Zuckerberg...
Sent: Lau 20. Jan 2018 01:18
ZiRiuS skrifaði:Bara sorry, en fólk sem lætur facebook stjórna lífi sínu á skilið að láta facebook stjórna lífi sínu. Ég meina hversu fucked er samfélag orðið þegar þú þarft að skoða þennan miðil á rauðu ljósi að keyra bíl eða þegar þú ert úti að borða með vinahópnum eða whatever.
Flest allt sem þú skoðar á facebook er það besta frá fólki, það deilir ekki leiðinlegum hversdagshlutum, heldur því sem er sérstakt. Síðan skoða aðrir það og láta sér líða ílla útaf lífið virðist betra hjá Jóni en hann hugsar svo það nákvæmlega sama um þig.
Við ættum bara öll að hætta þessu kjaftæði og fara bara út að leika.