Síða 1 af 1
Nova TV
Sent: Þri 28. Ágú 2018 20:00
af hreinnbeck
Fannst nokkuð merkilegt m.v. hvað cord-cutterar eru oft háværir hér að enginn umræða væri hafin um Nova TV appið.
https://www.nova.is/nova-tvVirðist virka vel við fyrstu yfirferð í sima, á eftir að fá tækifæri til að skella því í AppleTVið.
En þessu tengt: mikið hlýtur þeim sem hafa ausið hátt í milljarði í OZ að sárna að sjá öll simafyrirtækin vera komin með langtum betri öpp og það án mikils kostnaðar og vandræða. En skilst reyndar að OZ sé að pivota í annað (aftur).
Re: Nova TV
Sent: Þri 28. Ágú 2018 20:49
af hagur
Þetta fór alveg framhjá mér. Skrítið að bjóða ekki uppá app fyrir Android TV. Hefði haldið að það væri ekki mikil aukavinna, þar sem Android útgáfa er þegar í boði. Svo sýnist mér vera skortur á stuðningi við Chromecast líka.
Það eru ekki allir með Apple TV ;-)
Re: Nova TV
Sent: Þri 28. Ágú 2018 21:39
af Viktor
Ég hélt að öll þessi öpp væru bara OZ appið með annari litasamsetningu?
Re: Nova TV
Sent: Þri 28. Ágú 2018 22:17
af GuðjónR
Þetta er skárra en OZ, en meingallað.
Myndgæðin eru léleg, prófaði að horfa á þátt og hann pixlaðist regluglega.
Stöð 2 er skilin útundan þegar kemur að "sarpi" þ.e. ekki hægt að horfa á fréttirnar eða annað "opið" nema í línulagaðri dagskrá.
Ef þú velur þátt þá byrjar hann ekki á byrjun, þú verður að leita.
Góð byrjun en langt í land, gef þessu 4/10 í núverandi mynd.
p.s. er með AppleTV 4K + 65" LG Oled.
Re: Nova TV
Sent: Mið 29. Ágú 2018 03:49
af kornelius
Re: Nova TV
Sent: Mið 29. Ágú 2018 09:24
af hagur
Já, en ekki Android TV. Veit að ég get sideloadað þessu inn en ég er ekki með mús/lyklaborð tengt við boxið. Android öpp eru venjulega gerð fyrir snertiskjá sem maður hefur vitanlega ekki þegar maður er með Android TV box.
Re: Nova TV
Sent: Mið 29. Ágú 2018 09:55
af END
hagur skrifaði:Já, en ekki Android TV. Veit að ég get sideloadað þessu inn en ég er ekki með mús/lyklaborð tengt við boxið. Android öpp eru venjulega gerð fyrir snertiskjá sem maður hefur vitanlega ekki þegar maður er með Android TV box.
Prófaði sideload á Fire TV. Það flest út og er ónothæft.
Re: Nova TV
Sent: Mið 29. Ágú 2018 10:45
af zetor
Virkar Sjónvarp Símans á þessu android megin?
Re: Nova TV
Sent: Mið 29. Ágú 2018 12:13
af wicket
Vonandi virkar þetta betur en Oz og 365 appið sem er með því versta sem ég hef prófað.
Þetta virkar ágætlega, ekkert spes en virkar.
Ég er ekkert að fara að henda myndlyklinum aftur í Vodafone, ég treysti IPTV kerfum símafélaganna miklu betur til að standa sig en svona öppum þegar mikið liggur við eins og þegar það eru stórar beinar útsendingar.
Re: Nova TV
Sent: Mið 29. Ágú 2018 12:41
af Viggi
Kemur nú varla samsung TV app með þetta. get mirrorað af símanum yfir á tv en þá er hann ónothægur á meðan