Er í smá sérstakri stöðu en er að leita eftir öryggiskerfi í sveitina og er þá með 2 skemmur fyrir utan íbúðarhúsið sem ég vill geta sett einhverja skynjara í og þeir eru í 100m+ fjarlægð.
Ef ég kemst hjá því þá vill ég helst ekki hafa þetta 3 mismunandi kerfi en út af því að það munu vera myndavél þarna líka þá voru kaplar lagðir frá íbúðarhúsnæðinu og yfir í skemmurnar svo við gætum samtengst netinu þar.
Er eitthvað öryggiskerfi sem ég gæti notfært mér þetta ? að ég væri t.d með aðalstöðina(heilann) íbúðarhúsnæðinu og skynjara svo í skemmunum og ef þeir færu í gang þá væru samskiptin yfir local internetið og í aðastöðina? Ekki væri verra að það væri frekar auðvelt í notkun og hægt væri að hafa mismunandi zones (ekki nauðsynlegt en kostur)