Síða 1 af 2
Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Lau 26. Maí 2018 22:39
af rapport
Jæja, hvað yrði kosið?
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Sun 27. Maí 2018 03:18
af urban
Píratar hafa alltaf skorað mjög hátt í könnunum hér inni.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Sun 27. Maí 2018 11:05
af Hjaltiatla
VG strax byrjuð að finna fyrir því að hafa farið í samstarf með XD í ríkisstjórn.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Sun 27. Maí 2018 11:25
af blitz
Hjaltiatla skrifaði:VG strax byrjuð að finna fyrir því að hafa farið í samstarf með XD í ríkisstjórn.
Einhver benti á að þeir eru mögulega að verða undir eigin velgengni. Margir flokkar farnir að leggja meiri áherslu á umhverfis- og jafnréttismál. Þá má spyrja hvort að þeir hafi jafn mikið erindi uppá borð og þeir gerðu áður?
Fannst þetta fín pæling.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Sun 27. Maí 2018 11:32
af Hjaltiatla
blitz skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:VG strax byrjuð að finna fyrir því að hafa farið í samstarf með XD í ríkisstjórn.
Einhver benti á að þeir eru mögulega að verða undir eigin velgengni. Margir flokkar farnir að leggja meiri áherslu á umhverfis- og jafnréttismál. Þá má spyrja hvort að þeir hafi jafn mikið erindi uppá borð og þeir gerðu áður?
Fannst þetta fín pæling.
Sjálfur tel ég að í Reykjavík að Sósíalistaflokkurinn hafi tekið yfir á vinstri vængnum einmitt vegna mjög furðulegs samstarfs við XD í ríkisstjórn.
BTW ég kaus hvorugan flokkinn.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Sun 27. Maí 2018 13:39
af jonsig
Það er búið að skipta út feministunum fyrir oppression olympics team Iceland. Og ég sem var farinn að hafa gaman af feminatz.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Sun 27. Maí 2018 19:10
af rapport
Þetta voru fínar kosningar...
Hefur einhver séð Eyþór í dag?
http://www.visir.is/g/2018180528950/rey ... pi-olvadur
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 08:20
af GuðjónR
Hjaltiatla skrifaði:blitz skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:VG strax byrjuð að finna fyrir því að hafa farið í samstarf með XD í ríkisstjórn.
Einhver benti á að þeir eru mögulega að verða undir eigin velgengni. Margir flokkar farnir að leggja meiri áherslu á umhverfis- og jafnréttismál. Þá má spyrja hvort að þeir hafi jafn mikið erindi uppá borð og þeir gerðu áður?
Fannst þetta fín pæling.
Sjálfur tel ég að í Reykjavík að Sósíalistaflokkurinn hafi tekið yfir á vinstri vængnum einmitt vegna mjög furðulegs samstarfs við XD í ríkisstjórn.
BTW ég kaus hvorugan flokkinn.
Ég tel að það sé rétt mat hjá þér rapport, er einhver munur á VG og D í dag? Mér finnst Katrín og Bjarni hljóma orðið alveg eins.
Allt tal VG um samstarf til að hafa áhrinf er tal út í loftið, þetta er valdagræðgi og stólafíkn. Það er svo spennandi að fá stólinn að öllu er fórnað.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 09:25
af rapport
GuðjónR skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:blitz skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:VG strax byrjuð að finna fyrir því að hafa farið í samstarf með XD í ríkisstjórn.
Einhver benti á að þeir eru mögulega að verða undir eigin velgengni. Margir flokkar farnir að leggja meiri áherslu á umhverfis- og jafnréttismál. Þá má spyrja hvort að þeir hafi jafn mikið erindi uppá borð og þeir gerðu áður?
Fannst þetta fín pæling.
Sjálfur tel ég að í Reykjavík að Sósíalistaflokkurinn hafi tekið yfir á vinstri vængnum einmitt vegna mjög furðulegs samstarfs við XD í ríkisstjórn.
BTW ég kaus hvorugan flokkinn.
