Síða 1 af 1

Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 14:55
af hagur
Daginn,

Vitið þið hvort það sé hægt að fá svona kapal einhverstaðar á klakanum?

https://www.amazon.com/RGBZONE-Extensio ... dpSrc=srch

Eða eitthvað í þessum dúr ? Get auðvitað mixað þetta með að t.d splice-a saman vírum en myndi helst vilja komast hjá því.

Svör eins og "checkaðu í íhlutum/miðbæjarradíó" vinsamlegast afþökkuð, mun eflaust gera það .... en ef einhver veit fyrir víst hvar þetta fæst, lát heyra :happy

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 15:05
af lifeformes
sæll ertu að fara að tengja saman phillips hue led borða, er einmitt í þessum pælingum lika, vantar einmitt svona framlengingu fyrir það :megasmile

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 15:06
af Tbot
led lýsing í hlíðarsmáranum hefur átt eitt og annað.

Ekki klár með þetta og þá hugsanlegt verð.

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 15:23
af gotit23

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 16:06
af Viktor
gotit23 skrifaði:https://www.ebay.com/itm/1M-2M-5M-30cm-4PIN-RGB-Led-Connector-Extension-Cable-Cord-Wire-for-5050-3528-LED/351951199992?hash=item51f1ed1ef8:m:mIM8eclk54aW5ZsT9jl7Kqg


Hann setur inn link á Amazon, heldurðu að hann sé að leita að Ebay link líka? :guy

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 16:09
af worghal
á mundi ekki eitthvað gamalt stock?

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 16:21
af hagur
worghal skrifaði:á mundi ekki eitthvað gamalt stock?


Hver er mundi?

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 16:22
af hagur
lifeformes skrifaði:sæll ertu að fara að tengja saman phillips hue led borða, er einmitt í þessum pælingum lika, vantar einmitt svona framlengingu fyrir það :megasmile


Nei, reyndar ekki en svona næsti bær við ... Keypti mér 10m 5050 RGB strip og Hue compatible zigbee led controller til að tengja við þetta. Snúran sem fylgir borðanum er ekki nema c.a 10cm löng, þarf að framlengja hana aðeins.

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 16:26
af ZoRzEr
Tbot skrifaði:led lýsing í hlíðarsmáranum hefur átt eitt og annað.

Ekki klár með þetta og þá hugsanlegt verð.


Fór til hans fyrir 3 vikum. Sagði mér að hann væri að fara loka búllunni. Var að pakka saman öllum vörum og var að losa sig við afganga. Fékk að kaupa af honum nokkrar kapla og einn straumbreyti sem hann átti til á lager. Veit ekki hver staðan á honum er núna. Hann var frekar loðinn með lokunina. Gæti verið að flytja.

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Mán 26. Feb 2018 22:22
af worghal
hagur skrifaði:
worghal skrifaði:á mundi ekki eitthvað gamalt stock?


Hver er mundi?

mundivalur hérna á vaktinni.

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Þri 27. Feb 2018 18:26
af Black
ZoRzEr skrifaði:
Tbot skrifaði:led lýsing í hlíðarsmáranum hefur átt eitt og annað.

Ekki klár með þetta og þá hugsanlegt verð.


Fór til hans fyrir 3 vikum. Sagði mér að hann væri að fara loka búllunni. Var að pakka saman öllum vörum og var að losa sig við afganga. Fékk að kaupa af honum nokkrar kapla og einn straumbreyti sem hann átti til á lager. Veit ekki hver staðan á honum er núna. Hann var frekar loðinn með lokunina. Gæti verið að flytja.


Versluninn er allavega orðinn tóm hjá honum,

Re: Framlengingarkapall fyrir LED borða ....

Sent: Þri 27. Feb 2018 19:54
af hagur
Ég reddaði þessu, fann svona tengi með stuttri snúru í skúffunni hjá mér og splæsaði lengri vír á þetta.

Takk samt fyrir uppástungurnar.