp Alexu appið á Android. Vinur minn fékk Echo Dot um daginn og þá var nóg að vera bara með VPN á iphone til að setja appið upp.

Mæli sterklega með Echo Plus. Fín hljóðgæði, Alexa skilur mig í 95% tilvika og ég man ekki eftir því að hafa notað rofana á ljósunum heima nýlega.

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Þri 29. Jan 2019 13:26
af rattlehead
absalom86 skrifaði:
rattlehead skrifaði:sæll

ég nota shopusa.com mjög mikið og pantaði fire tv í gegnum þá á sínum tíma. Er þægileg reiknivél sem lætur þig vita um aukagjöld.


Geri þá ráð fyrir að þú greiðir tolla aukalega þegar þetta er komið heim? eða hvernig virkar þetta.


Nei þegar þú velur réttann flokk er þetta endanlegt verð sem þú greiðir til að fá vörnua senda.

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Þri 29. Jan 2019 13:44
af blitz
ShopUSA er fínt fyrir ódýra en þunga hluti.

MyUS er talsvert hagstæðara fyrir léttari en dýrari vörur.

Re: Amazon Echo innflutningur?

Sent: Þri 29. Jan 2019 19:33
af Vaktari
Er maður eitthvað að græða á þessu að flytja svona inn?
Miðað við t.d. að versla þetta hérna í búð heima?
Er mikið að pæla í þessu
Er einhver sem gæti gefið mér dæmi um verð hingað komið t.d. vs hér heima