Síða 1 af 1

500GB SATA II

Sent: Mið 30. Mar 2005 19:11
af zaiLex
http://www.pcworld.com/news/article/0,aid,120102,00.asp

Vá! :D. Þetta verður örugglega massa dýrt en þetta kemur einhverntíman á öðrum fjörðungi ársins.

SATA I = 150MBps
SATA II = 300MBps

Núna með 300MBps geta þá 10-15k diskar ekki orðið miklu hraðari?

p.s. í greininni stendur að SATA sé 1,5/3GBps ekki MBps hvort er það? :?

Sent: Mið 30. Mar 2005 19:49
af vldimir
a $500 drive featuring the older parallel ATA interface and an 8MB data buffer, and a $520 model with a 16MB buffer that uses the 3-gigabits-per-second Serial ATA II interface (which is backward-compatible with the 1.5-gbps SATA interface)


Ekkert svo rosalega dýrt, maður hefði ekkert á móti því að hafa nokkra svona, mun þægilegra að hafa t.d. 2-3 svona en 5-6 200gb diska.

Sent: Mið 30. Mar 2005 21:24
af kristjanm
SATA II á ekki eftir að gera mikið annað fyrir hraðann en að auka bandvíddina, en það þýðir jú að harðir diskar geti orðið hraðvirkari í framtíðinni.

Annars finnst mér mjög gaman að sjá smá þróun í hörðu diskunum, 16MB buffer og SATA II. Tala nú ekki um 500GB :)

Ég hlakka til að lesa review um þennan disk.

Re: 500GB SATA II

Sent: Fim 31. Mar 2005 04:05
af gnarr
zaiLex skrifaði:p.s. í greininni stendur að SATA sé 1,5/3GBps ekki MBps hvort er það? :?


Þetta er aðeins flóknara heldur en vanalega.

Nei, þetta er ekki rétt, SATA150 er 1.5Gbps og SATA300 3Gbps sem að er það sama og 187MBps og 375MBp, en þar sem að SATA notar 8b/10b kóðun, þá er raun hraðinn 150MBps og 300MBps.

Annars heitir þetta ekki SATA I og SATA II, heldur SATA150 og SATA300.

http://www.sata-io.org/namingguidelines.asp