Ég tel að það sé rétt mat hjá þér rapport, er einhver munur á VG og D í dag? Mér finnst Katrín og Bjarni hljóma orðið alveg eins.
Allt tal VG um samstarf til að hafa áhrinf er tal út í loftið, þetta er valdagræðgi og stólafíkn. Það er svo spennandi að fá stólinn að öllu er fórnað.
WUT!
I never said...
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 12:26
af Viktor
Fyndið hvernig niðurstöðurnar eru túlkaðar.
Ég held að þetta sé frekar borðliggjandi. Vinstrimenn og sósíalistar eru að meðaltali óhamingjusamari, með lægri tekjur og hafa minni völd í samfélaginu.
Þess vegna er fylgið mjög stopult og er fljótt að fara á milli flokka þegar færi gefst.
Sama hvað vinstriflokkur gerir í valdatíð sinni þá er alltaf stór hluti kjósendana óánægður, því það er ekki hægt að gera allt fyrir alla. Margir sósíalistar halda til dæmis að peningar vaxi á trjánum og þeirra eina hlutverk sé að berjast á móti þeim sem eiga verðmæti og útdeila eigum annarra til hinna fátæku(lesist: til þeirra sjálfra).
Þetta gengur auðvitað ekki upp nema í útópíu vinstrimanna og því er þetta fylgi á sífelldri hreyfingu. Þegar það eru svo tólf vinstriframboð í boði, þá auðvitað fær VG minna fylgi.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 13:17
af Hjaltiatla
Núna er það ALVÖRU hægri flokkur sem virðist vera með ákvörðunarvaldið í Reykjavík þ.e Viðreisn.
XD er í raun vinstri flokkur í feluleik.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 13:21
af Viktor
Hjaltiatla skrifaði:XD er í raun vinstri flokkur í feluleik.
Allir flokkar á Íslandi eru í raun vinstriflokkar, eru bara mismikið til vinstri.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 13:26
af Hjaltiatla
Þó að XD vilji einkavæða allt og fara þessa svokölluðu markaðsleið þá gerir það ekki flokkinn að hægri flokki ef verið er að selja til vina og vandamanna. Það er bara falinn kommúnismi í mínum augum.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 13:32
af urban
Hjaltiatla skrifaði:Núna er það ALVÖRU hægri flokkur sem virðist vera með ákvörðunarvaldið í Reykjavík þ.e Viðreisn.
XD er í raun vinstri flokkur í feluleik.
Viðreisn er engin alvöru hægri flokkur
Vissulega hægra megin við miðjuna, en samt sem áður bölvað miðju moð.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 14:42
af GuðjónR
Ef stjórnmál eru gallabuxur þá er Sjálfstæðisflokkurinn vinstri skálmin en Viðreisn sú hægri.
Get ekki betur séð en þetta sé nánast sami flokkurinn, nema viðreisn er hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn, eruði nokkuð búnir að gleyma þegar Viðreisn vildi banna peningaseðla og færa allar færslur í gegnum Borgun-Engey frænda?
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 15:03
af littli-Jake
GuðjónR skrifaði:Ef stjórnmál eru gallabuxur þá er Sjálfstæðisflokkurinn vinstri skálmin en Viðreisn sú hægri.
Get ekki betur séð en þetta sé nánast sami flokkurinn, nema viðreisn er hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn, eruði nokkuð búnir að gleyma þegar Viðreisn vildi banna peningaseðla og færa allar færslur í gegnum Borgun-Engey frænda?
Sennilega eitt mesta snildar plot samtímans
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 15:46
af rapport
Sallarólegur skrifaði:Fyndið hvernig niðurstöðurnar eru túlkaðar.
Ég held að þetta sé frekar borðliggjandi. Vinstrimenn og sósíalistar eru að meðaltali óhamingjusamari, með lægri tekjur og hafa minni völd í samfélaginu.
Þess vegna er fylgið mjög stopult og er fljótt að fara á milli flokka þegar færi gefst.
