Síða 1 af 1
Pólland
Sent: Mið 11. Júl 2018 00:24
af isr
Hvaða stað mæliði með í póllandi, er að spá í að fara þangað í Ágúst,er með tvö börn. Gaman að prófa eitthvað nýtt, hef aldrei komið þangað.
Re: Pólland
Sent: Mið 11. Júl 2018 06:32
af Hestur
Kraká, ekki spurning
Re: Pólland
Sent: Mið 11. Júl 2018 08:10
af nidur
Gaman að fara til Gdansk, fara á ströndina og taka bátsferð út í Hel.
Re: Pólland
Sent: Mið 11. Júl 2018 11:52
af ChopTheDoggie
Poznań, Kraków eða Gdańsk.
Re: Pólland
Sent: Mið 11. Júl 2018 12:55
af Labtec
Re: Pólland
Sent: Mið 11. Júl 2018 18:36
af Klemmi
Fór til Gdansk í mars og er í þessum skrifuðu orðum í Kraká eftir að hafa flogið til Poznan, verið þar í 2 daga og keyrt á milli.
Að því sögðu, þá er Kraká mesta túristaborgin, á jákvæðan hátt. Það er nóg að gera hérna, þar á meðal saltnámurnar og stutt í Auschwitz.
Fer eftir aldrinum á börnunum hvað er hægt að mæla með því að skoða.
Að sama skapi fer það eftir lengd ferðar hvort að maður mæli með því að leigja bílaleigubíl til að opna möguleikana enn frekar. Það er t.d bara um 1klst akstur til Katowice frá Kraká. Annars er líka mjög ódýrt og þægilegt að nota Uber, við notum það þrátt fyrir að vera með bíl, flestar ferðir innanbæjar kosta 300-400kr. Bílaleigubíll í 10 daga kostaði 18þús.
Varðandi Gdansk, ef þið farið þangað, þá fannst mér ww2 safnið vera hápunktur ferðarinnar, það er geggjað. Risastórt, tók um 4klst að skoða það bærilega.
Ef þú hefur ekki flogið með Wizzair áður, þá þarftu að muna að checka þig inn á netinu, annars borgarðu aukalega. Mjög einfalt og þægilegt að checka sig inn og gera allt í appinu og á netinu.
Re: Pólland
Sent: Mið 11. Júl 2018 21:08
af depill
Þurfandi að ferðast til Krakow semi-reglulega að þá líkar mér mjög vel við þá borg. Verst að mér finnst flest allur matur sem ég hef fengið frekar vondur og það eru leiðinlegar flugferðinar þangað.
Hef heyrt góða hluti um Gdansk líka og Varsjá ennfremur líka.
Krakow hefur samt gífurlega margt uppá bjóða, enn ég á t.d. 3 1/2 og 2 1/2 árs gömul börn og ég verð að játa að ég myndi ekki nenna með þau til Kraków enn ef þau væru aðeins eldri væri ég örugglega til í það. Ef ég væri svo að fara með félögunum eða konunni myndi ég pottþétt fara.
Re: Pólland
Sent: Fim 12. Júl 2018 08:43
af Black
Mjög gott að vera í krakow, Mæli líka mjög mikið með að fara í saltnámurnar í krakow.
https://krakowdirect.com/krakow-salt-mine-tours/Alveg hreint magnaður staður og er akkúrat fyrir alla fjölskylduna.
Re: Pólland
Sent: Fim 12. Júl 2018 11:27
af Viggi
Skoða kanski einhverja kastala líka. Alltaf langað að skoða flotta miðaldarkastala.
https://theculturetrip.com/europe/polan ... in-poland/