Síða 1 af 1
Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Þri 18. Sep 2018 20:38
af Manager1
Ég tók saman verð á Samsung Galaxy S9+ hjá öllum verslunum sem ég fann. Niðurstaðan kom svosem ekkert á óvart, Elko ódýrast, litlu búðirnar aðeins
dýrari en þær stærri og Vodafone, Nova og Síminn með nákvæmlega sama verð *hóst*samráð*hóst*.
Að gamni hafði ég Amazon með í dæminu, síminn sem ég notaði í dæminu var reyndar á afslætti og svo er það viðgerðarþjónustan og ábyrgðin og allt það, eins og við þekkjum. Þannig að samanburðurinn við Ísland er ekkert mjög nákvæmur.´
Það væri rosalega gaman ef það væri samkeppni á farsímamarkaðnum, það eru sannarlega nógu mörg fyrirtæki að selja síma til að halda uppi samkeppni, en Síminn, Vodafone og Nova virðast vera sátt með að hafa bara sama verð á öllum símum...
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Þri 18. Sep 2018 20:55
af Viggi
Ekki óvitlaust að tekka á síðum eins og heimkaup þar sem s9+ var á 110 þús. Alltaf staðgreitt mína síma svo engin ástæða að kaupa af símafélögunum
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Þri 18. Sep 2018 22:33
af pattzi
Sé að á emobi er með 2 korta s9 plus á 114.900
reyndar bara 64 gb sem er alveg nóg af mínu mati þegar allt er geymt í dropbox hvort sem er í dag
https://emobi.is/index.php?route=produc ... uct_id=452
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Þri 18. Sep 2018 23:08
af Manager1
Takk fyrir þetta. Ég bar óvart 128gb útgáfuna frá emobi saman við 64gb útgáfur frá öðrum, það skýrir hversvegna emobi eru lang dýrastir. Þeir eiga ekki 64gb útgáfuna svo ég get ekki lagað listann.
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Mið 19. Sep 2018 01:50
af Gassi
Hátækni er með umboð fyrir samsung simana herna heima, ætli þeir hafi ekki einhvað með þetta að segja?
En ef þu kaupir simann af heimkaup veistu ekkert hvaðan hann er að koma, mögulega ekki hægt að gera við hann herna heima ss fa retta varahluti sem þyðir að það þyrfti að senda þa ut. Elko taka mikið af öðrul lagerum lika
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Mið 19. Sep 2018 07:18
af vesley
Ég hef heyrt það að ein að betri ástæðunum fyrir því að verðin eru svona svipuð eru vegna þess að álagning á símum hér heima er mjög lítil. Veit ég t.d. að starfsmenn Nova hafa lítið sem ekkert svigrúm til afslátta þó það sé vinir eða fjölskylda að versla.
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Mið 19. Sep 2018 07:20
af skrattinn
Það er alltaf lítið að fá fyrir símana, þess vegna eru sölumenn alltaf að reyna troða aukahlutum og öðru drasli!
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Mið 19. Sep 2018 07:56
af pattzi
Manager1 skrifaði:Takk fyrir þetta. Ég bar óvart 128gb útgáfuna frá emobi saman við 64gb útgáfur frá öðrum, það skýrir hversvegna emobi eru lang dýrastir. Þeir eiga ekki 64gb útgáfuna svo ég get ekki lagað listann.
Já ég skoðaði það ekki helt sð þeir væru allir 128gb
En annars myndi maður halda að 2 korta væru sniðugri sérststaklega ef maður er með eitt vinnusímanúmer og svo persónulegan en fær bara ódýran síma í vinnunni þa getur maður fjárfest í dýrari og haft tvö kort t.d
Gassi skrifaði:Hátækni er með umboð fyrir samsung simana herna heima, ætli þeir hafi ekki einhvað með þetta að segja?
En ef þu kaupir simann af heimkaup veistu ekkert hvaðan hann er að koma, mögulega ekki hægt að gera við hann herna heima ss fa retta varahluti sem þyðir að það þyrfti að senda þa ut. Elko taka mikið af öðrul lagerum lika
Hátækni eru löngu hættir rekstri ...
Það væri Tæknivörur sem flytja þá inn býst ég við
Og svo Ormsson
Heimkaup kaupir þá af ormsson pottþétt þar sem þeir eru að selja tæki fyrir þá.
Elko kaupir af tæknivörum myndi eg halda
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Mið 19. Sep 2018 09:30
af GuðjónR
En Costco? Þeir eru stundum að selja síma.
Kosturinn við að versla við þá er að síminn er í endalausri ábyrgð.
Næstbest er að versla við NOVA, þ.e. ef þú ert að kaupa út á kennitölu því allir fá tveggja ára ábyrgð.
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Mið 19. Sep 2018 10:17
af braudrist
Hvar færðu út að hann kosti 130.000 á Amazon? Hægt að fá 128Gb útgáfuna á 90-110 þús. hingað kominn með öllum gjöldum.
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Mið 19. Sep 2018 22:49
af Manager1
braudrist skrifaði:Hvar færðu út að hann kosti 130.000 á Amazon? Hægt að fá 128Gb útgáfuna á 90-110 þús. hingað kominn með öllum gjöldum.
Ég tvíreiknaði óvart gjöldin (vsk).
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Fim 20. Sep 2018 00:21
af Gassi
pattzi skrifaði:Manager1 skrifaði:Takk fyrir þetta. Ég bar óvart 128gb útgáfuna frá emobi saman við 64gb útgáfur frá öðrum, það skýrir hversvegna emobi eru lang dýrastir. Þeir eiga ekki 64gb útgáfuna svo ég get ekki lagað listann.
Já ég skoðaði það ekki helt sð þeir væru allir 128gb
En annars myndi maður halda að 2 korta væru sniðugri sérststaklega ef maður er með eitt vinnusímanúmer og svo persónulegan en fær bara ódýran síma í vinnunni þa getur maður fjárfest í dýrari og haft tvö kort t.d
Gassi skrifaði:Hátækni er með umboð fyrir samsung simana herna heima, ætli þeir hafi ekki einhvað með þetta að segja?
En ef þu kaupir simann af heimkaup veistu ekkert hvaðan hann er að koma, mögulega ekki hægt að gera við hann herna heima ss fa retta varahluti sem þyðir að það þyrfti að senda þa ut. Elko taka mikið af öðrul lagerum lika
Hátækni eru löngu hættir rekstri ...
Það væri Tæknivörur sem flytja þá inn býst ég við
Og svo Ormsson
Heimkaup kaupir þá af ormsson pottþétt þar sem þeir eru að selja tæki fyrir þá.
Elko kaupir af tæknivörum myndi eg halda
Regt atti að vera tæknivörur, en nei ormsson fær simana hja tæknivörum. Þeir eru með umboðið fyrir simana, var að vinna a verkstæði ormsson i tæp 2 ár
Re: Gríðarleg samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum *kaldhæðni*
Sent: Fim 20. Sep 2018 15:38
af GuðjónR
Sá þessa í Costco áðan, fylgir ekki sögunni hvort þeir séu 64GB eða 128GB.