Sama hvað vinstriflokkur gerir í valdatíð sinni þá er alltaf stór hluti kjósendana óánægður, því það er ekki hægt að gera allt fyrir alla. Margir sósíalistar halda til dæmis að peningar vaxi á trjánum og þeirra eina hlutverk sé að berjast á móti þeim sem eiga verðmæti og útdeila eigum annarra til hinna fátæku(lesist: til þeirra sjálfra).
Þetta gengur auðvitað ekki upp nema í útópíu vinstrimanna og því er þetta fylgi á sífelldri hreyfingu. Þegar það eru svo tólf vinstriframboð í boði, þá auðvitað fær VG minna fylgi.
Ef það verður hægri stjórn í Reykjavík aftur, þá verður þetta ein sog seinast þegar þeir voru við völd, fjórir borgarstjórar á tveim árum og fasteignir við Laugaveginn keyptar á hundruðir milljóna af vinum og vandamönnum.
Núna verða þetta lóðirnar hans Eyþórs í Örfyrirsey sem verða keyptar á milljarð (metnar á 560 milljónir).
Svo fer hann bara að gera eitthvað annað og Pawel eða einhver fær borgarstjórastólinn o.þ.h.
Við "vinstrimenn" erum ekki ekki endilega með lægri laun, við erum bara með siðferðið á réttum stað, vitum að "við"skipti snúast um tvo eða fleiri aðila sem vinna saman að því að hámarka hag beggja, en ekki stríð milli tveggja eða fleiri gráðurgra um hverja krónu eða "vinagreiða" eins og einkennt hafa flippkettina hægramegin í pólitíkinni.
Ég meina...
- Risa gjaldþrot á bakvið alla forkólfa þeirra
- Ofurlaun bæjarstóra þeirra og gríðarlegar hækkanir
- Spillingarmál (veit ekki hversu mörg)
- Og svo tengls við brananíðing, "fjölskylduvinar" þar sem honum er redduð vinna við að skutla skólakrökkum.
- ofl. ofl.
Það kemst enginn flokkur með tærnar þar sem xD hefur hælana í þessum efnum.
Ég veit um margt yndislegt og gott fólk í xD og ég skil ekki af hverju það er ekki valið til að vera í forsvari í stað þessara sem eru þar nú.
Bara skil ekki af herju þau þar á bæ eru svona hrædd við breytingar.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 16:05
af Gustaf
Hvaða lóðir á Eyþór í Örfirisey? ég hef heyrt gífurlega marga segja að hann eigi slatta af lóðum þar en ég hef aldrei séð hvaða lóðir
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 16:07
af Viktor
rapport skrifaði:Við "vinstrimenn" erum ekki ekki endilega með lægri laun
Það er dálítið erfitt að ræða svona mál við fólk sem afneitar staðreyndum.
https://mmr.is/frettir/birtar-nieurstoe ... 32-7-fylgi
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 19:24
af ZiRiuS
Ég held að margir sem kjósi Sjálfstæðisflokkinn haldi að þau séu geðveikt rík eða að þau verði það við að kjósa hann.
Sjálfstæðisflokkurinn er t.d. stærsti verkamannaflokkurinn á landinu, pælið í þeim brandara...
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 20:17
af GuðjónR
ZiRiuS skrifaði:Ég held að margir sem kjósi Sjálfstæðisflokkinn haldi að þau séu geðveikt rík eða að þau verði það við að kjósa hann.
Sjálfstæðisflokkurinn er t.d. stærsti verkamannaflokkurinn á landinu, pælið í þeim brandara...
Lestu þessa grein:
http://kvennabladid.is/2016/05/03/sagan ... m-skrifar/
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 20:38
af appel
GuðjónR skrifaði:ZiRiuS skrifaði:Ég held að margir sem kjósi Sjálfstæðisflokkinn haldi að þau séu geðveikt rík eða að þau verði það við að kjósa hann.
Sjálfstæðisflokkurinn er t.d. stærsti verkamannaflokkurinn á landinu, pælið í þeim brandara...
Lestu þessa grein:
http://kvennabladid.is/2016/05/03/sagan ... m-skrifar/
Þetta var ekkert bundið við Ísland. Víða um heim voru aristókratar við völd og samfélög mikið stéttaskipt, nóg að nefna Bretland. Ísland og íslenskt samfélag hefur fylgt evrópu hvað þetta varðar, bæði í að viðhalda þessum mismun og einnig að afnema þennan mismun.
