Síða 1 af 1

Versla í USA - Skattur og Tax free pælingar

Sent: Sun 25. Feb 2018 22:31
af Hjaltiatla
Sælir/Sælar

Var að pæla hvort þið gætuð svarað mér varðandi það að versla vörur í USA og koma með til baka til Íslands. Er að fara til USA í 6 daga og tek með mér stóra tösku (20 kg af innrituðum farangri). Hafði hugsað mér að panta vörur uppá hótel af Amazon og koma með til Íslands.

Hafiði látið reyna á "Request a Tax Refund" í gegnum Amazon og fengið greitt til baka ?

Reikna ekki með að versla vörur fyrir meira en 88.000 kr (eins og staðan er núna) en fór að pæla í þessu þar sem þetta var alveg ágæt upphæð seinast þegar ég var að versla í danmörku og nýtti mér Tax free þegar ég verslaði vörur og fékk skattinn greiddan til baka.

Allir punktar eru vel séðir

Re: Versla í USA - Skattur og Tax free pælingar

Sent: Sun 25. Feb 2018 23:32
af Tiger
25% í DK á móti 5-7% í USA.... hef ekki nennt að pæla í því, hvað þá fyrir <100k innkaup.

Re: Versla í USA - Skattur og Tax free pælingar

Sent: Sun 25. Feb 2018 23:34
af Hjaltiatla
Tiger skrifaði:25% í DK á móti 5-7% í USA.... hef ekki nennt að pæla í því, hvað þá fyrir <100k innkaup.


Ahhh... Ok, þá læt ég þetta eiga sig.

Takk fyrir svarið.

Re: Versla í USA - Skattur og Tax free pælingar

Sent: Mán 26. Feb 2018 00:11
af linked
Það er (generally) ekki hægt að fá tax refund eða tax free í USA.

Re: Versla í USA - Skattur og Tax free pælingar

Sent: Mán 26. Feb 2018 00:19
af Hjaltiatla
Jæja, þá fer þessi aur sem ég borga í skatt í ríkissjóð Trump. Ég reyni bara að nota vegina eins mikið og ég get og svoleiðis :)