Sælir
Einmitt fyrir nokkrum mánuðum í svipaðri stöðu með mína ryksugu og skaftið teipað saman og önnur smotterís fix til að allt virki.
En á endanum keypti ég iRobot Roomba 980 í USA og tók með heim, en ath að það þarf að undirbúa helling og passa að það sé ekki eitthvað á gólfinu t.d. sokkur og græjan sendir í síman að hún er föst geggjað, en þetta lærist og krakkaranir hlaupa af stað þegar Roomban fer í gang og þeir taka allt uppúr gólfinu en halda að Roomban ryksugi upp dótið þeirra og ég hef ekki hugmynd hvernig þeir fengu þær upplýsingar ekki frá mér
Roomba 980 var nr2 á mínum lista en er samt fáránlega öflug og gerir allt sem hún á að gera.
Hún er með samt talsvert marga galla að mínu mati t.d. alltaf að "Bumpa" allt en hún er með myndavél (já ég veit en þeir segja að hún taki ekki up) og þegar hlutur sem er nægilega hár eða annað og hún kemur að þá bara hægir hún ferðina og "klessir" á ég sil ekki af hverju samt.
Eldri módel af Roombum eru hrikalegar og negla á öll húsgögn og eru í meira random bulli ekki hugsa einu sinni um það.
Appið er shit, getur sett inn schedule hvenær hún fer í gang, nokkrar stillingar og þú færð report þegar hún er búin með mynd af svæðinu sem var ryksugað. Svo þarf að nota litla turna til að banna ákveðin svæði ekki hægt að velja svæði á myndinni.
hún er föst í ákveðni aðferð við að þrífa en hún fer alltaf sömuleið sem á að vera "okey" en er samt að taka 1/3 til helming af hverju herbergi og fer svo í næsta, en til að breyta þarftu að færa heimastöðina og láta hana byrja frá henni, fattar það seinna
Jájájá endalaust af göllum og virðist vera glötuð og gallagripur
En drottin min almáttur hvað hún getur ryksugað gólfið og fer undir öll rúmm og aldrei ryk eða neitt, ég er en með gömlu ryksuguna inní skáp en það er örsjaldan gripið í hana og þá bara á smá svæði. Skúrað á nokkra mánaðfrest en fer eftir gólfefni og þannig.
Vélin sem ég ætlaði hinsvega að kaupa en var ekki til í þessari BestBuy búð er Neato Botvac D7 Connected en bæði er hún með laser ekki myndavél og sér því í myrkri og þarf ekki að "Bumpa" allt og t.d. á að keyra í kringum barna dót eða hundamatskálar sem er miklu réttar en að klessu keyra allt.
það er snildar app en þegar kortið af húsinu er komið geturðu lagað það til og bannað ákveðin svæði með "Virtual wall" sem er snild, dregur línu á kortið eða getur gert hring og ryskugan fer bara ekki þar, og alskonar stillingar.
Komið gott hægt að finna myndbönd á netinu þar sem allt er prófað eða borið samn ég horfði á haug af þeim áður en ég keypti.
Góð samanburðu
https://www.techradar.com/news/best-robot-vacuumsÞessi vinnur hjá þeim því hún er algjör vinnuhestur
https://www.techradar.com/reviews/irobot-roomba-980þessi lenti í öðrusæti hjá þeim útaf öllum möguleikunum og appinu
https://www.techradar.com/reviews/neato-botvac-d7-connectedalltof langt en ef það eru spurningar skjóttu ég er búin að kynna mér flest flaggskipin frá robot vacuum liðinu.