Held það sé full langt gengið að kalla þetta sér-íslenskt fyrirbæri, bundið við einstakan íslenskan stjórnmálaflokk, og það sé hætta á að þetta snúi aftur hér á Íslandi ef það sé kosið "vitlaust", alveg einsog það sé engin hætta á að Sóvétríkin snúi aftur þó fólk kjósi vinstri græna.
Konur fengu kosningarétt hér á Íslandi sem þær fengu hann annarsstaðar í vestrænum heimi. Það var ekkert séríslenskt að banna konum að kjósa.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 21:00
af Hjaltiatla
ZiRiuS skrifaði:Ég held að margir sem kjósi Sjálfstæðisflokkinn haldi að þau séu geðveikt rík eða að þau verði það við að kjósa hann.
Sjálfstæðisflokkurinn er t.d. stærsti verkamannaflokkurinn á landinu, pælið í þeim brandara...
Held að ástæðan fyrir því sé að mikið af hipster liði á vinstri mennta vængnum tali niður til fólks eins og það sé vitlaust ef það er ekki sammála því.
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 21:21
af ZiRiuS
Hjaltiatla skrifaði:ZiRiuS skrifaði:Ég held að margir sem kjósi Sjálfstæðisflokkinn haldi að þau séu geðveikt rík eða að þau verði það við að kjósa hann.
Sjálfstæðisflokkurinn er t.d. stærsti verkamannaflokkurinn á landinu, pælið í þeim brandara...
Held að ástæðan fyrir því sé að mikið af hipster liði á vinstri mennta vængnum tali niður til fólks eins og það sé vitlaust ef það er ekki sammála því.
Og hægri liðið í Garðabænum gerir það ekki? Pólitísk umræða almennt beggja meginn við pólana er bara drep leiðinleg í dag. Allir lofa upp í ermina á sér sem ekki er staðið við.
Það sem er verst við þetta alltsaman er að fólk er hætt að nenna að kjósa. 33% á kjörskrá mættu ekki til að kjósa í Reykjavík. Það er næstum því sama prósenta og Sjálfstæðisflokkurinn fékk, og sumt af þessu fólki hugsar "atkvæðið mitt skiptir engu máli".
Var það ekki í Eyjum og einhverstaðar annarsstaðar á landinu þar sem munaði einhverju 1-3 atkvæðum á sigurvegara?
Re: Ef Vaktarar réðu, hver væri niðurstaðan?
Sent: Mán 28. Maí 2018 21:28
af Hjaltiatla
ZiRiuS skrifaði:Hjaltiatla skrifaði:ZiRiuS skrifaði:Ég held að margir sem kjósi Sjálfstæðisflokkinn haldi að þau séu geðveikt rík eða að þau verði það við að kjósa hann.
Sjálfstæðisflokkurinn er t.d. stærsti verkamannaflokkurinn á landinu, pælið í þeim brandara...
Held að ástæðan fyrir því sé að mikið af hipster liði á vinstri mennta vængnum tali niður til fólks eins og það sé vitlaust ef það er ekki sammála því.
Og hægri liðið í Garðabænum gerir það ekki? Pólitísk umræða almennt beggja meginn við pólana er bara drep leiðinleg í dag. Allir lofa upp í ermina á sér sem ekki er staðið við.
Það sem er verst við þetta alltsaman er að fólk er hætt að nenna að kjósa. 33% á kjörskrá mættu ekki til að kjósa í Reykjavík. Það er næstum því sama prósenta og Sjálfstæðisflokkurinn fékk, og sumt af þessu fólki hugsar "atkvæðið mitt skiptir engu máli".
Var það ekki í Eyjum og einhverstaðar annarsstaðar á landinu þar sem munaði einhverju 1-3 atkvæðum á sigurvegara?
Ég held að vinir þínir í Garðabænum tali niður til fólks en hinn hópurinn talar yfir hópinn.