Síða 1 af 1
Hvað þarf að passa uppá?
Sent: Lau 05. Jan 2019 17:49
af rapport
http://www.ruv.is/frett/heilsugaeslusto ... -netspjallMér finnst þessi síða - heilsuvera.is alltaf hafa verið hálf "shaky", bara einhver tilfinning sem ég fæ.
Er hún nægilega örugg fyrir samskipti og vistun allra viðkvæmustu persónulegu upplýsinga?
Hvað segja þeir sem þekkja betur til svona mála?
- Capture.JPG (82.58 KiB) Skoðað 1432 sinnum
Re: Hvað þarf að passa uppá?
Sent: Sun 06. Jan 2019 09:17
af DJOli
Förum allavega aðeins betur yfir.
Síðan er með https vottun/virka vottun frá Let's Encrypt, og eru með svokallaða 'Intermediate x3' vottun í gangi.
Let's Encrypt er opinn vottunarvettvangur á þann hátt að fólkið á bakvið notast við Linux, svo ég geri ráð fyrir að þessi öryggisvottun sé frí án þess að vita betur. Gott eða slæmt, veit ég ekki.
Kíkjum á hýsingaraðila síðunnar, nú er síðan hýst hjá Nýherja samkvæmt upplýsingum frá Isnic.
A.m.m. er helsta óöryggið mannleg mistök (e. Human Error).
Re: Hvað þarf að passa uppá?
Sent: Sun 06. Jan 2019 14:42
af Viktor
Mátt endilega laga titillinn og hafa hann lýsandi.
Þetta er töluvert öruggara en að hringja.
Skil ekki alveg hvað þú ert að fara með þessu skjáskoti.
Ég hef enga ástæðu til að ætla að öryggi sé ekki númer 1, 2, 3 hjá þeim sem settu upp og reka þennan vef.
Re: Hvað þarf að passa uppá?
Sent: Sun 06. Jan 2019 15:31
af Hjaltiatla
DJOli skrifaði:Förum allavega aðeins betur yfir.
Kíkjum á hýsingaraðila síðunnar, nú er síðan hýst hjá Nýherja samkvæmt upplýsingum frá Isnic.
A.m.m. er helsta óöryggið mannleg mistök (e. Human Error).
Hýsingaraðili síðunnar er reyndar Þekking en DNS admin/Dns netþjónn síðunar hjá Nýherja (og reverse dns hjá Þekkingu)
Getur flett upp ip tölu síðunnar á ripe.net og notað tól eins og netcraft til að fá þessar upplýsingar.
Re: Hvað þarf að passa uppá?
Sent: Sun 06. Jan 2019 16:03
af kelirina
Landlæknir á og rekur Heilsuveruna. Minnir að Origo hafi búið hana til og hýsir hann. Eins og oft á síðum þar sem viðkvæmar upplýsingar er að finna þá er stöðug þróun með öryggi í huga og er þar engin undartekning með þennann vef.
Re: Hvað þarf að passa uppá?
Sent: Sun 06. Jan 2019 19:14
af rapport
OK, flott.
Ég þekki þetta ekki, veit bara að það eru töluvert strangari reglur um öflun, meðferð og geymslu heilbrigðisupplýinga/sjúkraskrárgagna en almennar persónuupplýsingar.
Fyrir vikið þá fannst mér þetta eitthvað óþægilegt, að sjá hvernig þetta kom út.
Re: Hvað þarf að passa uppá?
Sent: Mán 07. Jan 2019 08:30
af Viktor