Síða 1 af 1
Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 14:04
af Stingray80
Var að panta mér vöru á Amazon
hérna er kostnaðurinn á henni
- Untitled.jpg (18.01 KiB) Skoðað 2671 sinnum
Nú spyr ég eins og vitleysingur, hvað leggst ofan á þetta þegar þetta kemur til landsins ??
Ég hélt að neðri tölurnar væri upphæð sem eg myndi borga þegar ég græja hana úr tollinum.
Eða er ég í ruglinu ??
edit*
Þetta er míkrófónn ef það skiptir eitthverju máli hvað varðar gjöld
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 14:15
af dori
Þetta ætti að vera allt sem þú borgar. Þú færð vöruna bara senda heim og borgar ekkert auka.
Svo ef þeir rukkuðu þig um of mikið (þeir eru að rukka 24% VSK þarna með smá buffer sýnist mér) þá færðu það endurgreitt nokkrum vikum seinna (gætu verið einhverjir tíkallar í þessu tilfelli).
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 14:22
af kubbur
Hvaða mic varstu að panta ?
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 14:30
af Stingray80
Audio-Technica AT2020USB
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 21:02
af DaRKSTaR
þetta er heildartalan með innflutningsgjöldum... eina sem þú þarft að gera er að sækja þetta á pósthúsið.
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 22:02
af peer2peer
Sækja á pósthúsið? Nei, það er ekki rétt. Í flestum tilvikum er það DHL sem keyrir þetta til sín og ef þeir ná ekki á þér, þá fer þetta til þeirra.
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 22:50
af kjartanbj
peturthorra skrifaði:Sækja á pósthúsið? Nei, það er ekki rétt. Í flestum tilvikum er það DHL sem keyrir þetta til sín og ef þeir ná ekki á þér, þá fer þetta til þeirra.
UPS reyndar
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 22:52
af arons4
peturthorra skrifaði:Sækja á pósthúsið? Nei, það er ekki rétt. Í flestum tilvikum er það DHL sem keyrir þetta til sín og ef þeir ná ekki á þér, þá fer þetta til þeirra.
Ekki úti á landi. Alltaf fengið amazon pakka annaðhvort heimsenda frá póstinum eða þurft að sækja á pósthús.
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 23:06
af urban
Þetta er heildar upphæð með öllu.
Ef að það er ofrukkað hjá þeim, þá endurgreiða þeir mismuninn.
Ég fékk 27 krónur endurgreiddar frá þeim eftir síðustu sendingu.
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mán 07. Maí 2018 23:18
af gutti
Ups amazon besta við amazon færð sent að dyrum rukka tolla sendingar kostanði ekkert vesen þegar pakki kemur end var panta hjá þeim fékk i dag
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Þri 08. Maí 2018 11:19
af peer2peer
kjartanbj skrifaði:peturthorra skrifaði:Sækja á pósthúsið? Nei, það er ekki rétt. Í flestum tilvikum er það DHL sem keyrir þetta til sín og ef þeir ná ekki á þér, þá fer þetta til þeirra.
UPS reyndar
Rétt mundi ekki hvort það var.
arons4 skrifaði:peturthorra skrifaði:Sækja á pósthúsið? Nei, það er ekki rétt. Í flestum tilvikum er það DHL sem keyrir þetta til sín og ef þeir ná ekki á þér, þá fer þetta til þeirra.
Ekki úti á landi. Alltaf fengið amazon pakka annaðhvort heimsenda frá póstinum eða þurft að sækja á pósthús.
Og ég var einmitt að meina höfuðborgarsvæðið
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Þri 08. Maí 2018 20:33
af kjartanbj
Ég fékk alltaf með UPS í bænum en fékk með póstinum heimsent á Selfossi eftir að ég flutti
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Þri 08. Maí 2018 23:58
af Stuffz
Ég er með þetta amazon prime 99$ á ári, það hinsvegar á að
hækka það í 119$ eftir nokkra daga 11 Maíhttp://uk.businessinsider.com/get-amazo ... ?r=UK&IR=Tenda er amazon viljandi búið að vera að tapa miklum peningi lengi á þessu prime sendingarlúxus til að venja kúnnana við þennan viðskiptamáta.
https://www.technologyreview.com/s/6018 ... till-wins/
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mið 09. Maí 2018 11:00
af Jón Ragnar
Samt eitt óþolandi við Amazon hvað það eru fáir sem senda til Íslands
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Mið 09. Maí 2018 13:11
af Emarki
Hvað fær maður útúr því að vera með "Amazon prime" áskrift í dag á íslandi ?
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Lau 12. Maí 2018 19:21
af Stuffz
Emarki skrifaði:Hvað fær maður útúr því að vera með "Amazon prime" áskrift í dag á íslandi ?
t.d. prime only stuff, og minni sendingarkosnaður á mörgum hlutum
held ég
svo eitthvað ebooks o.s.f.
er ekki að nota allt þetta prime stuff, keypti 1 árs áskrift til að prófa.
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Sun 13. Maí 2018 12:29
af urban
Stuffz skrifaði:Emarki skrifaði:Hvað fær maður útúr því að vera með "Amazon prime" áskrift í dag á íslandi ?
t.d. prime only stuff, og minni sendingarkosnaður á mörgum hlutum
held ég
svo eitthvað ebooks o.s.f.
er ekki að nota allt þetta prime stuff, keypti 1 árs áskrift til að prófa.
Ég keypti það til að byrja með eiginlega eingöngu útaf Grand Tour þáttunum hjá þeim
Re: Panta á Amazon (toll/vsk pælingar)
Sent: Sun 13. Maí 2018 21:28
af jonfr1900
Jón Ragnar skrifaði:Samt eitt óþolandi við Amazon hvað það eru fáir sem senda til Íslands
Þetta er stórt vandamál varðandi rafeindabúnað. Móttakara og annað slíkt.